Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 59
Laust er til umsóknar fullt starf forstöðumanns fjármálasviðs við Háskólann
á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf þann 1. febrúar 2018.
Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri.
Forstöðumaður fjármálasviðs
Umsóknir og fylgigögn skal senda rafrænt á skrifstofu rektors Háskólans á Akureyri á netfangið starfsumsokn@
unak.is. Ekki er notað staðlað umsóknareyðublað.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um opinbera
háskóla nr. 85/2008 og reglur nr. 387/2009 fyrir Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar
til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt
í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar um starfið gefa Eyjólfur Guðmundsson rektor, rektor@unak.is, og Ólafur Halldórsson
framkvæmdastjóri, olafurh@unak.is.
Umsóknarfrestur er til og með 18. desember 2017
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur
konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf á meistarastigi, með áherslu á stjórnun og fjármál, eða samsvarandi sem nýtist í
starfi er skilyrði.
• Reynsla af stjórnun og stjórnunarhæfni.
• Þekking og reynsla af áætlanagerð, kostnaðargreiningu og kostnaðareftirliti.
• Frumkvæði og forystuhæfni.
• Skipulögð og vönduð vinnubrögð, frjó hugsun, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Þekking á starfsemi háskóla er æskileg.
• Þekking á íslensku stjórnkerfi og opinberri stjórnsýslu er æskileg.
• Góð færni í íslensku og ensku er nauðsynleg og færni í einu skandinavísku tungumáli er æskileg.
• Góð tölvu- og tækniþekking. Þekking á bókhaldskerfi ríkisins er kostur.
Umsókn skal fylgja:
• Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
• Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
• Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og lagður fram rökstuðningur fyrir
hæfni umsækjanda í starfið.
• Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfirmaður í
núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
www.unak.is/lausstorf
fjá
rm
ál
as
vi
ðs
Fo
rs
tö
ðu
m
að
ur
Embætti stjórnanda nýrrar
gæða- og eftirlitsstofnunar
Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti
stjórnanda gæða- og eftirlitsstofnunar sem mun fyrst
um sinn veita þjónustu á sviði félagsþjónustu og sinna
afmörkuðu eftirliti á sviði barnaverndar, en áætlað er að
þjónusta á sviði barnaverndar bætist við á síðari stigum.
Embættið heyrir undir félags- og jafnréttismálaráðherra.
Markmið stofnunarinnar eru að auka gæði og öryggi í
félagsþjónustu og styrkja stjórnsýslu málaflokksins.
Um nýja stofnun er að ræða og mun starfsemi hennar
taka mið af endurskoðun laga á þeim málasviðum sem
undir stofnunina heyra.
Um er að ræða spennandi og krefjandi starf við upp-
byggingu nýrrar stofnunar. Leitað er að áhugasömum
og drífandi leiðtoga sem er tilbúinn að takast á við
mótun starfseminnar og innleiðingu nýrra verkefna.
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu verður sérstök
ráðuneytisstofnun sem hluti af velferðarráðuneytinu.
Stofnunin er sett á fót á grundvelli 17. gr. laga um
Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011. Ráðherra skipar
stofnuninni stjórnanda til fimm ára í senn og er stefnt
að því að hann hefji störf sem fyrst á árinu 2018.
Stjórnandi stýrir stofnuninni í samræmi við lög um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996
undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra og starfar samkvæmt
fyrirmælum laga, reglugerða og erindisbréfs sem
ráðuneytisstjóri setur honum. Stjórnandinn skal hafa
menntun, þekkingu og reynslu sem nýtist á starfssviði
stofnunarinnar og við stjórnun hennar og rekstur.
Stjórnandi ber ábyrgð á rekstri stofnunarinnar og að
starfsemi hennar sé í samræmi við lög og stjórnvalds-
fyrirmæli. Hann fer einnig með starfsmannamál
stofnunarinnar samkvæmt erindisbréfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Leiðtogahæfileikar, framsýni og áhugi á eftirlits-
og gæðamálum.
• Þrautseigja, metnaður og vilji til að ná árangri.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulags-
hæfni.
• Þekking á eftirlits- og gæðamálum og reynsla af
innleiðingu er æskileg.
• Þekking og reynsla af félagsþjónustu og opinberri
stjórnsýslu æskileg.
• Stjórnunarreynsla er kostur.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og
riti.
• Góð kunnátta í ensku er skilyrði og kunnátta í Norður
landamáli æskileg.
Sérstök þriggja manna hæfnisnefnd mun meta hæfni
umsækjenda og skila greinargerð til félags- og jafnrétt-
ismálaráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum
nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni
umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands. Um
embættið gilda lög nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands
og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur ríkisstarfs-
manna. Laun ákvarðast samkvæmt gildandi kjara-
samningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi
stéttarfélags.
Upplýsingar um starfið veitir Ellý Alda Þorsteinsdóttir
skrifstofustjóri í síma 545 8100. Ráðuneytið hvetur
karla jafnt sem konur til að sækja um embættið.
Umsóknir ásamt kynningarbréfi, ferilskrá og upplýsing-
um um starfsheiti skulu berast velferðarráðuneytinu,
Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík, eða í tölvupósti á póst-
fangið postur@vel.is eigi síðar en 4. desember 2017.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
skipun í embættið liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um gæða- og eftirlitsstofnunina má
finna á eftirfarandi vefslóð https://www.stjornarradid.is/
raduneyti/velferdarraduneytid/.
Velferðarráðuneytinu, 18 nóvember 2017.
BYGG býður þér til starfa
Hjólagrafa
Vantar SNILLING á 2017 árgerð af
VOLVO EW160E hjólagröfu.
Upplýsingar veitir Guðjón S:617-3000
gudjon@bygg.is
Mótasmiðir
Framtíðarstörf á Reykjanesi fyrir vana
mótasmiði. Allt mælingavinna, launakjör HÁ
Upplýsingar veitir Páll S:693-7316
pallth@bygg.is
BYGG byggir á 32 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG)
hefur á undanförnum árum byggt yfir 3.000
glæsilegar íbúðir á almennum markaði. Fyrirtækið
hefur einnig byggt íbúðir fyrir Félag eldri borgara
og húsnæðisnefndir í Reykjavík og Kópavogi.
Hjá fyrirtækinu starfa nú um 200 manns og er
meðalstarfsaldur hár. Hjá fyrirtækinu er öflugt
starfsmannafélag. Traust atvinna í boði.
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
4
0
-A
3
3
4
1
E
4
0
-A
1
F
8
1
E
4
0
-A
0
B
C
1
E
4
0
-9
F
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K