Fréttablaðið - 11.11.2017, Síða 52
Upplýsingatæknisvið sér um rekstur og þróun tölvukerfa, ásamt því að þjónusta starfsfólk og eftirlitsskylda
aðila við notkun kerfanna. Samstarf er við bæði innlendar og erlendar eftirlitsstofnanir um ýmis verkefni.
Við leitum að tæknilega sinnuðum einstaklingi með góða þekkingu og reynslu af kerfisrekstri, ríka
þjónustulund og góða öryggisvitund. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi.
Helstu verkefni
• Uppfærsla og rekstur upplýsingatæknikerfa
• Uppsetning og viðhald tölvubúnaðar
• Umsjón með eldvegg, vefsíum og öðrum öryggisbúnaði
• Þjónusta við notendur tölvukerfa
• Annað sem til getur fallið á upplýsingatæknisviði
Menntunar- og hæfnikröfur
• Viðeigandi menntun í kerfisrekstri eða tölvunarfræðum
• Reynsla af rekstri tölvukerfa
• Þekking á umsýslu sýndarumhverfis (t.d. VMware)
• Þekking og reynsla af stjórnun eldveggja og öðrum vörnum netkerfa
• Þekking og reynsla af Microsoft lausnum, s.s. Exchange,
Skype og SCCM kostur
• Þekking á Veeam eða sambærilegum afritunarlausnum kostur
• Þekking á uppsetningu og stillingu gagnagrunna kostur
• Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
KERFISSTJÓRI
Leitum að öflugum
starfsmanni í kerfisumsjón
og þjónustu.
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
THE FINANCIAL SUPERVISORY AUTHORITY, ICELAND
Umsjón með ráðningu hafa Bjarni
Þór Gíslason upplýsingatæknistjóri
(bjarnithor@fme.is) og Árni Ragnar
Stefánsson mannauðsstjóri
(arni@fme.is).
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir
um að sækja um starfið á heimasíðu
Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is eða á
www.starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til og með
27. nóvember nk. Umsókn um starfið
þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu
rökstudd.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita
Óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita er byggðasamlag sveitarfélaganna Grímsnes- og Grafningshrepps, Bláskógabyggðar,
Hrunamannahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Flóahrepps og Ásahrepps sem hefur það hlutverk að annast lögbundin
verkefni byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa auk verkefna sem varða umhverfis- og tæknimál. Verkefni byggðasamlagsins í
umhverfis- og tæknimálum eru margvísleg en þar á meðal er unnið að vatns-, hita-, og fráveitumálum, gatnagerð, viðhaldi og
nýbyggingum húsa, sorpmálum, vinnslu úrgangs og fleira sem til fellur. Starfsaðstaða er á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Starfssvið :
• Verkefnastjórnun og verkeftirlit vegna nýframkvæmda og
viðhaldsmála á sviði umhverfis- og gatnakerfa.
• Ábyrgð á að framkvæmd verkefna sé í samræmi við lög og
reglugerðir.
• Samskipti við opinbera aðila, hönnuði og verktaka.
• Vinna við fráveitumál.
• Vinna við landupplýsingagrunn.
• Vinna við GPS landmælingar.
• Vinna við umhverfismál.
• Áætlanagerð og forgangsröðun verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Byggingafræðingur, -tæknifræðingur eða -verkfræðingur
eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla og þekking á fráveitum og gatnagerð.
• Reynsla og þekking á umhverfismálum.
• Reynsla og þekking á verkefnastjórnun.
• Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.
• Þekking og reynsla af notkun Windows-Office og CAD-hugbúnaðar .
Frekari upplýsingar um starfið veitir Eyþór Sigurðsson í síma 480 5500 á skrifstofutíma.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi
á hæfni viðkomandi í starfið. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2017 á netfangið tsv@utu.is
Hjúkrunarfræðingur
Miðstöð meltingarlækninga, Læknastöðinni
Glæsibæ, óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til
starfa. Starfshlutfall allt að 80%
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið
laeknastodin@laeknastodin.is fyrir 15. nóvember nk.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Ólafsdóttir
deildarstjóri á kristin@laeknastodin.is
Læknastöðin · Álfheimar 74 · 104 Reykjavík
· sími: 5356800 · fax: 5356805
Embætti landlæknis auglýst
laust til umsóknar
Velferðarráðuneytið auglýsir embætti landlæknis laust til
umsóknar. Um embættið fer samkvæmt lögum nr. 41/2007,
um landlækni og lýðheilsu.
Heilbrigðisráðherra skipar landlækni til fimm ára í senn að
fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr.
40/2007. Embættið heyrir undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra.
Umsækjendur skulu hafa sérfræðimenntun í læknisfræði,
þekkingu á sviði lýðheilsu og víðtæka reynslu eða menntun á
sviði stjórnunar. Leitað er að einstaklingi með samskipta- og
leiðtogahæfileika og góða þekkingu og reynslu af rekstri og
stefnumótun. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af
stjórnunarstörfum á sviði heilbrigðisþjónustu.
Landlæknir ber ábyrgð á því að embættið starfi í samræmi við
lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Hann ber jafnframt ábyrgð á því að
rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma embættisins sé í samræmi
við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Hlutverk landlæknis er meðal annars að:
• veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum, fagfólki og almenningi
ráðgjöf og fræðslu um málefni á verksviði embættisins,
• annast forvarna- og heilsueflingarverkefni,
• efla lýðheilsustarf í samvinnu við aðra sem að þeim málum
starfa og styðja við menntun á sviði lýðheilsu,
• vinna að gæðaþróun,
• hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og
heilbrigðisstarfsmönnum,
• hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast með og stuðla að
skynsamlegri lyfjanotkun landsmanna,
• veita starfsleyfi til einstaklinga sem uppfylla skilyrði laga og
reglugerða til notkunar starfsheita löggiltra heilbrigðisstétta,
• stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfsmanna sé í sam
ræmi við kröfur heilbrigðisþjónustunnar á hverjum tíma,
• sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu,
• bera ábyrgð á framkvæmd sóttvarna, sbr. sóttvarnalög,
• safna og vinna upplýsingar um heilsufar og
heilbrigðisþjónustu,
• meta reglulega árangur af lýðheilsustarfi og bera hann
saman við sett markmið,
• stuðla að rannsóknum á starfssviðum embættisins,
• sinna öðrum verkefnum sem honum eru falin samkvæmt
lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða ákvörðun ráðherra.
Skipað verður í embættið frá 1. apríl 2018. Um kjör landlæknis
fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs þar til ný ákvörðun hefur
verið tekin um laun og starfskjör skv. 39. gr. a. laga um rét-
tindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari
breytingum.
Ráðuneytið hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um
embættið.
Upplýsingar um starfið veita Anna Lilja Gunnarsdóttir ráðu-
neytisstjóri (postur@vel.is) og Áslaug Einarsdóttir settur
skrifstofustjóri (aslaug.einarsdottir@vel.is) í síma 545 8100.
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2017. Með umsókn skal
fylgja ítarleg starfsferilsskrá, starfsheiti og kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðko-
mandi uppfylli hæfniskröfur fyrir starfið. Umsóknir skulu sendar
til velferðarráðuneytisins, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík eða á
netfangið postur@vel.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun
liggur fyrir.
Velferðarráðuneytinu, 10. nóvember 2017.
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
1
-B
5
9
4
1
E
3
1
-B
4
5
8
1
E
3
1
-B
3
1
C
1
E
3
1
-B
1
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K