Fréttablaðið - 11.11.2017, Side 41

Fréttablaðið - 11.11.2017, Side 41
Femarelle vörurnar eru náttúruleg lausn fyrir konur sem finna fyrir ein- kennum breytinga- skeiðs. Þær slá á einkenni tíðahvarfa og styrkja beinin. Breytingaskeiðið er eitthvað sem engin kona sleppur við. Einkennin geta verið afar mismunandi og þó svo að sumar konur sleppi nokkuð vel og finni lítið fyrir breytingunum eru fjöl- margar sem þjást á einhvern hátt. Hvað er breytingaskeið? Breytingaskeiðið hefst þegar eggjastokkar konunnar draga úr framleiðslu á kven- hormónum og að lokum hætta. Þetta hefst oftast þegar konur eru á bilinu 45-52 ára en þó eru mörg dæmi þess að þetta ferli byrji fyrr og jafnvel síðar. Á þessu skeiði kemst ójafnvægi á hormónana sem getur lýst sér á marg- víslegan máta en þetta eru ein- kenni eins og: l Fyrirtíðaspenna l Óreglulegar blæðingar l Hitakóf og nætursviti l Svefntruflanir l Skapsveiflur l Þurr húð og minni teygjanleiki l Minni orka, þreyta og slen l Pirringur l Aukinn hjartsláttur l Höfuðverkur l Minni kynlöngun l Kvíði og sorgartilfinning Lífsstíll og náttúrulegar lausnir „Til að lágmarka eða draga úr ein- kennum breytingaskeiðsins er gott að fara í smá sjálfskoðun og athuga hvort það er ekki eitthvað sem hægt er að gera án mikils tilkostn- aðar en eins og alltaf þá skiptir lífsstíll okkar gríðarlega miklu máli. Að borða hreina fæðu, hreyfa sig reglulega (helst alla daga), sofa vel, rækta sálina og sambönd við fjölskyldu, vini og kunningja getur skipt sköpum og í öllum til- vikum þá eru meiri lífsgæði fólgin í heilbrigðum lífsstíl. Fjölmargar náttúrulegar lausnir eru svo til sem geta slegið enn frekar á einkennin og er þá frekar einstaklingsbundið hvað virkar og hvað ekki. Því verða allir að prófa sig svolítið áfram og gefa sér nokkrar vikur til að finna út hvort viðkomandi lausn hentar eða ekki, sama hvað prófað er,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsuráð- gjafi hjá Artasan. Femarelle virkar Halldóra Ósk Sveinsdóttir hefur fundið fyrir einkennum breytinga- skeiðsins í þó nokkur ár og hafa þau farið stigvaxandi með hækkandi aldri. Í byrjun þessa árs voru ein- kennin þó orðin þannig að ekki var lengur við unað. Hún hefur þetta að segja um Femarelle: „Þegar að því kom að ég vildi gera eitthvað í málunum, hugnaðist mér ekki að fara á hormónalyf svo ég frestaði alltaf að panta mér tíma hjá lækni. Einhvers staðar rakst ég á umfjöllun um náttúrulyfið Femarelle og góðar reynslusögur af því. Ég ákvað að kaupa mér einn pakka og prufa, það gæti varla skaðað nokkuð. Eftir 7 til 10 daga inntöku samviskusamlega kvölds og morgna, fór ég að finna mun. Líkamsofninn minn var farinn að kveikja á yfirhita í tíma og ótíma en það hætti alveg. Ég vaknaði 4-6 sinnum á nóttu vegna svita og almenns pirrings en sef núna mjög vel sem skilar sér í meiri orku og úthaldi. Fótapirringur sem hefur hrjáð mig í mjög mörg ár hefur einnig minnkað til mikilla muna. Þetta allt þakka ég Femarelle Recharge töflunum því ef ég á þær ekki til þá láta einkennin aftur á sér kræla. Þess vegna get ég sagt með góðri samvisku að Femarelle virkar.“ Femarelle sem fyrsta meðferð Prófessor Andrea Genazzani, for- seti Evrópuráðs í kvensjúkdóma- fræðum mælir með Femarelle sem fyrstu meðferð við einkennum breytingaskeiðs en það hefur færst gríðarlega í aukana að konum sé bent á náttúrulegar leiðir frekar en taka inn hormóna. Það sem gerir Femarelle sérstakt er efnasamband, unnið úr óerfðabreyttu soja, sem kallast DT56a og viðurkenndar rannsóknir sýna að það örvar estró- gennema í staðbundnum vef, slær á einkenni tíðahvarfa og styrkir bein, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum. Virkni Femarelle hefur verið stað- fest með fjölda rannsókna. Svitakófin hurfu, svefninn betri og orkan hefur aukist Halldóra Ósk Sveinsdóttir hefur fundið fyrir einkennum breytingaskeiðsins í þó nokkur ár og hafa þau farið stigvaxandi með hækkandi aldri. Hrönn Hjálmarsdóttir. Femarelle Recharge 50+ • Slær hratt á einkennin (hitakóf og nætursviti minnkar) • Stuðlar að reglulegum svefni • Eykur orku • Eykur kynhvöt • Hefur engin áhrif á vefi í brjóstum eða legi Femarelle Unstoppable 60+ • Inniheldur kalsíum og D3 -vítamín sem eru nauðsynleg til að styrkja bein • Stuðlar að heilbrigðri slímhúð legganga • Eykur liðleika • Stuðlar að reglulegum svefni • Eykur orku sem stuðlar að andlegu jafnvægi Femarelle Rejuvenate 40+ • Minnkar skapsveiflur • Stuðlar að reglulegum svefni • Eykur orku • Eykur teygjanleika húðar • Viðheldur heilbrigðu hári Staðfest virkni Góðgerlar sem styrkja meltinguna og vinna gegn fjölgun Candida sveppsins í meltingarvegi. Bio-Kult Candéa Bio-Kult góðgerlar styrkja meltinguna! Hágæða góðgerlar, heilbrigð bakteríuflóra. Fæst í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Bio-Kult Original Bio-Kult Pro-Cyan Bio-Kult Infantis Öflug blanda góðgerla sem byggir upp þarmaflóruna og styrkir varnir líkamans. Styrkir þvagrásina og virkar sem öflug vörn gegn þvagrásarvandræðum. Góðgerlar fyrir börn á öllum aldri. Eflir þarmaflóruna, án allra aukaefna og er bragðlaust. Bio-Kult-Hamingjan 5x10 copy.pdf 1 10/11/2017 14:30 FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 1 . n óv e m b e r 2 0 1 7 1 1 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :1 5 F B 1 2 8 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 1 -D 3 3 4 1 E 3 1 -D 1 F 8 1 E 3 1 -D 0 B C 1 E 3 1 -C F 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.