Fréttablaðið - 16.11.2017, Síða 34
Þótt þrettán ár séu liðin frá því hætt var upptökum á Friends-þáttunum eru þeir
sýndir víða, meðal annars hér
á landi á Stöð 3. Svo virðist sem
kynslóð eftir kynslóð horfi á þætt-
ina þrátt fyrir að nútímatækni
eins og Internet og snjallsímar séu
ekki þekkt fyrirbæri í lífi vinanna
sex. Aðdáendur féllu strax fyrir
náttfötunum sem seldust upp fyrr
á þessu ári þegar þau komu fyrst
á markað. Nú eru komnar nýjar
gerðir sem eru ekki síður vinsælar
en fyrri sendingin.
Nýtt vinaæði
Margir hafa póstað myndum
af sér í Friends-náttfötunum á
samfélagsmiðlum. Bresk dag-
blöð hafa sagt frá þessu nýja æði,
meðal annars The Sun, Metro,
Redonline og fleiri. Nýjustu
Friends-náttfötin eru með slag-
orðinu „Let’s go to Central Perk“
og eru til í nokkrum útgáfum.
Þetta mikla æði kom mörgum á
óvart enda langt síðan Friends-
þættirnir voru gerðir. Stuttu eftir
að Primark póstaði myndinni af
nýju náttfötunum fyrir nokkrum
dögum voru strax komin á annað
hundruð þúsund „like“ á mynd-
ina. Þá hefur fólk taggað vini
sína í gríð og erg um leið og þeir
benda á að allir góðir vinir þurfi
nauðsynlega að eiga ein svona
náttföt.
Ekki á náttfötunum út í búð
Mörgum finnst þægilegt að nota
náttföt sem heimaklæðnað á
letidögum. En hvenær er í lagi
að ganga í náttfötum? Daily
Mail ræddi við sérfræðinginn
William Hanson til að spyrjast
fyrir um það eftir að tvær dömur
sáust ganga um matvöruverslun
klæddar náttfötum um miðjan
dag. Sérfræðingurinn segir að það
sé ekki allt í lagi að vera á nátt-
fötunum úti í búð, nema viðkom-
andi hafi strokið af sjúkrahúsi en
það er svo sem ekki í lagi heldur.
„Enginn ætti að láta sjá sig á nátt-
fötunum nema sá sem deilir með
þér svefnherbergi,“ segir hann.
Ekki er langt síðan skólayfir-
völd í Bretlandi þurftu að banna
foreldrum að vera í náttfötum
þegar þau komu með börnin sín
í skólann á morgnana. Hanson
segir að það sé ekki heldur æski-
legt að mæta til morgunverðar
með vinum sínum á náttfötunum
ef maður fær að gista. Hann vill
meina að fólk eigi hvorki að sofa
nakið eða í nærfötum einum
klæða. Eina undantekningin er
ef fólk er á hitabeltiseyju eða
þar sem er mjög heitt í veðri á
nóttunni. Bæði konur og karlar
eiga að vera í fallegum náttfötum
í rúminu, maður á alltaf að gæta
að virðingu gagnvart sjálfum sér,“
segir sérfræðingurinn.
Jólanáttfötin
vinsæl
Í Bretlandi kallast
náttföt pyjamas en
orðið er komið frá
Indlandi og er fyrst þekkt
í Bretlandi á sautjándu öld.
Fyrir þá sem ætla að leita að
náttfötum í Bandaríkjunum
er gott að vita að þar í landi
er orðið skrifað pajamas.
Þótt náttföt hafi í fyrstu
aðeins verið fyrir karla
breyttist það síðar. Talið
er að Coco Chanel hafi
verið brautryðjandi í
hönnun náttfata á konur.
Hún setti á markað
glæsilega hönnuð silki-
náttföt með buxum fyrir konur í
kringum 1920.
Um þessar mundir eru jólanátt-
fötin að koma í verslanir. Mörgum
finnst nauðsynlegt að eiga ein slík
ekki síður en jólapeysu.
Náttfataæði
í Bretlandi
Stórverslunin Primark hefur sett á markað náttfatnað
sem merktur er með hinu fræga kaffihúsi úr þáttun-
um Friends, Central Perk. Eftir að Primark setti mynd
af náttfötunum á Instagram varð allt vitlaust.
Svo virðist sem vinirnir í bandarísku þáttunum Friends fari aldrei úr tísku.
Þessi renna út í Primark í Bretlandi.
Það hefur verið
gagnrýnt í Bretlandi
að fólk fari á náttfötunum
út í búð, einnig þegar það
fer með börnin sín í
skólann. Stehmann buxurnar
eru komnar aftur!
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Flott jólaföt, fyrir flottar konur
365.is
1817
2.590 KR.
SMS+11GB
LÁTTU EKKI SÍMANN
PLATA ÞIG 365 er á sama farsímakerfi ogSíminn en á mun lægra verði
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N Óv E m B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
B
-7
7
F
4
1
E
3
B
-7
6
B
8
1
E
3
B
-7
5
7
C
1
E
3
B
-7
4
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K