Fréttablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 66
Á myndina vantar
Kjartan Óla Eiríksson
1970–2015
Um 200 Íslendingar látast árlega úr ótímabærum
hjarta- og æðaáföllum. Um 12 þúsund manns á
aldrinum 50–70 ára glíma við afleiðingar slíkra áfalla
og lifa við skert lífsgæði vegna þeirra. Með markvissri
leit er hægt að finna þessa einstaklinga áður en það
er um seinan og koma í veg fyrir áföllin.
Við söfnum fyrir fyrirbyggjandi leit og innleiðingu
á öllum heilsugæslum landsins.
907 1502
2.000 KR.
907 1505
5.000 KR.
907 1508
8.000 KR.
Söfnunarþáur í opinni dagskrá
á Stöð 2, 17. nóvember kl. 19.25
Skrafað um skrafl
Formaður Skraflfélagsins, Reynir
Hjálmarsson, var kampakátur þegar
blaðamaður náði tali af honum, en
nýlega lauk Íslandsmóti í skrafli, en
alls voru það 17 skraflarar sem öttu
kappi í orðfæri.
„Ég var sjálfur að keppa á mótinu
og lenti í öðru sæti, en Vilhjálmur
Þorsteinsson varð hlutskarpastur og
það annað árið í röð. Ég fór í þennan
félagsskap fyrir fimm árum og sé
ekki eftir því. Við hittumst fyrsta
mánudag í mánuði á Lofti hosteli og
skröflum. Þessi félagsskapur samein-
ast í kringum þetta áhugamál en er
ekkert tengdur utan þess.“
Reynir er áhugamaður um íslensku
og á ekki langt að sækja það en faðir
hans, séra Hjálmar Jónsson, en lands-
þekktur fyrir kveðskap sinn, þeir
feðgar eru miklir
orðsins menn.
En hvað skyldi
þurfa til að
vera góður í
skrafli? „Það
er mikilvægt
að vera með
góðan og ríkan
orðaforða og
fær í stafsetn-
ingu annars
er hægt að reka ofan í mann
beyg ingarvillur og aðrar
ambögur. Herkænska er
lykill að árangri, sjálfur er ég
sókn djarfur og vil hafa allt opið
meðan aðrir eru varnarsinn-
aðri.“
En það er ekki alltaf átakalaust að
keppa í orðaskaki. „Við erum með
dómara sem við leitum til, annars
er stuðst við orðabækur. Eitt sinn
þegar Sigríður systir var að keppa,
voru gerðar athugasemdir við
orðið „legverkir“ sem hún lagði
niður. Við hringdum umsvifa-
laust í dómara sem er doktor
í málvísindum og var
orðið samþykkt með
þeim orðum að
viðkomandi sem
mótmælti „ætti
að lemja í hausinn
með orðabók“,
þannig að það
getur verið hasar í
þessu, segir Reynir
Hjálmarsson og hvetur
áhugasama orðsins menn
að kynna sér starfsemi Skraflfélags-
ins. astahrafnhildur@frettabladid.is
Dagur íslenskrar
tungu er í dag
Haustið 1995 ákvað þáverandi ríkisstjórn Íslands að 16. nóvember
ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar skálds, yrði
dagur íslenskrar tungu. Hann hefur verið haldinn hátíðlegur síðan.
Gísli Rúnar Jónsson limrusmiður.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íslenskan er orðaríkt mál en þrátt
fyrir það þá hafa landsmenn unun
af því að smíða nýyrði eða gefa
orðum aðrar merkingar. Á slóðinni
http://slangur.snara.is/ er að finna
skemmtilegt slangur sem sumt
hvert hefur fest sig í sessi en annað
síður, en þrátt fyrir það er nýrða-
smíði skemmtileg íþrótt.
negrunarkúr
tímabil þar sem
einstaklingur leggur
metnað í að dekkja
hörundslit sinn
greddumóða
móða sem myndast á
innanverðum glugga
við ástarathafnir
ellinaðra
rafskutla fyrir gamalt
fólk eða þá sem eiga
erfitt með gang
straumbreytir
sá sem hefur áhrif
á tískustrauma (e.
trendsetter)
diskóblundur
að leggja sig áður en
haldið er út á lífið
veiðigalli/veiðivatn
samkvæmisklæðn-
aður sem á að hjálpa
til við að útvega ból-
félaga eða maka, eða
ilmvatn sem nýta á í
sama tilgangi
svikmynd
leikin sjónvarps- eða
kvikmynd sem er
látin líta út fyrir að
vera sönn heimild (e.
mockumentary)
kinderegg
dökkhærð kona sem
er undir niðri ljóska
maltesín
jólaöl, blanda af malti
og appelsíni
Á íslensku mÁ alltaf finna svar
Limrulimbó
Rithöfundurinn, þýðandinn, leik-
stjórinn og skemmtikrafturinn Gísli
Rúnar Jónsson er orðhagur maður.
Orð verða að list í meðförum hans
og er hann einkar lunkinn við að
setja saman limrur þar sem húm-
orinn fær að njóta sín. Gísli Rúnar
leyfir lesendum að líta í óútgefið
efni, en limrukver eftir hann mun
líta dagsins ljós á næsta ári. Þessar
limrur birtast í kafla um íslenskt mál
en hann mun bera heitið: Íslenskur
texti í minnkandi vexti.
Deleríum klemenz
- þing-Z 1974
Er Klemenz brá sér til Bremen,
brottfelldu’og drógu í hlé menn
bókstafinn Z(etu)
svo bókhneigðir grétu
og Klemenz sner’aftur sem Klemen.
einDagi tungunnar
- með íslenskum texta
Orðin forða sér árlega
úr orðaforða sem sárlega
fer aftur, uns brátt
eftir er fátt
annað en „segðu“ og „klárlega“.
Jæja
njóta
djók
svið
mál
égokei
á!
sko
B.O.B.A
ljósmóðir
Hmm..
Reynir
Hjálmarsson.
Vilhjálmur
Þorsteinsson.
ha?
hahaha … 365.is 1817
2.590 KR.
SMS+11GB
Á mánuði
LÁTTU EKKI SÍMANN
PLATA ÞIG 365 er á sama farsímakerfi ogSíminn en á mun lægra verði
1 6 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U D A G U r50 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
1
6
-1
1
-2
0
1
7
0
5
:4
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
B
-8
1
D
4
1
E
3
B
-8
0
9
8
1
E
3
B
-7
F
5
C
1
E
3
B
-7
E
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K