Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 30

Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 Skósíðir kjólar og leðurfatnað-ur eru lýsandi fyrir klæðaburð Estherar sem leggur mikið upp úr fötum og finnst gaman að leika sér með stíla og samsetningar. „Ef ég ætti að lýsa stílnum mínum svona dagsdaglega þá myndi ég segja að ég væri að blanda saman stílum frá fimmta og áttunda ára- tugnum,“ segir hún og viðurkennir að sækja sér fyrirmyndir í söng- konur, bæði hvað varðar raddbeit- ingu, val á tónlist og klæðaburð. „Ég held að ég sé svona Stevie Nicks og Marlene Dietrich blanda, mér finnst gaman að svona rokkuðum út í kántrí stíl, samanber hatturinn hennar Stevie Nicks en mér finnst mjög gaman að höttum og húfum. Svo finnst mér líka gaman að leika mér með karlmannlegan stíl frá fjórða áratugnum og sæki þá í Marlene Dietrich, jakkaföt, hatta, skyrtur og vesti og svo framvegis. Svo á ég líka til að vera mjög klass- ísk og finnst þá gaman að skoða hvað Gwyneth Paltrow er að pæla og hvernig hún klæðir sig.“ Esther kaupir fötin sín víða og getur gleymt sér í að gramsa á mörkuðum eftir fjársjóðum. „Ég fer mikið í Rauðakrossbúðirnar og á markaði, en svo er ég líka mjög hrifin af Karen Millen. Ég verslaði mikið í Nostalgíu á sínum tíma og fleiri búðum sem seldu notuð föt og finnst líka æði að kíkja í Kjóla og konfekt og sjá hvað er þar á boðstólum. Svo er ég mjög hrifin af hönnun Birtu Björnsdóttur í Júníform, hún er í heimsklassa í hönnun.“ Yfirhafnir eru veikleiki sem hún viðurkennir fúslega og þá helst leður og skinn. „Ég kaupi samt aldrei nýjar skinnvörur heldur eitt- hvað sem einhver annar hefur átt og keypt fyrst. Ég keypti til dæmis einu sinni selskinnsjakka í Rauða krossinum á heilar 3.000 krónur og notaði hann þangað til hann nán- ast datt í sundur. Svo á ég skósíðan pels sem ég keypti á flóamarkaði í Svíþjóð fyrir tveimur árum og hann kemur sér vel þegar fer að kólna. “ Esther kaupir föt helst á útsölum og erlendis og er Búdapest í uppáhaldi þar sem hún segir verslanirnar flottar og hagstætt verð. Hún viður- kennir samt að henni finnist ekki alltaf gaman að kaupa föt. „Það getur verið skemmtilegt, en líka mjög leiðinlegt! Ég þarf að vera í vissu skapi til að versla. Ég er ekki góð í verslunarferðum erlendis, hef litla þolinmæði í það. Sendu mig frekar inn á safn!“ Hún segir jarðarliti vera í uppá- haldi en svo eigi hún mikið svart, eins og flestir Íslendingar. „Ég á samt alveg til að vera í lit. Uppá- haldsskórnir mínir eru eldrauðir úr Kjólum og konfekti og svo keypti ég mér græna tösku í Karen Millen í sumar og grænan kjól í stíl.“ Rautt og grænt leiðir hugann óneitanlega að jólunum og Esther er komin á kaf í undirbúning. „Nú er ég á fullu í að undirbúa Hnallþórujólin okkar Björgvins Franz sem verða í Gafl- araleikhúsinu þann 7. desember og þar verð ég í skemmtilegum fötum frá ýmsum tímabilum. Ég fer líka heim á Austurlandið og syng í Tónlistarmiðstöð Austur- lands 3. desember. Síðan erum við Hlynur bróðir minn og fleiri góðir kappar að undirbúa tónleika af diski sem við gáfum út og heitir Letters and Tattletales, en Hlynur er fluttur heim eftir að hafa búið í Noregi svo við erum ólm í að spila saman aftur.“ Esther sækir innblástur til Stevie Nicks, söngkonu Fleetwood Mac, bæði í tónlistinni og tískunni. Græna taskan frá Karen Millen pass- ar vel við svörtu fötin sem Esther viðurkennir að hún eigi aðeins of mikið af eins og þorri Íslendinga. Rauði leðurjakkinn frá Ralph Lauren er í miklu uppáhaldi en hann var keyptur í verslun með notaða merkjavöru. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@365.is Framhald af forsíðu ➛ Smart Jólaföt, fyrir smart konur Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Netverslun á tiskuhus.is Blúndukjóll Kr. 9.900.- Litir: svart, dökkblátt Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Blúndutoppar Kr. 7.990.- Litir: rautt, svart Bolero peysa Kr. 3.900.- Litur: svart Glæsilegur þýskur náttfatnaður Bláu húsin v/ Faxafen. sími 553 7355. www.selena.isselena undirfataverslun • Náttföt • Náttkjólar • Sloppar 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N ÓV E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 B -9 F 7 4 1 E 3 B -9 E 3 8 1 E 3 B -9 C F C 1 E 3 B -9 B C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.