Fréttablaðið - 11.11.2017, Síða 88
Það er gaman að fara á skiptimarkað með dótið sitt.
Skiptimarkaður verður haldinn í Iðnó á sunnudaginn milli klukkan 12 og 14 með leikföng og barnaföt. And rými stendur
fyrir markaðnum. Á Facebook-síðu Andrýmis
segir:
„Hugmyndin er sú að þú leggir til þá hluti
sem börnin þín þurfa ekki lengur og þú getur
í staðinn tekið með þér heim það sem þú og
börnin þín getið nýtt ykkur.
Reglurnar eru einfaldar:
1. Átt þú bækur, skó, föt, leikföng eða eitthvað
annað sem börnin þín þurfa ekki lengur?
Vinsamlegast komdu með það/þessa hluti,
helst flokkaða eftir stærð.
Skipt á leikföngum og fatnaði
Með nýfallinni mjöll er orðið jólalegt um að litast þótt enn séu sex vikur til
jóla. Þó er ekki ráð nema í tíma sé
tekið að huga að jólabakstrinum.
Kökubakstri fylgir ómótstæðileg
angan og hlýja sem gerir heimilis-
lífið svo yndislega ljúft og notalegt.
Því er tilvalið að hefja smáköku-
bakstur jólanna um helgina með
einni eða tveimur smákökusortum
eða þá að skreyta piparkökuhús,
sem kætir ekki síst blessuð börnin
í aðdraganda jóla. Það þarf heldur
ekki að vera neitt flókið. Hægt er
að kaupa tilbúin piparkökuhús
í verslunum, sem auðvelt er að
setja saman og skreyta síðan af
hjartans list með glassúr, litríku
sælgæti, brjóstsykri, sykurpúðum,
karamellum, smartís eða hverju
sem hugurinn girnist. Afraksturinn
mun gleðja hug og hjarta, og færa
okkur örlítið nær jólum.
Skreytum hús!
2. Fannst þú eitthvað sem þú vilt fyrir börnin
þín? Þér er velkomið að taka það heim!
3. Eigðu góðar stundir með góðum félagsskap!
Með því að mæta með föt eða leikföng til
skiptanna tryggjum við að gömlu hlutirnir
þínir komist til nýrra eigenda, annaðhvort
hjá öðrum gestum eða Rauða krossinum. Við
athugum ekki eða teljum það sem þú tekur
með. Þér er frjálst að koma með eins mikið eða
lítið og þú vilt.
Upplýsingar um aðgengi er að finna á www.
andrymi.org.
Við hefðum kannski kynnst risa-
eðlum betur ef loftsteinninn hefði
lent annars staðar á jörðinni. MYND/
NORDICOPHOTOS/GETTY
Ný kenning heldur því fram að ef loftsteinninn sem skall á jörðinni og útrýmdi risaeðl-
unum hefði lent ann ars staðar á
jörðinni gætu þær hugsanlega hafa
lifað náttúruhamfarirnar af.
Samkvæmt nýrri rannsókn
japanskra vísindamanna hefði loft-
steinninn ekki valdið útrýmingu
75% af öllu lífi á jörðinni ef hann
hefði ekki skollið á Yuca tan-skaga
við Mexíkóflóa. Vísindamennirnir
halda því fram að loftsteinninn hafi
varpað hráolíu og vetniskolefni út í
grunnan sjó, sem hefði svo kviknað
í. Við það hafi gríðarlegt magn af
sóti farið út í and rúmsloftið, sem
hafi valdið mikilli kólnun og leitt til
útrýmingarinnar.
Rannsakendur komust að þeirri
niðurstöðu að á þessum tíma hafi
um 13 prósent af yfirborði jarðar
haft nægilegt magn af lífrænu efni til
að framleiða nægilega mikið sót til
að útrýma 75 prósentum af öllu lífi.
Því segja rannsakendur að ef loft-
steinninn hefði lent á hinum 87 pró-
sentunum af yfirborði jarðar gætu
risaeðlurnar enn verið á lífi í dag.
Eðlilega eru ekki allir vísinda-
menn sammála þessu. Sumir þeirra
telja að sótið hafi ekki verið lykillinn
að útrýmingu risaeðlanna, né að það
séu nægilegar sannanir fyrir því að
það hafi verið svo mikið lífrænt efni
þar sem loftsteinninn lenti að það
hafi framleitt svona mikið sót.
Það eru ýmsar aðrar kenningar til
um hvað olli útrýmingunni í raun
og veru, en flestir vísindamenn eru
sammála um að lendingarstaður
loftsteinsins hafi ráðið miklu um hve
mikilli eyðileggingu hann olli.
Risaeðlur hefðu
getað lifað
loftsteininn af
Laugavegi 63 • Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
VANDAÐAR YFIRHAFNIR
FRÁ HEIMSÞEKKTUM FRAMLEIÐENDUM
CINZIA ROCCA - CREENSTONE OG FL.
VORKOMAN Í NÁND
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
skoðið laxdal.is/yfirhafnir
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . N ÓV E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
1
-D
3
3
4
1
E
3
1
-D
1
F
8
1
E
3
1
-D
0
B
C
1
E
3
1
-C
F
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K