Fréttablaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 48
Þögn WOW air
Athygli hefur vakið
að flugfélagið
WOW air hefur
ekki birt neinar
upplýsingar um
rekstur og afkomu
félagsins á þessu
ári. Það er mikil breyting
frá því sem áður var, en sem dæmi
sendu forsvarsmenn WOW air frá sér
fréttatilkynningar ársfjórðungslega
í fyrra þar sem ítarlega var greint frá
uppgjöri félagsins og afkomuhorfum
þess. Flugfélag Skúla Mogensen er
vitaskuld ekki skráð á hlutabréfa-
markað og ber því þess vegna ekki
skylda til þess senda reglulega frá
sér uppgjörstilkynningar, en þessi
þögn félagsins hefur engu að síður
vakið athygli manna.
Ekki auglýst
Marta Jóns-
dóttir var í ágúst
ráðin fram-
kvæmdastjóri
Þróunarfélags
Keflavíkurflug-
vallar (Kadeco) þegar
Kjartan Þór Eiríksson neyddist til
að segja starfi sínu lausu eftir að
fjallað var um kaup viðskiptafélaga
hans á fasteignum á Ásbrú. Starfið
var ekki auglýst og ráðningin sögð
tímabundin enda væri endurskipu-
lagning á rekstri Kadeco að hefjast.
Stjórn félagsins er pólitískt skipuð en
það er alfarið í eigu ríkisins. Nú eru
kosningar fram undan og alls óljóst
hvaða stefna verður tekin varðandi
framtíð Kadeco.
Gengin í gegn
Útgáfufélagið
Myllusetur, sem
gefur út Við-
skiptablaðið
og Fiskifréttir,
eignaðist í lok
síðasta mánaðar
Frjálsa verslun, elsta
viðskiptatímarit landsins. For-
svarsmenn Heims, börn Benedikts
Jóhannessonar fjármálaráðherra,
höfðu um nokkurt skeið leitað
nýrra eigenda að Frjálsri verslun
og hófust í sumar viðræður á milli
þeirra og forsvarsmanna Myllu-
seturs, en Pétur Árni Jónsson er
stærsti eigandi síðarnefnda félags-
ins. Með sölunni á Frjálsri verslun
lýkur Heimur sölu á tímaritum
sínum, en félagið gaf meðal annars
út Vísbendingu, Iceland Review og
Ský. Jón G. Hauksson, sem hefur rit-
stýrt Frjálsri verslun síðustu 25 ár, er
hættur störfum og kominn með sinn
eigin vikulega sjónvarpsþátt á ÍNN.
Már í góðum félagsskapSkotsilfur
Hannes G.
Sigurðsson,
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri
Samtaka atvinnu-
lífsins
Allir helstu seðlabankastjórar heims fjölmenntu á ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem fram fór í Washington-borg í Bandaríkjunum um síðustu
helgi. Mark Carney, bankastjóri Englandsbanka, sést hér upptekinn í símanum sínum en neðst á myndinni má sjá Má Guðmundsson seðlabanka-
stjóra í góðum félagsskap. Hann nýtti helgina vel og fundaði meðal annars með stjórnendum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. NORDICPHOTOS/GETTY
Við mat á starfsmönnum, jafnt
yfirmönnum og almennum starfs-
mönnum, er í dag gjarnan horft til
tveggja þátta. Það er annars vegar
mælanlegur árangur í starfi, svo sem
sölutölur, framleiddar einingar, nýt-
ing eða álíka. Hins vegar það sem hér
verður einu nafni kallað viðhorf.
Undir viðhorf falla þá þættir eins
og vilji starfsmanns til að aðstoða
samstarfsfólk. Til að fara eftir settum
verkreglum og fyrir fram ákveðnu
verklagi. Hvernig starfsmaður talar til
samstarfsfólks, eða um það þegar það
er ekki viðstatt. Hvort starfsmaður
reyni að komast fram hjá svörum
sem hann hefur fengið frá yfirmanni
og þar fram eftir götunum. Allir
eiga rétt á sínum skoðunum en það
skiptir máli hvernig þeim er komið
á framfæri.
Samskiptahæfni yfirmanna
Þeir sem taka það að sér að vera með
mannaforráð á vinnustöðum þurfa að
taka ábyrgð á þeirri ábyrgð, ef svo má
segja. Mannaforráðum þarf að sinna.
Eitt það mikilvægasta við að hafa
mannaforráð eru samskipti, og þá
einna helst endurgjöf á störf starfs-
fólks. Starfsfólk sem stendur sig vel
ætti að fá að heyra það frá yfirmanni
sínum. Starfsfólk sem getur bætt sig
í starfi, hvort sem er í mælanlegum
árangri eða því sem hér er kallað við-
horf, þarf að fá endurgjöf um það.
Mikilvægt er að endurgjöfin sé upp-
byggjandi og leiðbeinandi, en umfram
allt skýr. Endurgjöfin þarf að vera
þannig að starfsmaður skilji og með-
taki hvað yfirmaður er að segja.
Samskiptahæfni starfsmanna
Starfsmenn eiga oftast í daglegum
samskiptum við samstarfsfólk og
oft við viðskiptavini og aðra hags-
munaaðila. Mikilvægt er að vanda
samskiptin.
Uppbyggjandi samskipti fela það í
sér að starfsmenn hlusta á aðra, taka
þátt í samtölum, kalla eftir skoðunum
allra í hópnum og þar fram eftir göt-
unum. Uppbyggjandi samskipti eru
hvetjandi, styðjandi og til þess fallin
að ná auknum árangri. Niðurrífandi
samskipti eru oft þannig að samtöl
verða gjarnan að einræðum, gert er
lítið úr öðrum, einstaklingum er ekki
hleypt inn í samtöl og svo framvegis.
Samskipti á vinnustöðum segja
mikið um vinnustaðarmenninguna.
Samkvæmt rannsókn sem Gartner
framkvæmdi geta einstaklingar
sem hafa niðurrífandi samskiptastíl
dregið úr framleiðni teyma um allt
að 30-40%. Það er ekki ásættanlegt
fyrir neinn.
Áhrif viðhorfa og samskipta á framleiðni
Hugmyndir og tillögur um stytt-
ingu vinnutíma á Íslandi markast
af röngum upplýsingum og þar af
leiðandi röngum ályktunum.
Flestir halda að dagvinnutími á
viku sé 40 stundir og bera saman
við 37 eða 37,5 stundir í Danmörku
og Noregi. Þetta er ekki rétt því dag-
vinnutími verður lengstur 37 stund-
ir á Íslandi. Vinnutími er sá tími sem
starfsmaður er við störf og til taks
fyrir vinnuveitandann. Umsamdir
kaffitímar, 3 klukkustundir á viku,
eiga þannig ekki að reiknast með
vinnutíma þótt þeir séu greiddir.
Kaffitímarnir eru eigin tími starfs-
manna og þeim er yfirleitt frjálst
að yfirgefa vinnustaðinn á meðan á
þeim stendur.
Umsaminn ársvinnutími á Íslandi
er hvergi styttri í Evrópu, að Frakk-
landi undanskildu. Árlegar vinnu-
stundir sem standa vinnuveitendum
til ráðstöfunar á dagvinnukaupi eru
1.632 og er þá miðað við 37 stundir
á viku, 28 daga meðalorlof og 11,4
sérstaka frídaga.
Ósveigjanlegir kjarasamningar
Mikill munur er á greiddum vinnu-
stundum og raunverulega unnum
stundum hér á landi. Ísland sker
sig frá öðrum löndum vegna þess
hversu stór hluti launagreiðslna er í
formi yfirvinnugreiðslna. Skýringin
liggur í ósveigjanlegum ákvæðum
kjarasamninga um vinnutíma.
Samanburður kjarasamninga á
Íslandi og öðrum Norðurlöndum
leiðir berlega í ljós hversu ósveigjan-
legir íslensku kjarasamningarnir
eru varðandi skipulag vinnutíma.
Á Norðurlöndum eru víða miklir
möguleikar á því að jafna vinnu-
stundum milli daga og vikna og
gera vinnutímann upp á lengri
tímabilum, t.d. mánuði eða jafn-
vel enn lengri tímabilum. Þannig
er vinnustundum umfram vinnu-
skyldu á einu tímabili mætt með
færri vinnustundum á síðara tíma-
bili. Slíkur sveigjanleiki dregur mjög
úr yfirvinnugreiðslum enda eru þær
til dæmis aðeins 1% launagreiðslna í
Danmörku en 15% á Íslandi.
Skynsamt fólk lærir af mistökum
sínum og annarra. Lögin frá 1972
um 40 stunda vinnuviku (í raun
37 stundir) hafði óveruleg áhrif á
heildarvinnutíma þótt þau styttu
dagvinnutíma um fjórar stundir á
viku. Áhrif laganna voru fyrst og
fremst að hækka launakostnað
atvinnulífsins. Áhrifin af umsaminni
styttingu dagvinnutímabils versl-
unarmannafélaga árið 2000 drógu
ekki úr heildarvinnutíma verslunar-
manna, en hlutur yfirvinnutekna í
heildarlaunum jókst og þar með
launakostnaður.
Miðstýring eykur ekki framleiðni
Ofmat á vinnustundum á Íslandi
veldur því að afköst mælast léleg í
alþjóðlegum samanburði og margir
trúa því að þau taki stökkbreytingu
með pennastriksaðferð sem gengur
undir heitinu „stytting vinnutíma“.
Framleiðni á Íslandi er vanmetin
vegna þess ofmats á vinnutíma sem
felst í því að taldir eru greiddir tíma
en ekki unnar vinnustundir. Í veru-
leikanum eykst framleiðni jafnt og
þétt í hægum skrefum með sífelld-
um og smáum umbótum þúsunda
aðila.
Mældur (og ofmetinn) vinnutími
hefur styst hér á landi um fjórar
klukkustundir á viku á undanförn-
um tveimur áratugum og um 12-14
stundir sé litið til undangenginna
fjögurra áratuga. Þetta er mikil
breyting og er til marks um aukin
afköst og bætt lífskjör þar sem svig-
rúm hefur skapast fyrir mun styttri
vinnutíma en áður. Aukin fram-
leiðni í atvinnulífinu hefur knúið
þessa þróun áfram. Svigrúminu sem
framleiðniaukning hefur skapað til
bættra lífskjara hefur verið skipt
milli beinnar kaupmáttaraukningar
og styttri vinnutíma. Sveigjanlegri
ákvæði kjarasamninga en nú eru
geta hvatt atvinnulífið til aukningar
framleiðni og stuðlað að bættum
kjörum, en það geta einfaldar
pennastriksaðferðir ekki.
Rangfærslur um styttingu
vinnutíma á Íslandi
Herdís Pála
ráðgjafi, mark-
þjálfi og FKA-fé-
lagskona.
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r10 markaðurinn
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
0
-E
6
0
0
1
E
0
0
-E
4
C
4
1
E
0
0
-E
3
8
8
1
E
0
0
-E
2
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K