Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 50
Fótbolti Viljum við lenda í „auð-
veldum“ og bragðdaufum riðli eða
fá tækifæri til að mæta einhverjum
af stóru þjóðunum á HM í Rúss-
landi næsta sumar? Það fer líklega
allt eftir smekk hvers og eins hverjir
eru draumaandstæðingar íslenska
landsliðsins á HM 2018.
Í riðli með Englandi og Brasilíu
Sumir taka því fagnandi að lenda
í riðli með risum eins og Brasilíu,
Argentínu, Englandi eða Spáni en
aðrir vilja kannski bara mæta þeim
í sextán eða átta liða úrslitunum.
Það má nú alveg láta sig dreyma.
Ísland verður í þriðja styrkleika-
flokki þegar dregið verður eftir tvær
vikur og það sem er öruggt á þess-
ari stundu er að íslenska landsliðið
mun ekki mæta Danmörku, Kosta
Ríka, Svíþjóð, Túnis, Egyptalandi,
Senegal eða Íran í riðlakeppninni.
Danir voru næstir því að komast
upp í annan styrkleikaflokkinn
sem þýðir að draumaleikur sumra
á móti Dönum kemur aldrei fyrr
en í útsláttarkeppninni ef þá báðar
þjóðirnar komast þangað.
Það eru ekki aðeins styrkleika-
flokkarnir sem ráða niðurröðun í
riðlana því það eru einnig fjölda-
takmarkanir á þjóðum frá sömu
álfu.
Þannig verða aldrei fleiri en
tvær Evrópuþjóðir í hverjum riðli
og aldrei meira en ein þjóð frá
hverju hinna álfusambandanna.
Þetta þýðir að ef Ísland fær Evrópu-
þjóð úr fyrsta styrkleikaflokki þá
verða ekki fleiri Evrópuþjóðir
í riðlinum.
Alveg eins ef Ísland fær
Suður-Ameríkuþjóð úr
öðrum styrkleikaflokki
(Brasilíu eða Argentína) þá
gæti íslenska liðið fengið
til dæmis Spán eða England
í sinn riðil. Riðill með Bras-
ilíu eða Spáni fær nú okkar
stráka örugglega til að svitna
aðeins og þá væri nú talsvert
auðveldara að mæta bara
Rússlandi og Perú.
Spennan vex næstu
vikur
Það eru fjórtán dagar
þangað til það kemur í ljós í
hvaða riðli Ísland lendir á HM í
Rússlandi. Spennan mun magnast
mikið næstu tvær vikurnar. Það
hafa verið mörg söguleg kvöld hjá
íslenska karlalandsliðinu á síðustu
árum og kvöldið í Kremlínhöllinni
1. desember næstkomandi verður
það ekki síður.
Hér á síðunni má sjá yfirlit yfir
styrkleikaflokkana og enn fremur
hvað er í boði ef við lendum með
annaðhvort Evrópuþjóð eða Amer-
íkuþjóð úr fyrsta styrkleikaflokki.
ooj@frettabladid.is
Ein önnur Evrópuþjóð í okkar riðli
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is
2i2 Studio
kr. 32.900
✿ Styrkleikaflokkarnir (Sæti á næsta FIFA-lista)
Fyrsti flokkur
Rússland (65)
Þýskaland (1)
Brasilía (2)
Portúgal (3)
Argentína (4)
Belgía (5)
Pólland (7)
Frakkland (9)
Annar flokkur
Spánn (6)
Perú (11)
Sviss (8)
England (15)
Kólumbía (13)
Mexíkó (16)
Úrúgvæ (21)
Króatía (17)
Þriðji flokkur
Danmörk (12)
Ísland (22)
Kosta Ríka (26)
Svíþjóð (18)
Túnis (27)
Egyptaland (31)
Senegal (23)
Íran (32)
Fjórði flokkur
Serbía (37)
Nígería (50)
Ástralía (39)
Japan (55)
Marokkó (40)
Panama (56)
Suður Kórea (59)
Sádi-Arabía (63)
n Liðunum var raðað í styrk-
leikaflokka eftir stöðu þeirra
á FIFA-listanum sem var
gefinn út í október en það
kemur nýr listi út í næstu
viku.
Nú er endanlega ljóst
hvaða 31 þjóð mun taka
þátt í HM í Rússlandi
með okkur Íslendingum
næsta sumar. Áhugasam-
ir geta dundað sér við
að setja saman drauma-
riðlana sína fram að
drættinum sem verður 1.
desember. n Átta riðlar verða á HM í
Rússlandi og fjórar þjóðir
í hverjum riðli. Efstu tvær
þjóðirnar í hverjum riðli
tryggja sér síðan sæti í sextán
liða úrslitum keppninnar.
Rússland, Þýskaland,
Portúgal, Belgía, Pólland
eða Frakkland
Þá getur Ísland lent
með þessum þjóðum
2. styrkleikaflokkur: Perú,
Kólumbía, Mexíkó eða
Úrúgvæ
4. styrkleikaflokkur: Nígería,
Ástralía, Japan, Marokkó,
Panama, Suður-Kórea eða
Sádi-Arabía.
Allar aðrar þjóðir úr hinum
styrkleikaflokkum en þær
sem koma frá Evrópu.
✿ Ef Ísland lendir í riðli...
með Evrópuþjóð úr
fyrsta styrkleikaflokki
ekki með Evrópuþjóð úr
fyrsta styrkleikaflokki
Brasilía, Argentína
Þá getur Ísland lent með
þessum þjóðum
2. styrkleikaflokkur: Spánn,
Sviss, England, Mexíkó eða
Króatía
4. styrkleikaflokkur:
(Serbía), Nígería, Ástralía,
Japan, Marokkó (Panama),
Suður-Kórea eða Sádi-Arabía.
Ef Ísland fær Mexíkó í sinn
riðil úr öðrum styrkleika-
flokki þá getur íslenska liðið
lent í riðli með Serbíu en
ekki með Panama.
1 7 . n ó v E m b E r 2 0 1 7 F Ö S t U D A G U r26 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
1
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
E
-2
2
9
0
1
E
3
E
-2
1
5
4
1
E
3
E
-2
0
1
8
1
E
3
E
-1
E
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K