Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 42

Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 42
Breytingin á Lupitu var ekki gerð af einhverju hatri heldur mun frekar af fáfræði þótt það sé engin afsökun. Lindex hefur verið vel tekið hér á landi. Nýjasta búðin er á Akranesi. Væri ekki upplagt að fá sér glitrandi skó fyrir jólaveislurnar eða jólahlað- borðið? Tískan er sparileg um þessar mundir. Löng röð myndaðist fyrir utan verslunina fyrir opnun. Verslunin Lindex var opnuð nýlega á Akranesi. Mikill fjöldi fólks kom í verslunina fyrsta daginn og er áætlað að um 15% bæjarbúa hafi komið í Lindex þennan dag. Lindex er fyrsta tískuvörukeðjan sem opnar verslun á Skaganum. „Við erum í skýjunum yfir þessum frábæru móttökum sem fóru fram úr okkar björtustu vonum. Við erum gríðar- lega þakklát fyrir hvernig til hefur tekist og hlökkum til framhaldsins hér á Vesturlandi,“ segir Lóa Dag- björt Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi. Við opnun hverrar Lindex verslunar er veittur styrkur að vali starfsfólks sem er ákveðið hlutfall af sölu á opnuninni en að þessu sinni hlýtur Team Rynkeby styrkinn að upphæð 400 þús. kr. og gengur hann óskertur til Styrktar- félags krabbameinssjúkra barna. Fullt hús hjá Lindex Dolce&Gabbana eiga heiðurinn af þessum fögru skóm. Glitrandi skór setja mikinn svip á heildarútlitið og passa við nær allan fatnað, hvort sem um er að ræða kjóla, pils eða buxur. Í raun er sama hvort skórnir eru rauðir, grænir, gylltir að silfraðir, þeir poppa upp klæðnaðinn og gera hann spari- legri. Um leið undirstrika slíkir skór kvenleikann og glamúrinn, sem er aldrei nógu mikill núna þegar tími jólahlaðborða, jólatón- leika, aðventuboða og jólaboða er fram undan. Það er líka gaman að klæðast glitrandi skóm sem tekið er eftir á þessum tíma ársins og krydda þannig tilveruna. Glitr- andi veski, skart eða aðrir fylgi- hlutir eiga líka við núna og lífga svo sannarlega upp á látlausan klæðnað. Poppaðu upp heildarútlitið Leikkonan var með tagl á upp-runalegu myndinni sem hefur verið fjarlægt á forsíðunni. Hún var ekki spurð hvort þetta væri í lagi. Lupita segir frá mynda- fölsuninna á Instagram þar sem hún birtir myndina óklippta og er mjög óhress með verknaðinn. „Ég er mjög vonsvikin með Grazia UK ,“ segir hún. „Þeir báðu mig um að vera á forsíðu blaðsins og svo hafa þeir klippt af mér hárið til að þóknast eigin hugmyndum um feg- urð. Ef ég hefði verið spurð hefði ég svarað að ég væri stolt af útliti mínu og bakgrunni. Það er greinilega enn langt í fordómaleysi gagnvart húð og hári svartra kvenna.“ Lupita Nyong’o fékk Óskars- verðlaun fyrir leik sinn í 12 Years A Slave árið 2014 og hefur vakið mikla athygli. Hún á ættir að rekja til Kenía og var alin upp þar til sextán ára aldurs þegar hún flutti til Mexíkó þar sem hún lærði spænsku. Þegar Lupita hlaut Óskarsverðlaunin var hún fyrsti Ljósmyndarinn klippti Lupitu án hennar vilja Lupita Nyong’o er fyrsta konan frá Kenía til að hljóta Óskars- verðlaun. Þessi mynd er fengin á Instagram þar sem Lupita fjallar um hárklippinguna Leikkonan Lup­ ita Nyong’o, 34 ára, er rasandi út í breska tíma­ ritið Grazia. Lupita prýðir forsíðuna á nóvemberhefti blaðsins þar sem búið er að klippa hár hennar. leikarinn frá Kenía til að hljóta þessi verðlaun og fyrsta afríska leikkonan. Auk þess var hún fyrsta leikkonan í Mexíkó til að hljóta verðlaunin sem aðalleikkona. Ljósmyndarinn sem tók myndina á Grazia UK hefur beðið hana innilega afsökunar á útklipp- ingunni og segir hana hafa verið hrikaleg mistök. Ritstjóri Grazia harðneitar að hafa beðið um að taglið yrði klippt út. Það hafi alfarið verið ljósmyndarinn, An Le, sem starfar í Bandaríkjunum og tók myndina, sem hafi ráðið för. An Le hefur birt yfirlýsingu þar sem hann biður Lupitu afsökunar og alla þá sem hann hafi sært. Hann segist sjálfur vera innflytjandi og muni í framtíðinni huga betur að því að fegurð sé alls konar. An Le hefur myndað helstu stjörnur í heimi og er vel þekktur sem ljósmyndari í Bandaríkjunum. Hann hefur tekið margar forsíðumyndir fyrir bæði ameríska og enska Vogue. „Breyt- ingin á Lupitu var ekki gerð af ein- hverju hatri heldur mun frekar af fáfræði þótt það sé engin afsökun. Ég er þakklátur Lupitu fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli,“ segir hann. Lupita lét sér ekki nægja að setja athugasemd inn á Instagram. Hún bætti um betur á Twitter þar sem hún notaði myllumerkið #dtmh með vísun í lag Knowles, Don’t Touch My Hair. E F LIR / H N O T S K Ó G U R STELPUR KONUR STAÐURINN RÆKTIN Ekki eftir neinu að bíða! Síðustu TT – námskeiðin fyrir jól hefjast 19. nóvember Tökum mataræðið og ræktina föstum tökum og fyllum okkur af orku og léttleika! Velkomin í okkar hóp! Innritun og nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan. 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . N Óv e m B e R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 B -9 0 A 4 1 E 3 B -8 F 6 8 1 E 3 B -8 E 2 C 1 E 3 B -8 C F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.