Fréttablaðið - 11.11.2017, Qupperneq 41
Femarelle vörurnar
eru náttúruleg lausn
fyrir konur sem
finna fyrir ein-
kennum breytinga-
skeiðs. Þær slá á
einkenni tíðahvarfa
og styrkja beinin.
Breytingaskeiðið er eitthvað sem engin kona sleppur við. Einkennin geta verið afar
mismunandi og þó svo að sumar
konur sleppi nokkuð vel og finni
lítið fyrir breytingunum eru fjöl-
margar sem þjást á einhvern hátt.
Hvað er breytingaskeið?
Breytingaskeiðið hefst þegar
eggjastokkar konunnar draga
úr framleiðslu á kven-
hormónum og að lokum
hætta. Þetta hefst oftast
þegar konur eru á
bilinu 45-52 ára en þó
eru mörg dæmi þess
að þetta ferli byrji
fyrr og jafnvel síðar.
Á þessu skeiði kemst
ójafnvægi á hormónana
sem getur lýst sér á marg-
víslegan máta en þetta eru ein-
kenni eins og:
l Fyrirtíðaspenna
l Óreglulegar blæðingar
l Hitakóf og nætursviti
l Svefntruflanir
l Skapsveiflur
l Þurr húð og minni teygjanleiki
l Minni orka, þreyta og slen
l Pirringur
l Aukinn hjartsláttur
l Höfuðverkur
l Minni kynlöngun
l Kvíði og sorgartilfinning
Lífsstíll og
náttúrulegar lausnir
„Til að lágmarka eða draga úr ein-
kennum breytingaskeiðsins er gott
að fara í smá sjálfskoðun og athuga
hvort það er ekki eitthvað sem
hægt er að gera án mikils tilkostn-
aðar en eins og alltaf þá skiptir
lífsstíll okkar gríðarlega miklu
máli. Að borða hreina fæðu, hreyfa
sig reglulega (helst alla daga),
sofa vel, rækta sálina og sambönd
við fjölskyldu, vini og kunningja
getur skipt sköpum og í öllum til-
vikum þá eru meiri lífsgæði fólgin
í heilbrigðum lífsstíl. Fjölmargar
náttúrulegar lausnir eru svo til sem
geta slegið enn frekar á einkennin
og er þá frekar einstaklingsbundið
hvað virkar og hvað ekki. Því verða
allir að prófa sig svolítið áfram og
gefa sér nokkrar vikur til að finna út
hvort viðkomandi lausn hentar eða
ekki, sama hvað prófað er,“ segir
Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsuráð-
gjafi hjá Artasan.
Femarelle virkar
Halldóra Ósk Sveinsdóttir hefur
fundið fyrir einkennum breytinga-
skeiðsins í þó nokkur ár og hafa þau
farið stigvaxandi með hækkandi
aldri. Í byrjun þessa árs voru ein-
kennin þó orðin þannig að ekki var
lengur við unað. Hún hefur þetta að
segja um Femarelle:
„Þegar að því kom að ég
vildi gera eitthvað í
málunum, hugnaðist
mér ekki að fara á
hormónalyf svo ég
frestaði alltaf að panta
mér tíma hjá lækni.
Einhvers staðar rakst
ég á umfjöllun um
náttúrulyfið Femarelle og
góðar reynslusögur af því. Ég
ákvað að kaupa mér einn pakka
og prufa, það gæti varla skaðað
nokkuð. Eftir 7 til 10 daga inntöku
samviskusamlega kvölds og morgna,
fór ég að finna mun. Líkamsofninn
minn var farinn að kveikja á yfirhita
í tíma og ótíma en það hætti alveg.
Ég vaknaði 4-6 sinnum á nóttu
vegna svita og almenns pirrings en
sef núna mjög vel sem skilar sér í
meiri orku og úthaldi. Fótapirringur
sem hefur hrjáð mig í mjög mörg
ár hefur einnig minnkað til mikilla
muna. Þetta allt þakka ég Femarelle
Recharge töflunum því ef ég á þær
ekki til þá láta einkennin aftur á sér
kræla. Þess vegna get ég sagt með
góðri samvisku að Femarelle virkar.“
Femarelle
sem fyrsta meðferð
Prófessor Andrea Genazzani, for-
seti Evrópuráðs í kvensjúkdóma-
fræðum mælir með Femarelle sem
fyrstu meðferð við einkennum
breytingaskeiðs en það hefur færst
gríðarlega í aukana að konum sé
bent á náttúrulegar leiðir frekar en
taka inn hormóna. Það sem gerir
Femarelle sérstakt er efnasamband,
unnið úr óerfðabreyttu soja, sem
kallast DT56a og viðurkenndar
rannsóknir sýna að það örvar estró-
gennema í staðbundnum vef, slær á
einkenni tíðahvarfa og styrkir bein,
án þess að hafa nokkur neikvæð
áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum.
Virkni Femarelle hefur verið stað-
fest með fjölda rannsókna.
Svitakófin hurfu, svefninn
betri og orkan hefur aukist
Halldóra Ósk Sveinsdóttir hefur fundið fyrir einkennum breytingaskeiðsins í
þó nokkur ár og hafa þau farið stigvaxandi með hækkandi aldri.
Hrönn Hjálmarsdóttir.
Femarelle Recharge 50+
• Slær hratt á einkennin (hitakóf og
nætursviti minnkar)
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur kynhvöt
• Hefur engin áhrif á vefi í brjóstum eða legi
Femarelle Unstoppable 60+
• Inniheldur kalsíum og D3 -vítamín sem eru
nauðsynleg til að styrkja bein
• Stuðlar að heilbrigðri slímhúð legganga
• Eykur liðleika
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku sem stuðlar að andlegu jafnvægi
Femarelle Rejuvenate 40+
• Minnkar skapsveiflur
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur teygjanleika húðar
• Viðheldur heilbrigðu hári
Staðfest
virkni
Góðgerlar sem styrkja meltinguna og vinna gegn
fjölgun Candida sveppsins í meltingarvegi.
Bio-Kult Candéa
Bio-Kult góðgerlar styrkja meltinguna!
Hágæða góðgerlar, heilbrigð bakteríuflóra.
Fæst í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Bio-Kult Original
Bio-Kult Pro-Cyan Bio-Kult Infantis
Öflug blanda góðgerla sem byggir upp
þarmaflóruna og styrkir varnir líkamans.
Styrkir þvagrásina og virkar sem öflug vörn
gegn þvagrásarvandræðum.
Góðgerlar fyrir börn á öllum aldri. Eflir
þarmaflóruna, án allra aukaefna og er bragðlaust.
Bio-Kult-Hamingjan 5x10 copy.pdf 1 10/11/2017 14:30
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 1 . n óv e m b e r 2 0 1 7
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
1
-D
3
3
4
1
E
3
1
-D
1
F
8
1
E
3
1
-D
0
B
C
1
E
3
1
-C
F
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K