Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 34
A lena Da Silva er rétt rúmlega tvítug og steig fram í þætt-inum Fósturbörn í umsjón Sindra Sindrasonar á Stöð
2 í vikunni. Þar lýsti hún uppvexti
sínum og afskiptum Barnaverndar
Reykjavíkur þar til að hún var sett í
varanlegt fóstur til Svanhildar Sifjar
Haraldsdóttur að verða þrettán ára
gömul. Konu sem hún og systir
hennar voru vistaðar hjá reglu-
lega alla æskuna þegar ástandið á
heimilinu var slæmt. Hún er komin
til fundar við blaðamann á veit-
ingastaðinn Gló í Faxafeni snemma
morguns. Henni var alls ekki rótt
áður en þátturinn fór í loftið. Það er
kannski ekki skrítið, hún lýsir heimi
barns sem er varnarlaust í vondum
aðstæðum alkóhólisma og með-
virkni. Frásögnin gefur til kynna að
í íslensku samfélagi sé réttur barna
til góðs lífs minni en réttur foreldra
til umgengni.
„Ég var mjög stressuð. Ég borðaði
ekki í heilan dag og vissi ekki hvern-
ig ég átti að vera. Ég var eirðarlaus
og kvíðin en staðráðin. Ég var að
segja frá mín vegna og til að styrkja
börn og ungmenni í minni stöðu.
Þau skortir fyrirmyndir og von um
að lífið geti einn daginn orðið gott,“
segir Alena.
Hún hefur markvisst unnið úr
áföllum barnæsku sinnar síðustu
ár. Á unglingsárum sótti hún nokk-
ur námskeið SÁÁ þar sem unnið
var úr meðvirkni, það hefur styrkt
hana. „Ég er lítið meðvirk með föður
mínum og móður. Ég er það kannski
með aðra hluti, ég er enn að vinna
úr ýmsu. En mér gengur vel í þeirri
vinnu,“ segir Alena.
Mikilvægt að nota röddina
Hún segir marga kunningja sína
hafa haft samband við sig eftir þátt-
inn. Þeir hafi ekki áttað sig á því
hversu erfitt ástandið var. „Þannig
er það oftast. Meðvirknin gerir það
að verkum að fólk þegir, mér finnst
hins vegar mikilvægt að nota rödd-
ina. Ég hef hana og finn að hún er
sterk, ég þarf að nota hana til að
koma skilaboðum til krakka og ung-
menna sem eru í svipaðri stöðu og
ég var, vita ekki hvert þau eiga að
leita. Vita ekki hvernig þeim á að
líða, hvert þau geta leitað. Þegar ég
var unglingur þá hefði ég þurft að
hafa þessa fyrirmynd. Ég hefði þurft
að hafa sterkari trú á að ég gæti átt
góða og friðsamlega framtíð. Það
voru oft erfiðir tímar þar sem ég
vildi gefast upp. Ég brotnaði ekki
alveg, ég held að systir mín sem er
tveimur árum eldri en ég hafi farið
verr út úr uppvexti okkar en ég.“
Alena og eldri systir hennar ólust
upp hjá foreldrum sínum þar til
Alena var þriggja ára gömul. „Ég á
því miður sárafáar góðar minning-
ar úr barnæsku. Pabbi var fársjúkur
alkóhólisti og mamma glímir við
andlega erfiðleika sem gera það að
verkum að hún náði ekki tengingu
við okkur. Gat ekki sýnt okkur
umhyggju sem móðir. Mamma og
pabbi skildu þegar ég var þriggja
ára gömul. Ég á eina minningu sem
er nokkuð sterk. Þá var mamma
heima. Við læstum okkur inni í her-
bergi því við vissum að pabbi væri
að koma fullur heim,“ segir Alena
frá og segist halda að minningin sé
svona sterk þrátt fyrir ungan aldur
vegna þeirrar hræðslu sem hún
fann fyrir.
„Eftir skilnaðinn urðum við
eftir hjá pabba þótt hann væri fár-
sjúkur alkóhólisti. Þótt aðstæður
hafi verið skelfilegar hjá pabba
þá kusum við frekar að vera hjá
honum en mömmu. Okkur fannst
hún ógnandi og óútreiknanleg, við
vildum ekki vera hjá henni,“ segir
Alena.
Móðir Alenu er frá Portúgal og
Alena segist ekkert vita um bak-
grunn sinn þar í landi. Hún viti að
móðir sín eigi þrjú systkini sem
hún vilji ekkert vita af. Hún sé frá
litlum bæ í grennd við Porto. „Hún
á að baki brotna barnæsku. Við
systir mín höfum lítil tengsl við
mömmu í dag. Hún lokaði á okkur.“
Eftir þáttinn vildu margir spyrja
Alenu: Hvar var stórfjölskyldan?
Nágrannar? Vinir og kunningjar?
„Svarið er að við systur eigum
nokkra góða að. Mér þykir vænt um
föðurfjölskyldu mína alla. Ömmu,
afa og systur pabba sem bauð okkur
alltaf til sín á jólunum. Margt gert
sem var mikils virði. En þetta er
lítil fjölskylda og það er mikil
meðvirkni. Fólk fer í afneitun. Það
vill kannski vel, en gerir ekki réttu
hlutina. Vinnur kannski með sjúk-
dómnum en ekki gegn honum.“
Tekin úr leikskóla
Þrátt fyrir ömurlegar aðstæður
systranna fyrstu æviárin hófust
afskipti Barnaverndar Reykjavíkur
ekki af þeim fyrr en systir Alenu
byrjaði í fyrsta bekk í grunnskóla.
Þá var Alena fjögurra ára gömul.
„Systir mín mætti í eitt skipti í
skólann og svo mætti hún ekkert
aftur. Hún var svo kvíðin að hún
fann til líkamlegs sársauka. Hún
bara gat ekki farið í skólann. Ég var
hætt í leikskólanum á þessum tíma
því það voru ekki til peningar fyrir
vistinni þar. Heimilið var í algjörri
upplausn en þarna varð okkur til
gæfu að Hilda kemur inn í líf okkar.
Fósturmamma mín í dag. Systir
mín fékk hana sem persónulegan
ráðgjafa. Eitt af því fyrsta sem hún
sagði við hana var: Mamma elskar
mig ekki. Hún elskar bara Alenu.
Sem var kannski ekki rétt, hún elsk-
aði mig líklega ekki en náði samt
betri tengingu við mig. Þessi orð
segja margt um stöðuna. Ég sagði
líka nokkur orð við hana Hildu. Til
dæmis að mig langaði að byrja á
leikskólanum aftur,“ segir Alena frá.
Svanhildur Sif Haraldsdóttir, sem
jafnan er kölluð Hilda af ástvinum
sínum, tók stelpurnar til sín og
þær fengu að gista hjá henni þegar
ástandið var slæmt á heimilinu.
„Þegar hún var að skila okkur þá
fann hún stundum ramma áfengis-
lykt af pabba og fór bara með okkur
heim til sín aftur. Svona gekk þetta
árum saman. Við vorum hjá Hildu
í lengri og styttri tíma. Ferlið var
oftast þannig að þegar ástandið var
verulega slæmt þá hringdum við
á bakvakt eða á lögreglu til að fá
aðstoð og Hilda tók við okkur. Þegar
ég er níu ára og systir mín ellefu ára
þá loksins erum við systir mín settar
í fóstur í heilt ár til Hildu.“
„Nýtt líf“
Svo fór að faðir Alenu eignaðist
kærustu. Þá þóttu aðstæður á
heimilinu tryggari fyrir þær systur
að mati Barnaverndar Reykjavíkur
og þær voru sendar heim eftir tæpra
ellefu mánaða vist hjá Hildu. „Það
þótt nóg. Hann eignaðist kærustu
sem átti hús. Hann lofaði okkur
öllu fögru. Nú yrði lífið gott. Við
skyldum líka fara til Portúgal. Þetta
er sorglegt því að á þessum tíma var
okkur farið að ganga vel. Skólinn
gaf skýrslu um að við mættum vel
í skóla. Við vorum hreinar og alltaf
með nesti. Það liðu aðeins tveir
dagar eftir að við komum heim þar
til fylleríið byrjaði aftur. Þá voru
þau tvö saman í því.“
Skömmuð fyrir að svíkja
Á þessum tíma var Alena í reglulegri
umgengni hjá föður sínum, stuttum
heimsóknum. „Ég vildi ekki vera í
umgengni. Ég fékk skammir þegar
ég hitti hann. Hann skammaði mig
fyrir að svíkja hann, segja frá. Nú
vissu allir! Þetta var ofsalega erfitt.
Þegar Hilda náði í mig þá settist
ég bara í bílinn og grét. Ég gat svo
ekki farið í skólann daginn eftir,
vanlíðanin var svo mikil. Ég var
eyðilögð. Börn ráða ekki við svona.
Meðvirknin er svo mikil. Börn vilja
halda tryggð við foreldra sína, svona
umgengni getur verið skaðleg. Sér í
lagi þegar ekkert var gert til að setja
föður mínum stólinn fyrir dyrnar.
Hann fór aðeins einu sinni á Vog. Þá
bara í sjö daga, sem er bara afeitrun.
Hann þurfti aldrei að sýna og sanna
að hann væri betri maður, að vinna
í sínum sjúkdómi. Okkar réttur var
miklu minni en hans.“
Þær systur höfðu báðar vonað
að þær gætu átt gott líf með föður
sínum. „Auðvitað vonaði ég alltaf
að honum myndi batna. Að einhver
myndi sýna virkilegan styrk, setja
Ég sá allt
og heyrði allt
Alena Da Silva á að baki brotna æsku og tekur þátt í stofnun sam-
taka fósturbarna. Barnaverndaryfirvöld gripu seint inn í aðstæður
hennar og Alena telur rétt barna til góðs og öruggs lífs of lítinn.
Alenu finnst erfitt en nauðsynlegt að stíga fram. Það muni gagnast öðrum í svipaðri stöðu. FréTTAblAðið/ANToN briNk
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Ég gAt leikið mÉr tím-
unum SAmAn einhverS
StAðAr úti í horni. ÞAð
vAr mitt vArnArvið-
brAgð. Ég geri ÞAð enn í
DAg og er Að vinnA með
ÞettA með Sálfræðingi.
Ég tek mÉr frí frá heim-
inum, fjArlægiSt hAnn,
fylgiSt SAmt með. Ég Sá
Allt. Ég heyrði Allt.Ég
helD Að vegnA ÞeSSA
hAfi pAbbi orðið hiSSA
ÞegAr Ég fÉkk lokSinS
nóg.
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
4
0
-8
5
9
4
1
E
4
0
-8
4
5
8
1
E
4
0
-8
3
1
C
1
E
4
0
-8
1
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K