Morgunblaðið - 28.02.2017, Síða 15

Morgunblaðið - 28.02.2017, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2017 Aðalfundur N1 hf. Aðalfundur N1 hf. verður haldinn þriðjudaginn 21. mars 2017 klukkan 16.30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Dagskrá fundarins 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 2. Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur. 3. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins. 4. Ákvörðun tekin um greiðslu arðs vegna rekstrarársins 2016. 5. Stjórnarkjör. 6. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfirma. 7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varastjórnar og undirnefnda stjórnar. 8. Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu félagsins. 9. Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. 10. Önnur mál löglega upp borin. Tillögur a) Ársreikningur (liður 3) Stjórn leggur til að ársreikningur fyrir árið 2016 verði samþykktur. b) Arðgreiðsla (liður 4) Stjórn leggur til við aðalfund að arður verði greiddur til hluthafa að fjárhæð kr. 750.000.000 vegna rekstrarársins 2016 eða kr. 3,0 fyrir hverja eina krónu af nafnverði hlutafjár í félaginu. Arðurinn verður greiddur til hluthafa þann 6. apríl 2017. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 21. mars 2017 og arðsleysisdagur er því 22. mars 2017. Arðsréttindadagur er 23. mars 2017, sem þýðir að arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá N1 hf. hjá Verðbréfaskráningu Íslands í lok dags 23. mars 2017. c) Kjör endurskoðanda (liður 6) Stjórn leggur til að endurskoðunarfirmað Ernst & Young sjái áfram um endurskoðun á ársreikningi félagsins vegna rekstrarársins 2017. d) Þóknun til stjórnar (liður 7) Stjórn leggur til við aðalfund að stjórnarlaun komandi starfsárs verði sem hér segir: Stjórnarformaður fái kr. 680.000 á mánuði. Varaformaður stjórnar fái kr. 510.000 á mánuði. Aðrir stjórnarmenn fái kr. 340.000 á mánuði. Fulltrúar í starfskjaranefnd fái kr. 40.000 á mánuði og formaður starfskjaranefndar kr. 80.000 á mánuði. Fulltrúar í endurskoðunarnefnd fái kr. 70.000 á mánuði og formaður endurskoðunarnefndar kr. 120.000 á mánuði. e) Starfskjarastefna (liður 8) Stjórn leggur til að starfskjarastefna frá fyrra ári verði samþykkt óbreytt. f) Kaup á eigin bréfum (liður 9) Félaginu er heimilt að kaupa eigin hluti sem nemur allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í samræmi við 55. gr. hlutafélagalaga, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun skv. 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti eða á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr. og 2. mgr. 119. gr. laga um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli 118. og 131. gr. sömu laga. Heimild þessi gildir í 18 mánuði frá samþykkt hennar. Aðrar upplýsingar Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund verður að finna á vefsíðu félagsins www.n1.is/fjarfestatengsl. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka dagamilli klukkan 9:00-16:00. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð. Ekki verður hægt að greiða atkvæðimeð rafrænumhætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði ummál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@n1.is eigi síðar en fimmdögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.30 fimmtudaginn 16. mars 2017. Hluthafar eiga rétt á því að fá ákveðinmál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef þeir gera umþað skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundar skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@n1.is eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.30 þriðjudaginn 7. mars 2017. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflegameðminnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16.30 fimmtudaginn 16. mars 2017. Framboðum skal skila á skrifstofu N1 hf., Dalvegi 10-14, Kópavogi, eða á netfangið hluthafar@n1.is. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Hluthafar eiga rétt á að krefjast hlutfallskosningar eða margfeldiskosningar við stjórnarkjör í tvo sólarhringa frá því að stjórn kunngerir niðurstöður framboða til stjórnar, ef ekki er sjálfkjörið. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 16.00 á aðalfundardegi. Stjórn N1 hf. „Ég vona svo sannarlega að fólk nýti tækifærið því það er margt fallegt að sjá,“ segir Sævar Helgi Braga- son, formaður Stjörnuskoð- unarfélags Seltjarnarness. Hagstæð skilyrði eru fyrir bæði norðurljósa- skoðun og stjörnuskoðun næstu daga. Að sögn Sævars Helga munu stjörnurnar Venus og Mars skína skært á himnum og tunglið verður eins og sigð í laginu. „Himinninn verður mjög fallegur næstu kvöld þar sem tunglið er vaxandi, fer hækkandi á lofti og fjarlægist sólina.“ Á miðvikudags- og fimmtudags- kvöld er síðan von á dansandi norður- ljósum. Kvik og falleg „Ef allt rætist þá fáum við lítils- háttar segulstorm sem þýðir að norð- urljósin verða kvik og falleg,“ segir Sævar Helgi. Norðurljósin ættu að sjást alls staðar á landinu þar sem heiðskírt er og nægilega bjart. Norðurljósin verða til þegar hrað- fleygar agnir frá sólinni rekast á at- óm og sameindir í lofthjúpi jarðar, yf- irleitt í um 100 kílómetra fjarlægð. Þau eru ótengd jarðnesku veðri og hitastig hefur engin áhrif á sýnileika þeirra. Algengustu litir norðurljósa eru gulgrænn, grænn og rauður en þegar ljósin eru dauf greinir augað enga liti og þá sýnast þau gráhvít. Nú vinnur Sævar Helgi að því að skipu- leggja stjörnuskoðun fyrir almenning við Háskóla Íslands á föstudags- kvöld. Dansandi norðurljós  Hagstæð skilyrði fyrir norðurljósaskoðun og stjörnu- skoðun  Mest virkni og bestu skilyrðin um miðja viku Morgunblaðið/Golli Himinn Sævar Helgi gerir ráð fyrir kvikum og fallegum norðurljósum. Forstjóri Norðuráls segir að ekki hafi verið hætt við álver í Helguvík þrátt fyrir að móðurfélagið, Century Aluminium, hafi fært það niður í bókum sínum í kjölfar gerðardóms í deilum fyrirtækisins við HS Orku um verð fyrir orku til álversins. Í tengslum við uppgjör Century og Norðuráls fyrir fjórða ársfjórð- ung nýliðins árs var gert virðisrýrn- unarpróf vegna þess kostnaðar sem færður hafði verið til eignar vegna uppbyggingar í Helguvík. Nið- urstaðan varð sú að eignin var færð niður um 152,2 milljónir dollara sem svarar til 16 milljarða króna. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að í þessu felist ekki ákvörðun um að hætta við upp- byggingu í Helguvík. Framhaldið ráðist af möguleikum á orkuöflun á samkeppnishæfu verði í framtíðinni. helgi@mbl.is Morgunblaðið/RAX Álver Ekki er búið að afskrifa álver- ið í Helguvík. Málið er í biðstöðu. Century færir niður kostnað við Helguvík Skálholtsfélagið efnir á föstudag til málþings, hungurvöku, um Konur og kvennamenningu í Skál- holti. Fjallað verður um líf og hag kvenna á staðnum um aldir með stuttum fyrirlestrum og örsögum og myndum. Ætlunin er að draga fram úr glatkistunni og vekja áhuga, hungur eftir að vita meira og rannsaka betur. Framsögu hafa Auður Hildur Hákonardóttir, Kar- itas Kristjánsdóttir, Karl Sig- urbjörnsson, Kristinn Schram og Kristján Valur Ingólfsson. Mál- þingið verður haldið í sal Þjóð- minjasafnsins föstudaginn 3. mars kl. 16-18 og er öllum opið. Konur og kvenna- menning í Skálholti Þjóðminjasafnið Málþingið um konurnar verður þar á föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.