Fréttablaðið - 17.11.2017, Qupperneq 44
Samkvæmt þessu
er meira en tvö stór
vínglös eða þrír stórir
bjórar í einu ofdrykkja og
ef þú drekkur meira en
átta bjóra eða sjö vínglös
á viku eykur þú líkur á
neikvæðum heilsufars-
áhrifum talsvert.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
Margir njóta þess að fá sér í glas eftir vinnu eða um helgar þó að við vitum öll
að áfengi getur verið mjög skað-
legt í of miklu magni. Færri eru
hins vegar með á hreinu hvað er
of mikið. Ef litið er á ráðleggingar
lækna kemur í ljós að fleiri gætu
verið að drekka frá sér heilsuna en
gera sér grein fyrir því.
Hvað er of mikið?
Samkvæmt skilgreiningu bresku
heilbrigðisþjónustunnar telst
það ofdrykkja ef einhver drekkur
meira en sex áfengiseiningar á
einum degi og landlæknir miðar
við 21 einingu á viku fyrir karla en
14 fyrir konur. Þá er gert ráð fyrir
jafnri drykkju yfir vikuna, ekki allt
á einum degi. Landlæknir segir
að ef vikuleg áfengisneysla fer yfir
þessi mörk séu líkur á neikvæðum
áhrifum talsvert meiri.
Einn stór bjór (0,5 l) sem er 5%
áfengur jafngildir 2,5 áfengisein-
ingum og stórt vínglas (0,25 l) sem
er 14% áfengt jafngildir þremur.
Samkvæmt þessu er meira en tvö
stór vínglös eða þrír stórir bjórar
í einu ofdrykkja og ef þú drekkur
meira en átta bjóra eða sjö vínglös
á viku eykur þú líkur á neikvæðum
áhrifum talsvert.
Þessar tölur eru vissulega
umhugsunarefni, því margir
drekka þetta magn ef þeir drekka
á annað borð án þess að skilgreina
sig sem ofdrykkjufólk.
Dr. Nick Sheron, sérfræðingur í
lifrarsjúkdómum við Southamp-
ton háskóla, segir að þeir sem geta
ekki hugsað sér föstudagskvöld án
þess að að finna svolítið á sér séu
þegar örlítið háðir áfengi. Dr. John
Larsen hjá bresku góðgerðarsam-
tökunum DrinkAware, sem reyna
að minnka skaðleg áhrif áfengis,
segir að ef fólk tekur eftir því að
áfengisþol þess hafi aukist gæti
það verið vegna þess að líkaminn
hafi vanist mikilli áfengisneyslu og
að það gæti verið merki um að það
sé að ánetjast áfengi.
Hver er skaðinn?
Áfengi skaðar heilsuna bæði til
lengri og skemmri tíma, eins og
flestir þekkja. Til skemmri tíma
veldur áfengi aukinni slysahættu
og áhættusækni vegna áhrifanna
á jafnvægi, samhæfingu og rök-
hugsun og í allra versta falli getur
of stór skammtur stöðvað öndun
eða hjartslátt. Neyslan hefur líka
skaðleg áhrif á minni og skap og
veldur timburmönnum.
Til lengri tíma getur áfengi
valdið skaða á líffærum, sérstak-
lega heila og lifur, og valdið eða ýtt
undir þunglyndi, kvíða og sumar
tegundir krabbameins.
Heilsufarsvandamál tengd áfengi
byrja ekki að segja til sín umsvifa-
laust, þannig að hægt er að valda
sér skaða án þess að gera sér grein
fyrir því.
Hvað er til ráða?
Læknar segja að það sé betra
að dreifa áfengisneyslunni yfir
nokkra daga frekar en að spara sig
og drekka „leyfilegt“ magn fyrir
vikuna á einum degi og það er til
einföld leið til að snúa neikvæðri
þróun við. Besta leiðin er að
minnka áfengisneyslu verulega eða
einfaldlega hætta henni.
Greinin er byggð á „Are You A
Binge Drinker in Denial? This
Is What You Are Doing to Your
Body“ af vef Huffington Post
og „Klínískum leiðbeiningum
um greiningu og meðhöndlun
áfengisvanda í heilsugæslu“ frá
Landlæknisembætti.
Auðvelt að skaða
sig með áfengi
Það þarf ekki að drekka mjög mikið áfengi til að valda sér skaða. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Hugsanlega eru einhverjir sem gætu flokkast sem ofdrykkjumenn þótt þeim
finnist þeir ekki drekka mikið. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Við vitum öll að
áfengi getur verið
mjög skaðlegt í
miklu magni. En
það er óljósara
hvað telst mikið
magn og það
gæti verið að fleiri
drekki nóg til að
valda sér skaða
en gera sér grein
fyrir því.
SMÁRALIND
YFIRHAFNIR
20% afsláttur af völdum yfirhöfnum!
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
E
-4
F
0
0
1
E
3
E
-4
D
C
4
1
E
3
E
-4
C
8
8
1
E
3
E
-4
B
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K