Fréttablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 8
Niðurstöðurnar þar
eru í stuttu máli þær
að sú virkni sem haldið er
fram að þessi efni hafi, byggir
ekki á sterkum vísindalegum
grunni.
Vilhelm Grétar
Ólafsson, lektor í
tannfyllingum og
tannsjúkdóma-
fræði við Tann-
læknadeild HÍ
NeyteNdur „Það er alls ekki hægt
að mæla með þessum tannhreinsi-
vörum þar sem virkni þeirra er alls
ekki sönnuð, hvorki hvað forvarnir
né tannhvíttun varðar, né hafa þær
sýnt sig sem öruggar,“ segir Vilhelm
Grétar Ólafsson, tannlæknir og
lektor við tannlæknadeild Háskóla
Íslands, um kolatannhvíttunar-
vörur, nýjasta æðið í hvíttun tanna
bæði hér og erlendis. Norræna tann-
lækningastofnunin, NIOM, varaði
nýverið við því að fólk burstaði
tennur sínar upp úr kolum, hvort
heldur sem er í púður- eða tann-
kremsformi, og sagði markaðssetn-
ingu villandi og neytendur blekkta.
Vörurnar eru fyrst og fremst mark-
aðssettar til að höfða til ungra
neytenda á samfélagsmiðlum og á
netinu.
Hér á landi er kolatannkrem og
-púður í boði frá nokkrum fram-
leiðendum sem að sjálfsögðu full-
yrða allir um yfirburði eigin vöru.
Kolin, sem oft eru kol unnin úr kók-
oshnetuskeljum eða bambus, eru
markaðssett sem 100% náttúruleg,
skaðlaus leið til að hvítta tennur og
kosta hátt í fjögur þúsund krónur
einingin. En þrátt fyrir sannfær ingar-
kraft framleiðenda og svokallaðra
áhrifavalda á samfélagsmiðlum eru
sérfræðingar og vísindamenn efins.
Vilhelm Grétar hefur í gegnum
tíðina fjallað töluvert um tann-
lýsingu og tannlýsingarvörur sem
seldar eru í lausasölu og komist að
því að margar þeirra eru gagnslaus-
ar. Aðspurður um kolin vísar hann
í nýja samantektargrein sem birtist
í Journal of the American Dental
Association (JADA), eins allra virt-
asta vísindarits greinarinnar.
„Niðurstöðurnar þar eru í stuttu
máli þær að sú virkni sem haldið er
fram að þessi efni hafi, byggir ekki á
sterkum vísindalegum grunni. Veru-
legur skortur er á traustum rann-
sóknum á þessum efnum og því er
ekki hægt að halda því fram að þau
standi jafnfætis flúortannkremi
hvað hreinsun og forvarnir varðar,
né að þau lýsi tennur til jafns við
þau tannhvíttunarefni, s.k. peroxíð-
efni, sem hafa sannaða virkni.“
Margir sérfræðingar hafa bent á
að hvíttunaráhrifin sem notendur
telja sig upplifa megi að mestu rekja
til þess að kolin liti tannholdið og
tennurnar virðist því hvítari í sam-
anburði.
Vilhelm Grétar segir að í grein-
inni í JADA hafi komið fram frá-
sagnir af dökknun tannholds þegar
kolaagnir setjist í tannhold not-
enda. Vilhelm segir það óæskilega
aukaverkun. Alls ekki sé hægt að
mæla með notkun tannhirðuvara
unnum úr þessum kolum.
Í norska fréttaskýringaþætt-
inum Helsekontrollen á TV2 var
kolatannhvíttunaræðið tekið fyrir
nýlega. Þar var Jon E. Dahl, for-
stöðumaður NIOM, ómyrkur í máli
og sagði kolin ekki hvítta tennur
heldur einmitt skapa þessa tálsýn
með andstæðu tannholds og tanna.
„Notendur eru einfaldlega blekkt-
ir,“ var haft eftir honum í þættinum
og fleiri sérfræðingar voru á sama
máli. Vörurnar væru varhugaverðar
og gagnslitlar ef ekki gagnslausar til
þeirra töfralausna sem þær boðuðu.
Inga B. Árnadóttir, tannlæknir
og prófessor við tannlæknadeild
Háskóla Íslands, tekur aðspurð
undir varnaðarorð kollega sinna hjá
NIOM sem birtust í norska þætt-
inum. mikael@frettabladid.is
Tannlæknar vara við kolahvíttunaræði
Nýjasta æðið er að bursta tennur sínar upp úr kolum í púður- eða tannkremsformi í von um hvítari tennur. Vörurnar eru markaðssettar
fyrir ungt fólk á samfélagsmiðlum. Blekking, segja sérfræðingar og íslenskir tannlæknar segja ekki hægt að mæla með notkun efnanna.
Á YouTube má finna ótal myndbönd af lífsstílsbloggurum prófa kolavörur sem eiga að hvítta tennur. SkjÁSkoT/YouTube
SUBARU LEVORG
ÖRUGGUR FJÓRHJÓLADRIFINN
VALKOSTUR
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
SUBARU LEVORG PREMIUM
bensín, sjálfskiptur. Eyðsla 6,9 l/100 km*
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
5
1
0
0
S
u
b
a
ru
L
e
v
o
rg
5
x
2
0
l
æ
k
k
a
ð
v
e
rð
n
ó
v
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
EyeSight öryggiskerfi Subaru er það fullkomnasta sem völ er á.
Kerfið aðstoðar ökumenn við að koma í veg fyrir árekstur.
EyeSight öryggiskerfið tengir saman tvær myndavélar sem staðsettar eru innan við framrúðuna. Myndavélarnar senda
litmyndir í þrívídd til tölvu sem kennt hefur verið að bera kennsl á lögun hluta, greina hraða og fjarlægðir með næstum
sömu nákvæmni og mannsaugað býr yfir. EyeSight kerfið gerir einnig greinarmun á gangandi vegfarendum, reiðhjólum,
mótorhjólum og bílum auk þess að skynja hemlaljós svo eitthvað sé nefnt.
NOKKRIR LEVORG Á SÉRKJÖRUM
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST!
VERÐ AÐEINS: 4.390.000 KR.
1 6 . N ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m t u d A G u r8 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
B
-8
6
C
4
1
E
3
B
-8
5
8
8
1
E
3
B
-8
4
4
C
1
E
3
B
-8
3
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K