Fréttablaðið - 11.11.2017, Side 91
Við erum með harðparket, viðarparket, korkparket og vínylparket í miklu úrvali og
eigum í heildina hátt í 150 ólíkar
parkettegundir. Þá er von á um
fimmtíu tegundum til viðbótar á
næstu vikum og af því eru rúmlega
tíu tegundir af vínylefnum,“ segir
Kristján Erlendsson, deildarstjóri í
gólfefna- og timburdeild Bauhaus.
Hann segir harðparketið vinsælast
og hefur það aðallega að gera með
góða endingu og hagstætt verð.
Aðspurður segir hann það gert
úr svokölluðum hdf-kjarna. Efsta
lagið er svo plasthúðuð mynd sem
er pressuð á kjarnann og fæst í
hinum ýmsu litbrigðum.
Viðarparketið þykir að sögn
Kristjáns fínast en það er eins og
nafnið gefur til kynna úr gegn-
heilum við. „Þá erum við að tala
um lifandi efni sem hefur sinn
sjarma.“
Vínylparketið er hins vegar slit-
þolnast. „Það er hundrað prósent
vatnshelt og slitþolnara en bæði
harð- og viðarparket til samans.
Það fæst bæði með viðar- og flísa-
útliti og hentar til að mynda vel
á bað, eldhús og önnur votrými.
Það hefur auk þess þann kost að
vera mjúkt undir fæti og er hlýlegt
að ganga á því,“ útskýrir Kristján.
Hann segir vínylparketið sérstak-
lega vinsælt hjá fólki í hótel- og
fyrirtækjarekstri enda hentar það
vel þar sem umgangur er mikill en
það er auk þess talsvert tekið inn á
almenn heimili.
Í ljósi þess mikla úrvals sem
boðið er upp á segir Kristján marga
upplifa valkvíða þegar þeir koma
á staðinn. Flestir eru þó ánægðir
með að geta lagað valið nákvæm-
lega að smekk. „Við reynum líka að
leiðbeina eftir bestu getu bæði við
val á parketi og tilheyrandi undir-
lagi og fylgihlutum."
Aðspurður segir Kristján
parketið koma frá viðurkenndum
framleiðendum víðsvegar að.
„Harðparketið er frá þýsku fram-
leiðendunum Logoclic og Parador
en auk þess eigum við von á nýjum
týpum frá Egger. Viðarparketið er
frá Parador og Timberman sem
einnig er með korkparket og
vínyllinn er frá Parador, b!design
og Timberman. „Þá erum við búin
að fá inn 3D viðarklæðningar
frá Wodewa í Þýskalandi sem
koma einstaklega vel út. Þær fást
í ýmsum viðartegundum eins
og hnotu, kirsuberjavið, furu og
nokkrum eikarútfærslum.
Kristján segir sjón sögu ríkari og
býður alla velkomna í timburdeild
Bauhaus.
Langmesta
parketúrval
landsins
Bauhaus býður upp á langmesta parketúrval
landsins. Þar fæst parketið í öllum verð- og
gæðaflokkum og ættu allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Sjón er sögu ríkari.
Harðparketið er vinsælast.
Í versluninni
er mikið
úrval í ýmsum
þykktum og
styrkleika-
flokkum.
Hér getur að líta 12 mm harðparket frá Logoclic.
Hér má sjá Wodewa 3D viðarklæðningar á veggi.
Kristján Erlendsson Deildarstjóri Gólfefni Timbur Bauhaus
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 1 . n óv e m B e r 2 0 1 7 PARKET
1
1
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:1
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
1
-B
F
7
4
1
E
3
1
-B
E
3
8
1
E
3
1
-B
C
F
C
1
E
3
1
-B
B
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K