Fréttablaðið - 16.11.2017, Page 46
Fótbolti Leikirnir við Tékka og
Katar við Persaflóann á síðustu
dögum skiptu kannski litlu máli
í stóra samhenginu. Landsliðs-
þjálfarinn Heimir Hallgrímsson
talaði sjálfur meira um að þetta væri
mórölsk uppskeruferð fyrir hetjur
liðsins heldur en að þarna ætti að
leggja leikfræðilegan grunn að enn
frekari afrekum liðsins.
Strákarnir okkar hafa þrátt fyrir
þennan rólega endi á landsliðsárinu
skilað íslenska liðinu upp í nýjar
hæðir með magnaðri frammistöðu
og eins og síðustu ár héldu metin
áfram að falla á þessu landsliðsári.
Knattspyrnuárið 2017 var fyrir
löngu orðið sögulegt fyrir íslenska
karlalandsliðið í fótbolta enda
strákarnir okkar komnir inn á HM
í fyrsta sinn.
Átta mörk í plús
Frábær árangur liðsins var líka ein-
stakur því íslenska liðið fékk aðeins
á sig 0,58 mörk að meðaltali í leik
og skoraði átta mörkum meira en
mótherjarnir. Það hefur aldrei gerst
áður á landsliðsári þar sem Ísland
hefur spilað fleiri en einn landsleik.
Síðustu tveir leikir landsliðsins
voru þessir vináttuleikir við Tékk-
landi og Katar í Katar en liðið vann
hvorugan þeirra, tapaði 2-1 fyrir
Tékkum og gerði 1-1 jafntefli við
heimamenn í Katar. Endirinn var
ekki alveg í samræmi við leikina á
undan þegar ekkert mátti klikka og
strákarnir kláruðu verkefnið með
stæl.
Met íslenska landsliðsins hafa
fallið hvert á fætur öðru á síðustu
árum enda árangur fótboltalands-
liðsins verið einstakur og í raun
heimsfrétt. Árið 2016 var til dæmis
sett nýtt leikjamet (17 leikir),
markamet (30 mörk) og met í sigur-
leikjum (8 sigrar).
Skoruðu aðeins minna
Íslenska liðið skoraði aðeins minna
í ár en varðist aftur á móti mun
betur. Þetta er til dæmis aðeins sjö-
unda landsliðsárið þar sem Ísland
fær á sig minna en mark að meðal-
tali í leik. Íslenska vörnin gerði mun
betur en það, því liðið fékk aðeins
á sig 7 mörk í 12 leikjum eða 0,58
mörk að meðaltali. Liðið er að fá
næstum því marki minna á sig í leik
heldur en árið á undan.
Ef það er hægt að finna að ein-
hverju á árinu 2016 var það að
íslenska liðið fékk á sig 26 mörk
eða 1,5 mörk að meðaltali í leik.
Heimir Hallgrímsson og strákarnir
lokuðu hins vegar vörninni á árinu
2017 ekki síst í keppnisleikjunum
þar sem liðið fékk aðeins á sig eitt
mark í síðustu fimm leikjum sínum
í undankeppninni.
Eitt og hálft stig á hvert mark
Varnarleikurinn sá til þess að hvert
skorað mark í keppnisleikjum árs-
ins var virði 1,5 stiga því tíu mörk í
undankeppni HM skiluðu íslenska
liðinu alls fimmtán stigum á árinu
2017.
Skömmu fyrir leikslok á móti
Katar á þriðjudaginn stefndi í að
íslenska liðið væri að fara halda
hreinu í sjöunda sinn á árinu og
tryggja sér áttunda sigurleik ársins.
Katarmenn jöfnuðu hins vegar í
uppbótartíma og metið yfir hæsta
hlutfall sigurleikja frá árinu 1999
(60 prósent) lifir því áfram. Metið
frá því í fyrra yfir flesta sigurleiki
(8) stendur líka áfram eitt og sér
þökk sé þessu óþarfa jöfnunarmarki
Katarbúa.
Íslenska liðið vann alls sjö leiki
á árinu 2017 eða 58 prósent af tólf
landsleikjum ársins.
Það verður þó að taka það fram
að árangur ársins 1948 verður
reyndar aldrei bættur heldur
aðeins jafnaður. Íslenska lands-
liðið vann þá 2-0 sigur á Finnum
í eina landsleik ársins og skoraði
Ríkharður Jónsson bæði mörkin.
Íslenska vörnin hefur
aldrei verið betri
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur aldrei verið með betri markatölu og
aldrei fengið á sig færri mörk í leik en á árinu 2017 en sofandaháttur í Katar á
þriðjudaginn kom í veg fyrir að liðið tæki tvö önnur met til viðbótar.
Hannes Þór Halldórsson og félagar í íslenska landsliðinu fagna sigri á Kósóvó og sæti á HM 2018. Fréttablaðið/anton
Íslenska liðið fékk nítján
færri mörk á sig í ár (7) en í
fyrra (26) en spilaði vissu-
lega fimm leikjum færra nú.
Íslenska liðið lék mest í
371 mínútu á árinu 2017 án
þess að fá á sig mark.
Ný met
Fæst mörk fengin á sig
0,58
7 mörk á sig í 12 leikjum
Gamla metið:
0,60 - Árið 1970 (3 mörk á sig í 5
leikjum)
besta markatala
+8
15 mörk skoruð - 7 mörk á sig
Gamla metið:
+7 1999 (15-8)
+7 1985 (13-6)
Næstum því ný met
Hæsta hlutfall sigurleikja á
landsliðsári
58 prósent
7 sigrar í 12 leikjum
Metið sem lifir:
60 prósent 1999 (6 af 10)
Flestir sigurleikir á ári
7
Metið sem lifir:
8 – Árið 2016
Eina tapið í mótsleik í ár var hins
vegar tap fyrir Finnum í september.
Íslenska liðið hefur alltaf getað skor-
að mörk og sannaði það enn einu
sinni á árinu 2017. Liðið skoraði í 9
af 12 leikjum sínum og gerði meira
en mark í leik sjötta landsliðsárið í
röð.
Íslenska landsliðið hélt því áfram
að skora um leið og vörninni var
lokað. Það er því engin tilviljun
að íslenska fótboltalandsliðið er á
leiðinni á HM í fyrsta sinn.
ooj@frettabladid.is
lyftarar og hillukerfi
www.velaborg.is velaborg@velaborg.is s. 414 8600
V
Söluaðilar:
Ellingsen • Útilíf • Sportver • K Sport • Verslunin Nína • Sportbær • Axel Ó
• DanSport
Heildsöludreifing: DanSport ehf • Sundaborg 1 • Sími 5530700
*Leiðbeinandi verð. Verð getur
verið mismunandi milli söluaðila.
Whistler Parka úlpa
kr. 12.990,-*
Létt og hlý úlpa í vetur.
FYRIR FLESTAR
GERÐIR BÍLA...
GORMAR
HÖGGDEYFAR
VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ!
STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U D A G U r30 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
B
-9
F
7
4
1
E
3
B
-9
E
3
8
1
E
3
B
-9
C
F
C
1
E
3
B
-9
B
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K