Morgunblaðið - 28.02.2017, Page 17

Morgunblaðið - 28.02.2017, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2017 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Geert Wilders kallar flokk sinn Frelsisflokkinn og vill banna sölu á Kóraninum, loka moskum og ísl- ömskum skólum, taka upp landa- mæraeftirlit og banna múslímum að setjast að í landinu. Frelsisflokkurinn (PVV) hefur mælst stærsti flokkur Hollands undanfarna mánuði en síðustu kann- anir benda til þess að forskot hans hafi minnkað. Ef marka má síðustu könnunina virðist frjálslyndi hægri- flokkurinn VVD jafnvel hafa unnið upp forskot Frelsisflokksins og munurinn á fylgi þeirra er innan skekkjumarka. Fylgi VVD mældist 15,2-16,9% og Frelsisflokksins 15,8- 17,6%, þannig að þeir eru langt frá því að ná meirihluta á þinginu. Geert Wilders hefur sjaldan tekið þátt í kosningafundum eða kapp- ræðum í sjónvarpi. Þess í stað hefur hann aðallega reitt sig á farsímann sinn og beitt þeirri aðferð að vekja athygli á sér með upphrópunum á Twitter, líkt og Donald Trump hefur gert. Forystumenn annarra flokka hafa útlistað stefnu sína í löngu máli í kosningabæklingum en Wilders hefur látið nægja að birta stutta stefnuyfirlýsingu á Facebook og Twitter. Birti falsaða mynd Wilders hefur ekki verið vandur að meðulum. Hann hefur t.a.m. verið gagnrýndur fyrir færslu á Twitter þar sem hann birti falsaða mynd af einum af andstæðingum sínum, Al- exander Pechtold, leiðtoga frjáls- lynda flokksins D66. „Pechtold er að mótmæla með hryðjuverkamönnum Hamas,“ tísti hann og birti mynd þar sem flokksleiðtoginn virtist standa í miðjum hópi skeggjaðra karla sem héldu á spjöldum með víg- orðum á borð við „Íslam sigrar Evr- ópu“. Einhver hafði notað Photo- shop til að setja höfuð Pechtolds á einn af íslamistunum. Viðbrögðin voru hörð en Wilders kærði sig kollóttan um það því að færslan hafði þjónað tilgangi sínum. Hann er með rúmlega 760.000 fylgj- endur á Twitter og hundruð þeirra endurtístu færslu hans. Áður hafði Pechtold fengið morðhótun frá þjóð- ernisöfgamanni og ekki er líklegt að færslan hafi dregið úr hatrinu í garð flokksleiðtogans. Sjálfur hefur Wilders ekki farið varhluta af hatri. Hann hefur verið undir vernd lögreglunnar frá því að hún komst að áformum um að ráða hann af dögum árið 2004. Flokkur hans aflýsti öllum kosningafundum sínum í vikunni sem leið eftir að skýrt var frá því að lögreglumaður hefði verið handtekinn fyrir að láta marokkóskum glæpamönnum í té upplýsingar um Wilders. Talið er að þeir vilji myrða hann vegna yfirlýs- inga hans um Marokkómenn, sem hann hefur m.a. kallað „úrþvætti“. Frjáls í eigin Frelsisflokki Frelsisflokkurinn fékk 10% at- kvæða og fimmtán þingmenn af 150 í síðustu kosningum árið 2012. Form- lega eru þó þingmennirnir ekki í flokknum því að Wilders er eini fé- lagi hans og hefur komið í veg fyrir að aðrir fái aðild að honum. Hann sagði eitt sinn í viðtali við Spiegel að ástæðan væri sú að hann vildi „koma í veg fyrir að rangir menn héldu flokknum í gíslingu“. Að sögn blaðs- ins er talað um að Wilders sé „gagn- tekinn af ótta við að missa stjórn“ á flokknum. Stefnuyfirlýsing Wilders kemst fyrir á einni blaðsíðu og áhersla er þar lögð á að uppræta þurfi áhrif ísl- ams, m.a. með því að banna sölu á Kóraninum. Hann hafði áður lagt til að bannað yrði að opna nýjar mosk- ur í landinu en nú vill hann að allar moskur verði bannaðar. Hann legg- ur einnig til að íslömskum skólum og móttökumiðstöðvum fyrir hælisleit- endur verði lokað. Hann vill banna innflutning fólks frá löndum þar sem múslímar eru í meirihluta, minnka framlög ríkisins til þróunaraðstoðar, auka útgjöld til löggæslu og öryggis- stofnana og hyggst efna til þjóðar- atkvæðagreiðslu um hvort Holland eigi að segja sig úr Evrópusam- bandinu. Tillögur Wilders um bann við Kóraninum og moskum samræmast ekki ákvæðum stjórnarskrár lands- ins og mannréttindasáttmála um trúfrelsi. Litlar líkur eru því taldar á að hann geti komið þeim í fram- kvæmd. Einn reyndustu þingmanna Sósíalistaflokksins, Harry van Bommel, segir að Wilders njóti góðs af því að viðhorf Hollendinga í inn- flytjendamálum hafi breyst, m.a. vegna mikillar fjölgunar hælisleit- enda á síðustu árum. „Hér á landi hefur verið vanmat á fjölda þeirra sem eru hræddir við íslam,“ hefur The New York Times eftir honum. Viðhorfsbreytinguna má einnig rekja að nokkru leyti til morða á tveimur Hollendingum. Pim Fortu- yn var myrtur níu dögum fyrir þing- kosningar árið 2002 eftir að hafa gagnrýnt fjölmenningarstefnu, fjölgun innflytjenda og áhrif íslams í Hollandi. Tveimur árum síðar myrti róttækur íslamisti kvikmynda- gerðarmanninn Theo van Gogh vegna myndarinnar Undirgefni þar sem fjallað er um kúgun múslím- akvenna. Morðin höfðu mikil áhrif á hollensk stjórnmál og vöktu um- ræðu um mikilvægi þess að vernda málfrelsið. Vill banna Kóraninn og allar moskur  Wilders er leiðtogi í eins manns flokki  Náði forskoti í fylgiskönnunum í Hollandi með farsímann að vopni  Nýtur góðs af breyttum viðhorfum, m.a. vegna morða á mönnum sem gagnrýndu íslam AFP Undir lögregluvernd Geert Wilders hefur verið undir vernd lögreglunnar frá því að hún komst að áformum um að ráða hann af dögum árið 2004. Hermt er að hann hafi einangrast á síðustu árum, m.a. frá fjölskyldu sinni. Kveður við harðari tón » Mark Rutte, forsætisráð- herra Hollands og leiðtogi frjálslynda hægriflokksins VVD, hefur hafnað stjórnar- samstarfi við flokk Geerts Wilders vegna stefnu hans í innflytjendamálum. » Tónn Rutte í innflytjenda- málum hefur þó harðnað. Hann segir að Hollendingar eigi að halda áfram að taka á móti flóttamönnum, en ekki of mörgum. Innflytjendur þurfi að laga sig að samfélaginu og „hollenskum gildum“. Geri þeir það ekki eigi þeir að fara frá Hollandi. Morgunblaðið gefur út þann 23. mars glæsilegt sérblað um HönnunarMars –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 12, mánudaginn 20. mars. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Hátíðin verður haldin víðs vegar um Reykjavík þar sem saman koma íslenskir hönnuðir og sýna fjölbreytt úrval nýrrar íslenskrar hönnunar og arkitektúrs af margvíslegu tagi. HönnunarMars DesignMarch Reykjavík 23.-26.03.2017 Donald Trump Bandaríkjaforseti kvaðst í gær ætla að stórauka út- gjöld ríkisins til varnarmála en minnka útgjöldin í öðrum málaflokk- um. Trump sagði á Twitter að hann hygðist setja þjóðaröryggi Banda- ríkjanna í forgang í fjárlögunum. Fréttaveitan AFP hafði eftir emb- ættismanni í stjórn forsetans að hann ætlaði að auka útjöldin til varnarmála um 54 milljarða dollara, jafnvirði 5.800 milljarða króna. Stefnt væri að því að spara sömu fjárhæð í öðrum málaflokkum. „Út- gjöldin til flestra alríkisstofnana verða þess vegna minnkuð,“ sagði hann. Að sögn AFP er gert ráð fyrir því að útgjöldin til varnarmála aukist um 10%. Talið er að loforð Trumps í kosningabaráttunni kosti alls um 5,3 billjónir dollara, samkvæmt útreikn- ingum óháðrar stofnunar í Wash- ington, Committee for a Respon- sible Federal Budget. Bush ver fjölmiðlana George W. Bush, fyrrverandi for- seti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt yfirlýsingar Trumps um fjölmiðlana í viðtali við NBC- sjónvarpið. For- setinn hefur m.a. lýst fjölmiðlunum sem „óvini bandarísku þjóðarinnar“ en Bush hafnar því. „Ég tel að fjöl- miðlar séu ómiss- andi þáttur í lýð- ræðinu. Að við þurfum á fjölmiðlunum að halda til að veita mönnum eins og mér aðhald,“ sagði Bush, sem sætti stundum sjálfur harðri gagnrýni í fjölmiðlunum, meðal annars vegna Íraksstríðsins. Boðar stóraukin útgjöld til hersins  Trump vill spara í öðrum málaflokkum AFP Varnarmál á oddinn Donald Trump forseti á leið á fund í Hvíta húsinu. George W. Bush

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.