Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2017
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Glæsilegir sólskálar sem lengja sumarið
og gera sælureitinn ómótstæðilegan
Yfir 40 litir í boði!
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Sólskálar
- sælureitur innan seilingar
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími 554 4300 • Fax 564 1187
198
4 - 2016
ÍS
LEN
SK FRAML
EI
ÐS
LA32
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Framsóknarmenn berjast fyrir
neyðarbrautinni á Reykjavíkur-
flugvelli, bæði á Alþingi og í borgar-
stjórn Reykjavíkur.
Á fimmtudaginn í síðustu viku
lögðu allir átta þingmenn Fram-
sóknarflokksins fram þingsályktun-
artillögu um opnun neyðarbrautar-
innar. Sama dag bókaði fulltrúi
Framsóknar og flugvallarvina í
borgarráði andstöðu við þá ósk að
byggingamagn á Hlíðarendasvæð-
inu yrði aukið um 5.000 fermetra frá
því byggingamagni sem áður hafði
verið samþykkt.
Í þingsályktunartillögunni segir
að Alþingi álykti að fela samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra að beita
sér fyrir því að NA/SV-flugbrautin á
Reykjavíkurflugvelli verði opnuð á
ný svo fljótt sem verða má. Ráð-
herra láti útbúa aðgerðaáætlun í
þessa veru og upplýsi Alþingi um
innihald hennar eigi síðar en í maí
2017.
Leið sjúklinga sé ávallt greið
„Reykjavíkurflugvöllur gegnir
lykilhlutverki sem miðstöð innan-
landsflugs og hefur þannig verulega
þýðingu fyrir samgönguöryggi þjóð-
arinnar. Flugvöllurinn er einnig afar
mikilvægur fyrir sjúkraflug með
sjúklinga af landsbyggðinni á Land-
spítalann. Eina hátæknisjúkrahús
landsins er staðsett í Reykjavík og
því er nauðsynlegt að tryggja eins
vel og auðið er að leið sjúklinga af
landsbyggðinni til höfuðborgarinnar
sé ávallt greið. Reglulega kemur upp
sú staða að veðurskilyrði og færð á
flugbrautum Reykjavíkurflugvallar
eru þannig að einungis er hægt að
lenda á neyðarbraut vallarins. Í
hvassri suðvestanátt er neyðar-
brautin t.d. eina flugbrautin á suð-
vesturhorni landsins sem sjúkra-
flugvélar geta lent á,“ segir m.a. í
greinargerð með tillögunni.
Að mati flutningsmanna er nauð-
synlegt að neyðarbrautin verði opn-
uð á ný þar til fundin hefur verið
framtíðarlausn fyrir eitt mikilvæg-
asta samgöngumannvirki þjóðar-
innar. Í því skyni sé lagt til að ráð-
herra beiti sér í málinu, hvort heldur
með sérstakri lagasetningu um
Reykjavíkurflugvöll eða á annan
hátt.
Stækkun á Valssvæðinu
Í borgarráði á fimmtudaginn var
lagt fram bréf umhverfis- og skipu-
lagssviðs, dags. 8. febrúar 2017, um
auglýsingu á tillögu um breytingu á
deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóð-
arinnar nr. 2 við Hlíðarenda. Sam-
kvæmt henni á byggingamagn á svo-
kölluðum A-reit að aukast um 5.000
fermetra og heildarbyggingamagn
atvinnuhúsnæðis á byggingasvæð-
inu að verða 63.900 fermetrar eftir
breytingu. Erindið var samþykkt
með sex atkvæðum. Borgarráðs-
fulltrúi Framsóknar og flugvall-
arvina, Sveinbjörg Birna Svein-
björnsdóttir, bókaði:
„Framsókn og flugvallarvinir
samþykkja ekki breytingar á skipu-
lagi sem fela í sér auknar bygging-
arheimildir á þessu svæði á Hlíðar-
enda enda fela þær í sér hækkun á
byggingum sem eru í aðflugslínu að
neyðarbrautinni eða braut 06/24 sem
reyndar hefur nú verið lokað skv.
ákvörðun innanríkisráðherra. Fram-
sókn og flugvallarvinir hafa hvorki
nú né áður samþykkt nokkur þau at-
riði sem snúa að því að skerða starf-
semi Reykjavíkurflugvallar eða tak-
markanir á framtíðarnotkun hans og
ljóst er að ef þessi skipulagstillaga
fer í gegn verður nánast útilokað að
enduropna umrædda braut.“
Málið fer til endanlegrar af-
greiðslu borgarstjórnar þar sem
ágreiningur var í borgarráði.
Framsókn berst enn
fyrir neyðarbrautinni
Þingsályktunartillaga á Alþingi og bókun í borgarráði
Morgunblaðið/RAX
Neyðarbrautin Sjúkraflugvél Mýflugs kemur til lendingar á braut 06/24 .
Útgáfuráðstefna fer fram í hátíðar-
sal Háskóla Íslands á morgun, 1.
mars, kl. 16-18, undir yfirskriftinni
„Hrun og endurreisn“. Tilefnið er
útgáfa Palgrave Macmillan á bók-
inni The Icelandic Financial Crisis:
A Study into the World’s Smallest
Currency Area, eftir þá Ásgeir
Jónsson, dósent og deildarforseta
Hagfræðideildar HÍ, og Hersi Sig-
urgeirsson, dósent við Við-
skiptafræðideild HÍ. Eftir ávörp
Ásgeirs og Hersis fara fram pall-
borðsumræður þar sem þátt taka
Jóhannes Karl Sveinsson, Jónas Fr.
Jónsson, Sigurður Hannesson og
Kristrún Heimisdóttir. Fund-
arstjóri er Ólafur Þ. Harðarson.
Ásgeir
Jónsson
Hersir
Sigurgeirsson
Ráðstefna í HÍ um
hrun og endurreisn
Björn en ekki Karl
Nafn Björns Karlssonar, forstjóra
Mannvirkjastofnunar, misfórst í
blaðinu á laugardag í umfjöllun um
mygluskemmdir í húsum og var
óvart skrifað Karl Björnsson. Beðist
er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
Verð á minkaskinnum virðist
hækka umtalsvert á uppboðsmark-
aði Kopenhagen Fur í Danmörku
þar sem öll íslensk minkaskinn eru
seld. Uppboðinu lýkur á morgun
og sýnist Birni Halldórssyni, for-
manni Sambands íslenskra loð-
dýrabænda, að hækkunin verði 10-
12% miðað við fyrsta uppboð árs-
ins, sem var í janúar.
„Þetta er þokkalegt skref,“ segir
Björn um hækkunina en minnir
um leið á að bændur fái lítið meira
í sinn hlut en á síðasta ári vegna
styrkingar íslensku krónunnar.
„Þetta er hrikalegt fyrir okkur
sem lifum á útflutningi. Krónan
styrkist hraðar en skinnin hækka í
verði.“
Skinn vantar á saumastofur
Verð á minkaskinnum byrjaði að
hækka aftur á síðasta ári eftir
djúpan öldudal árin á undan.
Björn segir að búin séu enn rekin
með verulegu tapi en hækkunin nú
geri það að verkum að tapið sé
minna en annars hefði orðið. Hann
segir að það sé gott fyrir bændur
að sjá að verðið sé á uppleið. Þeir
sérfræðingar sem hægt sé að fá til
að spá í framhaldið reikni frekar
með að verðið muni halda áfram að
hækka.
Framleiðsla á minkaskinnum
hefur minnkað mikið í kreppu
skinnaiðnaðarins. Björn segir að
svo virðist sem nóg sé af tilbúnum
varningi úr skinnum í verslunum
og birgðageymslum á kínverska
markaðnum, sem ræður miklu um
verðþróunina. Hins vegar vanti
saumastofurnar hráefni til að
vinna úr fyrir næsta sölutímabil.
Kaupendur hafi þó farið varlega á
uppboðinu. Margir hafi verið til-
búnir að kaupa á því verði sem var
niðurstaðan og öll skinn selst, að
minnsta kosti framan af uppboð-
inu. helgi@mbl.is
Styrking krónunnar
étur upp verðhækkun
„Þokkalegt skref“ segir minkabóndi um hækkun á uppboði
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Mat Fulltrúi kaupanda í Kína metur gæði minkaskinna í uppboðshúsi
Kopenhagen Fur í Danmörku. Þar eru öll íslensku skinnin boðin upp.
„Málverkin fundust og það er stór-
kostlegt og í raun kraftaverk að við
fáum þau aftur,“ segir Stephen
William Lárus Stephen, sonur
myndlistarkonunnar Karólínu
Lárusdóttur.
Sjö ókláruðum málverkum eftir
Karólínu var stolið úr geymslu lista-
konunnar fyrir áramót. Maður sem
stal verkunum gaf sig fram við lög-
reglu í síðustu viku og vísaði á mál-
verkin í geymslu í fjölbýlishúsi. Lög-
reglan hefur yfirheyrt manninn og
annan mann, sem aðstoðaði við mál-
verkastuldinn, og verður málið sent
til ákærusviðs til meðferðar.
Að sögn Guðmundar Páls Jóns-
sonar lögreglufulltrúa vildu menn-
irnir ekki upplýsa hvers vegna þeir
stálu verkunum. Eitt málverkið hef-
ur orðið fyrir smávægilegu hnjaski
en að öðru leyti virðast þau
óskemmd.
List Eitt verkanna sem stolið var.
Kraftaverk
að málverk-
in fundust