Fréttablaðið - 11.11.2017, Blaðsíða 85
Í dag klukkan þrjú verður opnuð myndlistarsýningin Vits-munaleg munúð í Galleríi Gátt
í Hamraborg 3a í Kópavogi. Þar
verða sýnd verk eftir myndlistar-
konuna Ólöfu Björgu Björnsdóttur
sem útskrifaðist úr málaradeild
LHÍ 2001 eftir að hafa numið bæði
í Kóreu og í Granada á Spáni.
Sýningin er tvískipt. Annars vegar
fjallar hún um þroskaþrep út frá
ákveðnu kerfi sem snýst um það
að breyta og bæta sjálfan sig og
gefa áfram þær gjafir í einhverju
formi til heimsins. Hins vegar
gerir myndlistarkonan dulúð-
legar tilraunir til að kalla fram
kynorku. Málverk & nuddbekkur
er í aðalrýminu og má segja að
erótísk tilraunavinnustofa verði
í hliðarrými. Sá hluti sýningar-
innar verður breytilegur á meðan
á sýningartímabilinu stendur, allt
eftir dagsformi listakonunnar.
Sýningin verður opin miðvikudaga
til sunnudaga milli 15 og 18 og
stendur til 3. desember.
Vitsmunaleg
munúð í Gátt
Jólahlaðborð á vegum vinnu-veitenda er á undanhaldi í Nor-egi. Jólahlaðborðið hefur verið
ein aðalhátíð starfsmanna í áratugi.
Stórfyrirtæki í iðnaði þar í landi eru
hætt að bjóða starfsmönnum á jóla-
hlaðborð en bjóða þeim til útlanda
í árshátíðarferð þriðja hvert ár. Eig-
endur fyrirtækisins taka á hverju ári
peninginn sem færi í jólahlaðborð
til hliðar fyrir utanlandsferð, að því
er NRK vefmiðill greinir frá. „Enginn
saknar jólahlaðborðsins,“ segir
forstjórinn. Annað fyrirtæki býður
starfsfólki frekar á jólasýningu í
leikhúsi þar sem léleg mæting var á
jólahlaðborðið undanfarin ár.
Skoðanakönnun sem gerð var á
síðasta ári í Noregi upplýsti að sex
af hverjum tíu fara í einhvers konar
jólamat. Einnig kom fram að færri
og færri kjósa hefðbundið jólahlað-
borð. Þá hafa hótel og veitingastaðir
fundið fyrir minni áhuga á jólahlað-
borðum á undanförnum árum. „Það
hafa orðið breytingar í þá átt að
mörg fyrirtæki bjóða frekar jólamat
í hádegi á virkum degi án áfengis,“
segir framkvæmdastjóri NHO Reise-
liv í samtali við NRK.
Hið hefðbundna jólahlaðborð
hefur verið eins frá síðari heims-
styrjöldinni í Noregi. Í dag er margt
nýtt í boði og fólk er mjög upptekið
í desember. „Fólk er orðið leitt á
þessum hefðbundnu jólahlað-
borðum þar sem eru mismunandi
kræsingar og öllu blandað saman.“
Jólahlaðborð
á undanhaldi
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, gaf Hollvinum Grensás landslið-
istreyjuna frægu sem verður boðin upp í dag. MYND/VILHELM
Hinn árlegi jólabasar Grensáss verður haldinn í safnaðarheimili Neskirkju
frá kl. 13-17. Tilvalið er að mæta
með fjölskylduna, eiga góða stund
og styðja gott málefni í leiðinni.
Að þessu sinni verður sérstakur
viðburður á jólabasarnum þar sem
landsliðstreyja forseta Íslands,
Guðna Th. Jóhannessonar, verður
boðin upp en hann gaf Hollvinum
Grensásdeildar treyjuna sína
áritaða til styrktar félaginu. Einn-
ig er hægt að bjóða í treyjuna á
vefnum www.grensas.is.
Á basarnum verður hægt að fá
margs konar handunna listmuni,
ullarvörur, skinnavörur, kransa
og jólaljós, sem og nýbakaðar
tertur og brauð. Mörg fyrirtæki
gefa veglega happdrættisvinninga
og liðsmenn Sniglanna, vélhjóla-
samtaka lýðveldisins, baka vöfflur
og hita súkkulaði. Allur ágóði af
jólabasarnum fer í kaup á nauð-
synlegum búnaði og endurbætur á
allir aðstöðu fyrir skjólstæðinga og
starfsfólk Grensáss.
Jólabasar Grensáss í dag
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
Lagersala
Í dag kl. 10-16
Tískufatnaður og heimilsvara
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 1 1 . n óv e m b e r 2 0 1 7
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
1
-B
A
8
4
1
E
3
1
-B
9
4
8
1
E
3
1
-B
8
0
C
1
E
3
1
-B
6
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K