Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 46

Fréttablaðið - 16.11.2017, Side 46
Fótbolti Leikirnir við Tékka og Katar við Persaflóann á síðustu dögum skiptu kannski litlu máli í stóra samhenginu. Landsliðs- þjálfarinn Heimir Hallgrímsson talaði sjálfur meira um að þetta væri mórölsk uppskeruferð fyrir hetjur liðsins heldur en að þarna ætti að leggja leikfræðilegan grunn að enn frekari afrekum liðsins. Strákarnir okkar hafa þrátt fyrir þennan rólega endi á landsliðsárinu skilað íslenska liðinu upp í nýjar hæðir með magnaðri frammistöðu og eins og síðustu ár héldu metin áfram að falla á þessu landsliðsári. Knattspyrnuárið 2017 var fyrir löngu orðið sögulegt fyrir íslenska karlalandsliðið í fótbolta enda strákarnir okkar komnir inn á HM í fyrsta sinn. Átta mörk í plús Frábær árangur liðsins var líka ein- stakur því íslenska liðið fékk aðeins á sig 0,58 mörk að meðaltali í leik og skoraði átta mörkum meira en mótherjarnir. Það hefur aldrei gerst áður á landsliðsári þar sem Ísland hefur spilað fleiri en einn landsleik. Síðustu tveir leikir landsliðsins voru þessir vináttuleikir við Tékk- landi og Katar í Katar en liðið vann hvorugan þeirra, tapaði 2-1 fyrir Tékkum og gerði 1-1 jafntefli við heimamenn í Katar. Endirinn var ekki alveg í samræmi við leikina á undan þegar ekkert mátti klikka og strákarnir kláruðu verkefnið með stæl. Met íslenska landsliðsins hafa fallið hvert á fætur öðru á síðustu árum enda árangur fótboltalands- liðsins verið einstakur og í raun heimsfrétt. Árið 2016 var til dæmis sett nýtt leikjamet (17 leikir), markamet (30 mörk) og met í sigur- leikjum (8 sigrar). Skoruðu aðeins minna Íslenska liðið skoraði aðeins minna í ár en varðist aftur á móti mun betur. Þetta er til dæmis aðeins sjö- unda landsliðsárið þar sem Ísland fær á sig minna en mark að meðal- tali í leik. Íslenska vörnin gerði mun betur en það, því liðið fékk aðeins á sig 7 mörk í 12 leikjum eða 0,58 mörk að meðaltali. Liðið er að fá næstum því marki minna á sig í leik heldur en árið á undan. Ef það er hægt að finna að ein- hverju á árinu 2016 var það að íslenska liðið fékk á sig 26 mörk eða 1,5 mörk að meðaltali í leik. Heimir Hallgrímsson og strákarnir lokuðu hins vegar vörninni á árinu 2017 ekki síst í keppnisleikjunum þar sem liðið fékk aðeins á sig eitt mark í síðustu fimm leikjum sínum í undankeppninni. Eitt og hálft stig á hvert mark Varnarleikurinn sá til þess að hvert skorað mark í keppnisleikjum árs- ins var virði 1,5 stiga því tíu mörk í undankeppni HM skiluðu íslenska liðinu alls fimmtán stigum á árinu 2017. Skömmu fyrir leikslok á móti Katar á þriðjudaginn stefndi í að íslenska liðið væri að fara halda hreinu í sjöunda sinn á árinu og tryggja sér áttunda sigurleik ársins. Katarmenn jöfnuðu hins vegar í uppbótartíma og metið yfir hæsta hlutfall sigurleikja frá árinu 1999 (60 prósent) lifir því áfram. Metið frá því í fyrra yfir flesta sigurleiki (8) stendur líka áfram eitt og sér þökk sé þessu óþarfa jöfnunarmarki Katarbúa. Íslenska liðið vann alls sjö leiki á árinu 2017 eða 58 prósent af tólf landsleikjum ársins. Það verður þó að taka það fram að árangur ársins 1948 verður reyndar aldrei bættur heldur aðeins jafnaður. Íslenska lands- liðið vann þá 2-0 sigur á Finnum í eina landsleik ársins og skoraði Ríkharður Jónsson bæði mörkin. Íslenska vörnin hefur aldrei verið betri Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur aldrei verið með betri markatölu og aldrei fengið á sig færri mörk í leik en á árinu 2017 en sofandaháttur í Katar á þriðjudaginn kom í veg fyrir að liðið tæki tvö önnur met til viðbótar. Hannes Þór Halldórsson og félagar í íslenska landsliðinu fagna sigri á Kósóvó og sæti á HM 2018. Fréttablaðið/anton Íslenska liðið fékk nítján færri mörk á sig í ár (7) en í fyrra (26) en spilaði vissu- lega fimm leikjum færra nú. Íslenska liðið lék mest í 371 mínútu á árinu 2017 án þess að fá á sig mark. Ný met Fæst mörk fengin á sig 0,58 7 mörk á sig í 12 leikjum Gamla metið: 0,60 - Árið 1970 (3 mörk á sig í 5 leikjum) besta markatala +8 15 mörk skoruð - 7 mörk á sig Gamla metið: +7 1999 (15-8) +7 1985 (13-6) Næstum því ný met Hæsta hlutfall sigurleikja á landsliðsári 58 prósent 7 sigrar í 12 leikjum Metið sem lifir: 60 prósent 1999 (6 af 10) Flestir sigurleikir á ári 7 Metið sem lifir: 8 – Árið 2016 Eina tapið í mótsleik í ár var hins vegar tap fyrir Finnum í september. Íslenska liðið hefur alltaf getað skor- að mörk og sannaði það enn einu sinni á árinu 2017. Liðið skoraði í 9 af 12 leikjum sínum og gerði meira en mark í leik sjötta landsliðsárið í röð. Íslenska landsliðið hélt því áfram að skora um leið og vörninni var lokað. Það er því engin tilviljun að íslenska fótboltalandsliðið er á leiðinni á HM í fyrsta sinn. ooj@frettabladid.is lyftarar og hillukerfi www.velaborg.is velaborg@velaborg.is s. 414 8600 V Söluaðilar: Ellingsen • Útilíf • Sportver • K Sport • Verslunin Nína • Sportbær • Axel Ó • DanSport Heildsöludreifing: DanSport ehf • Sundaborg 1 • Sími 5530700 *Leiðbeinandi verð. Verð getur verið mismunandi milli söluaðila. Whistler Parka úlpa kr. 12.990,-* Létt og hlý úlpa í vetur. FYRIR FLESTAR GERÐIR BÍLA... GORMAR HÖGGDEYFAR VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ! STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is Yfir 300 vörutegundir fyrir veitingastaði, mötuneyti og fyrir þig ! 1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U D A G U r30 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 1 6 -1 1 -2 0 1 7 0 5 :4 6 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 B -9 F 7 4 1 E 3 B -9 E 3 8 1 E 3 B -9 C F C 1 E 3 B -9 B C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.