Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 56
Sendibílstjóri - Bifreiða og vélaverkstæði Vélrásar
Við hjá Vélrás auglýsum nú eftir hressum, skemmtilegum,
kurteisum, fjölhæfum og þjónustulunduðum starfsmanni sem
hefur gaman af því að keyra um höfuðborgarsvæðið
ásamt því að sinna tilfallandi verkefnum.
Hjá Vélrás starfa um 40 starfsmenn við viðgerðir á atvinnu-
bifreiðum og vinnuvélum og þarf því mikið að keyra um bæinn
til þess að sækja og/eða senda varahluti og vörur. Íslensku-
kunnátta og bílpróf eru skilyrði auk þess sem kostur væri ef
viðkomandi hefði meirapróf.
Frekari upplýsingar í síma 8601860
Umsóknir sendist á velras@velras.is
www.velras.is
Sækist þú eftir fjölbreyttu og lifandi
starfi í krefjandi starfsumhverfi þar
sem reynir mikið á samskipti við fólk?
Velferðarráðuneytið leitar að sérfræðingi á skrifstofu
rekstrar og innri þjónustu. Skrifstofan ber ábyrgð
á daglegum rekstri ráðuneytisins og sér til þess að
starfsmenn hafi nauðsynleg tæki og tól við vinnu
sína.
Leitað er að snjöllum og kraftmiklum einstaklingi
sem er glöggur á tölur og tækni, jákvæður og lipur
í samskiptum og tilbúinn að læra og tileinka sér
nýjungar.
Helstu verkefni
• Umsjón með tækni- og tölvubúnaði.
• Tæknileg aðstoð við starfsmenn.
• Samskipti við Rekstrarfélag Stjórnarráðsins.
• Greining og úrvinnsla bókhaldsgagna.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun í viðskiptafræði eða önnur
sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
• Haldgóð þekking á sviði upplýsingatækni.
• Þekking á áætlanagerð og kostnaðargreiningu.
• Skipulagshæfni.
• Sveigjanleiki og geta til þess að vinna sjálfstætt og
í teymi.
• Frumkvæði, frjó hugsun, rík þjónustulund,
jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi
starfsumhverfi. Um launakjör fer eftir kjarasamningi
fjármála- og efnahagsráðherra og Félags háskóla-
menntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Ráðuneytið
hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Hrönn Ottósdóttir skrif-
stofustjóri, hronn.ottosdottir@vel.is, og Böðvar
Héðinsson, staðgengill skrifstofustjóra, bodvar.
hedinsson@vel.is. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og starfsferil skulu berast velferðarráðuneyt-
inu, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík eða á netfangið:
postur@vel.is eigi síðar en 4. desember nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir
geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur
rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á
lausum störfum, með síðari breytingum.
Velferðarráðuneytinu, 18. nóvember 2017.
Við leitum að kraftmiklum og áhugasömum landslagsarkitekt í okkar lið, til starfa
við spennandi og ölbreytt verkefni á skapandi og lifandi vinnustað í hjarta
miðborgarinnar.
HÆFNISKRÖFUR:
· Meistaragráða í landslagsarkitektúr
· Reynsla af vinnu í faginu eða tengdum greinum
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Gott skynbragð á myndræna framsetningu
· Þekking á hönnunarforritum
Landslag er leiðandi fyrirtæki á sviði landslagsarkitektúrs og skipulags og byggir á rúmlega
50 ára óslitnum rekstri. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur og reynslumikill hópur, með
jafna kynja- og aldursdreifingu, að margvíslegum og kreandi verkefnum í þverfaglegu
samstarfi. Áhersla er ávallt lögð á faglegar lausnir og lipra þjónustu.
Auk skrifstofunnar í Reykjavík er fyrirtækið með starfstöð á Akureyri.
Umsóknir skulu berast á netfangið starf@landslag.is í síðasta lagi mánudaginn 12. desember.
Umsóknum þurfa að fylgja greinagóðar upplýsingar um menntun og reynslu. Allar umsóknir verða
meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535 5300 eða á starf@landslag.is.
LANDSLAGSARKITEKT
LANDSLAG LEITAR AÐ LIÐSAUKA
Skólavörðustígur 11 · 101 Reykjavík · 535 5300 · www.landslag.is
Þarftu að ráða starfsmann?
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
4
0
-C
5
C
4
1
E
4
0
-C
4
8
8
1
E
4
0
-C
3
4
C
1
E
4
0
-C
2
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K