Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 2

Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 2
Við undirbúum nú opna samkeppni um allt þetta svæði sem fer í gang í byrjun nýs árs. Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnarfjarðar Veður Í dag verður vestanstrekkingur með kröftugum éljagangi. Á austanverðu landinu rofar til og gæti séð til sólar. Hiti um frostmark. sjá síðu 34 Valdarán í Simbabve Mikil óvissa ríkir í Simbabve eftir að hershöfðingjar landsins skipuðu sveitum sínum að setja Robert Mugabe, forseta landsins, í stofufangelsi. Ríkis­ útvarp Simbabve var jafnframt hertekið og í ávarpi sagði leiðtogi hersveitanna að um væri að ræða aðgerð til að hreinsa út „glæpamenn“ í æðstu stöðum. Þessar stúlkur létu sér fátt um finnast þegar þær rákust á einn af mörgum skriðdrekum á götum höfuðborgarinnar Harare. Fréttablaðið/aFP 2x10 PI PA R\ TB W A • S ÍA Láttu mæla í þér sjónina Gleraugnaverslunin þín MJÓDDIN S:587 2123 FJÖRÐUR S: 555 4789 NýsköpuN Sprotafyrirtækið Spretta, í eigu Stefáns Karls Stefánssonar leik- ara, hefur óskað eftir lóð við Strand- götu í Hafnarfirði undir gámaþorp og vill rækta þar sprettur (e. micro- greens) og salat. Vill fyrirtækið gera þriggja til fimm ára samning og hefur Stefán Karl óskað eftir fundi með bæjaryfirvöldum sem allra fyrst. Forsvarsmenn Sprettu, þau Stefán Karl og Soffía Steingrímsdóttir, sendu Hafnarfjarðarhöfn bréf þann 7. nóvember og óskuðu eftir sam- starfi vegna tilraunaverkefnisins. Í því segjast þau vilja rækta spretturn- ar og innan tíðar salat í endurunnum frystigámum á lóðinni Strandgötu 86 fyrir veitingahús og almenning. Lóðin sé á milli „gamla Slipphússins“ og „gamla Íshússins“ við höfnina og að þau telji hana geta hentað verk- efninu um matvælaræktun í borg (e. urban farming) afar vel. „Í gámaþorpi því sem við mynd- um vilja reisa við höfnina yrði gætt vandlega að útliti og aðkomu allri. Frágangur lóðar yrði á okkar ábyrgð og í fullri samvinnu við yfirvöld. […] Þarna gæti orðið til vísir að matvæla- markaði í Hafnarfjarðarbæ þar sem hugsa mætti sér að um helgar væri hægt að nálgast hafnfirska mat- vöru og kaffisölu í hjarta bæjarins,“ segir í bréfinu og þar tekið fram að fyrirmyndir verkefnisins séu sóttar meðal annars til Bandaríkjanna og Bretlands. Erindi Sprettu var tekið fyrir á fundi hafnarstjórnar síðasta föstudag og Lúðvík Geirssyni hafnarstjóra þá falið að ræða nánar við forráðamenn félagsins. „Hafnarstjórnin hefur ekki tekið neina afstöðu og kallaði eftir frekari gögnum og upplýsingum. Þar er málið statt núna,“ segir Lúðvík í sam- tali við Fréttablaðið. „Þetta er lóð sem höfnin á og er á mikilvægum stað hérna sem tengir saman miðbæjarsvæðið og höfnina og við höfum haldið eftir, því að bæði skipulag og nánari hugmynda- vinna um framtíð svæðisins eru ófrágengin. Við undirbúum nú opna samkeppni um allt þetta svæði sem fer í gang í byrjun nýs árs og á meðan erum við ekki að úthluta lóðinni en þarna er Spretta einungis að biðja um tímabundin afnot,“ segir Lúðvík. Ekki náðist í Stefán Karl eða Soffíu Steingrímsdóttur þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir. haraldur@frettabladid.is Stefán Karl vill lóð undir gámaþorp í Hafnarfirði Fyrirtækið Spretta vill lóð við Strandgötu í Hafnarfirði og rækta þar sprettur og salat. Stefán Karl Stefánsson hefur óskað eftir fundi sem allra fyrst með bæjar- yfirvöldum. Stefnt er að því að rækta grænmetið í endurunnum frystigámum. Stefán Karl Stefánsson, leikari og eigandi Sprettu ehf. Fréttablaðið/andri Velferð Eigandi Trampólíngarðsins segist ekki kannast við að óvenju mörg slys hafi orðið þar frá því að fyrirtækið opnaði dyr sínar fyrir þremur mánuðum. Fréttablaðið greindi frá því í gær að um fimmtíu manns hefðu leitað á Landspítala undanfarið eftir hopp og skopp í Trampólíngarðinum. Þar á meðal eru mörg alvarleg beinbrot. „Það hafa orðið sex alvarleg slys hjá okkur og sjö minniháttar,“ sagði Örn Ægisson, eigandi Skypark, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. „Ég veit ekki hvaðan þessar tölur koma.“ Um 24 þúsund manns hafa komið í Trampólíngarðinn frá því að hann var opnaður. Örn segir það ekki svo að of mörgum sé hleypt á tram- pólínin í einu. „Ég held að við séum að stjórna þessu eins og þetta á að vera,“ segir Örn. – ebg Kannast ekki við fjölgun trampólínslysa stjórNmál Skipting ráðuneyta er nú rædd meðal þeirra flokka sem eiga í formlegum viðræðum um myndun ríkisstjórnar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leggja Framsóknarmenn ríka áherslu á að fá efnahagsmálin til sín vegna áherslu flokksins á kerfisbreytingar í fjár- málakerfinu. Vegna snjóboltaáhrifa af kröfu Vinstri grænna um að Katrín Jakobsdóttir verði forsætisráðherra, er fjármálaráðuneytið hins vegar óumsemjanlega frátekið fyrir Bjarna Benediktsson. Því hefur komið til tals að fjölga ráðuneytum þannig að fjár- málunum verði skipt upp í tvö ráðu- neyti og þannig horfið aftur til þess fyrirkomulags sem tíðkaðist fyrir árið 2009 þegar ríkisfjármálin ann- ars vegar og efnahags- og viðskipta- málin hins vegar voru í sitthvoru ráðuneytinu. Í ríkisstjórn Geirs H. Haarde, sem fór frá í kjölfar efnahags- hrunsins, hafði Sjálfstæðisflokkurinn fjármálaráðuneytið sem Árni Mat- hiesen stýrði en Björgvin G. Sigurðs- son var ráðherra Samfylkingarinnar í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Verði þessi uppstokkun að veru- leika má ætla að málefni sem tengjast annars vegar Seðlabankanum og hins vegar kjaramálunum verði í fjármála- ráðuneytinu en uppstokkun fjár- málakerfisins og málefni bankanna verði í hinu nýja ráðuneyti. Fjölgun ráðuneyta yrði þá einnig til hagsbóta fyrir Sjálfstæðisflokkinn, enda hefði fjölgunin líklega í för með sér að flokkurinn fengi ekki aðeins fimm heldur sex ráðuneyti. – aá Ræða fjölgun ráðherra Flokkarnir ræða skiptingu ráðuneyta. 1 6 . N ó V e m b e r 2 0 1 7 f I m m t u D A G u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A ð I ð 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 B -4 B 8 4 1 E 3 B -4 A 4 8 1 E 3 B -4 9 0 C 1 E 3 B -4 7 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.