Fréttablaðið - 18.11.2017, Blaðsíða 78
Vissir þú að piparkökur passa einstaklega vel með gráðosti? Það er alveg
sama hvort þær eru heima-
bakaðar eða keyptar úti í búð,
piparkökur með gráðosti og
góðri sultu er veislukostur. Sér-
staklega skemmtilegt jólanasl ef
gestir koma í heimsókn.
Það er einfalt að raða pipar-
kökunum á fallegum disk með
osti og sultu eða setja ostinn á
piparkökurnar og hafa sultuna
til hliðar. Fíkju- eða apríkósu-
eða sólberjasulta, allar eru góðar
með gráðosti.
Stundum er einfalt að útbúa
veisluborð, til dæmis með
piparkökum. Þær mega þó ekki
vera málaðar.
Þótt mælt sé með því að hafa
gráðost með piparkökunum er
trúlega ekkert því til fyrirstöðu
að nota aðra osta. Um að gera að
nota hugmyndaflugið og hafa
þetta svolítið jólalegt.
Piparkökur og gráðostur
Fjölskyldustundir Salarins njóta vinsælda hjá ungum sem öldnum og í dag verður
einmitt ein slík. Víóluleikarinn
Guðrún mætir í forsalinn í dag
klukkan tvö og opnar töfrakassann
sinn sem geymir víóluna hennar
og töfraprikið – bogann sem getur
töfrað alls kyns hljóð úr víólunni,
gamla tónlist og splunkunýja. Að
þessu sinni fær hún vinkonu sína
Tinnu Þorsteinsdóttur píanóleik-
ara með í lið en Tinna, sem er sér-
fræðingur í túlkun nýrrar tónlistar,
ætlar að taka þátt í gjörningnum
með Guðrúnu Hrund og kynna
möguleika leikfangapíanósins síns
fyrir áheyrendum. Guðrún Hrund
og Tinna ætla að velta fyrir sér
þeim ólíku hlutverkum sem við
getum verið í þegar við njótum
tónlistar og leyfa tónleikagestum á
öllum aldri að setja sig í mismun-
andi stellingar – sem áheyrendur,
flytjendur og tónskáld!
Leyndardómar
píanósins
Þessi kjúklingaréttur er ein-faldur, tekur skamman tíma að elda og er virkilega góm-
sætur. Sannarlega tilvalinn réttur
til að njóta í helgarfríinu.
Fyrir 2-3
2 kjúklingabringur,
skornar í tvennt langsum
salt og pipar
hveiti
6 msk. smjör
5 msk. ólífuolía
80 ml sítrónusafi
120 ml kjúklingakraftur
30 g kapers
1/2 búnt steinselja, söxuð
Saltið og piprið kjúklingabring-
urnar og dýfið þeim í hveiti. Látið 2
msk. af smjöri og 3 msk. af ólífuolíu
á pönnu. Þegar það er orðið heitt,
setjið þá aðra kjúklingabringuna út
á pönnuna og steikið í 3 mínútur
á hvorri hlið. Takið af pönnunni.
Látið nú aftur 2 msk. af smjöri og
3 msk. af ólífuolíu á pönnuna og
steikið hina með sama hætti. Takið
af pönnunni og geymið.
Bætið því næst sítrónusafa,
kjúklingakrafti og kapers út á
pönnuna og hitið að suðu. Látið
kjúklingabringurnar út í og látið
malla í 5 mínútur. Takið því
næst kjúklinginn af pönnunni,
látið á disk og setjið síðustu tvær
skeiðarnar af smjöri út í sósuna
og hrærið kröftug lega. Hellið að
lokum sósunni yfir kjúklinginn og
berið fram með t.d. góðu salati og
tagliatelle.
Heimild. www.grgs.is.
Piccata
kjúklingur
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . N Óv e m B e R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
4
0
-A
D
1
4
1
E
4
0
-A
B
D
8
1
E
4
0
-A
A
9
C
1
E
4
0
-A
9
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K