Morgunblaðið - 28.02.2017, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2017
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Geert Wilders kallar flokk sinn
Frelsisflokkinn og vill banna sölu á
Kóraninum, loka moskum og ísl-
ömskum skólum, taka upp landa-
mæraeftirlit og banna múslímum að
setjast að í landinu.
Frelsisflokkurinn (PVV) hefur
mælst stærsti flokkur Hollands
undanfarna mánuði en síðustu kann-
anir benda til þess að forskot hans
hafi minnkað. Ef marka má síðustu
könnunina virðist frjálslyndi hægri-
flokkurinn VVD jafnvel hafa unnið
upp forskot Frelsisflokksins og
munurinn á fylgi þeirra er innan
skekkjumarka. Fylgi VVD mældist
15,2-16,9% og Frelsisflokksins 15,8-
17,6%, þannig að þeir eru langt frá
því að ná meirihluta á þinginu.
Geert Wilders hefur sjaldan tekið
þátt í kosningafundum eða kapp-
ræðum í sjónvarpi. Þess í stað hefur
hann aðallega reitt sig á farsímann
sinn og beitt þeirri aðferð að vekja
athygli á sér með upphrópunum á
Twitter, líkt og Donald Trump hefur
gert. Forystumenn annarra flokka
hafa útlistað stefnu sína í löngu máli
í kosningabæklingum en Wilders
hefur látið nægja að birta stutta
stefnuyfirlýsingu á Facebook og
Twitter.
Birti falsaða mynd
Wilders hefur ekki verið vandur
að meðulum. Hann hefur t.a.m. verið
gagnrýndur fyrir færslu á Twitter
þar sem hann birti falsaða mynd af
einum af andstæðingum sínum, Al-
exander Pechtold, leiðtoga frjáls-
lynda flokksins D66. „Pechtold er að
mótmæla með hryðjuverkamönnum
Hamas,“ tísti hann og birti mynd
þar sem flokksleiðtoginn virtist
standa í miðjum hópi skeggjaðra
karla sem héldu á spjöldum með víg-
orðum á borð við „Íslam sigrar Evr-
ópu“. Einhver hafði notað Photo-
shop til að setja höfuð Pechtolds á
einn af íslamistunum.
Viðbrögðin voru hörð en Wilders
kærði sig kollóttan um það því að
færslan hafði þjónað tilgangi sínum.
Hann er með rúmlega 760.000 fylgj-
endur á Twitter og hundruð þeirra
endurtístu færslu hans. Áður hafði
Pechtold fengið morðhótun frá þjóð-
ernisöfgamanni og ekki er líklegt að
færslan hafi dregið úr hatrinu í garð
flokksleiðtogans.
Sjálfur hefur Wilders ekki farið
varhluta af hatri. Hann hefur verið
undir vernd lögreglunnar frá því að
hún komst að áformum um að ráða
hann af dögum árið 2004. Flokkur
hans aflýsti öllum kosningafundum
sínum í vikunni sem leið eftir að
skýrt var frá því að lögreglumaður
hefði verið handtekinn fyrir að láta
marokkóskum glæpamönnum í té
upplýsingar um Wilders. Talið er að
þeir vilji myrða hann vegna yfirlýs-
inga hans um Marokkómenn, sem
hann hefur m.a. kallað „úrþvætti“.
Frjáls í eigin Frelsisflokki
Frelsisflokkurinn fékk 10% at-
kvæða og fimmtán þingmenn af 150 í
síðustu kosningum árið 2012. Form-
lega eru þó þingmennirnir ekki í
flokknum því að Wilders er eini fé-
lagi hans og hefur komið í veg fyrir
að aðrir fái aðild að honum. Hann
sagði eitt sinn í viðtali við Spiegel að
ástæðan væri sú að hann vildi „koma
í veg fyrir að rangir menn héldu
flokknum í gíslingu“. Að sögn blaðs-
ins er talað um að Wilders sé „gagn-
tekinn af ótta við að missa stjórn“ á
flokknum.
Stefnuyfirlýsing Wilders kemst
fyrir á einni blaðsíðu og áhersla er
þar lögð á að uppræta þurfi áhrif ísl-
ams, m.a. með því að banna sölu á
Kóraninum. Hann hafði áður lagt til
að bannað yrði að opna nýjar mosk-
ur í landinu en nú vill hann að allar
moskur verði bannaðar. Hann legg-
ur einnig til að íslömskum skólum og
móttökumiðstöðvum fyrir hælisleit-
endur verði lokað. Hann vill banna
innflutning fólks frá löndum þar sem
múslímar eru í meirihluta, minnka
framlög ríkisins til þróunaraðstoðar,
auka útgjöld til löggæslu og öryggis-
stofnana og hyggst efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um hvort Holland
eigi að segja sig úr Evrópusam-
bandinu.
Tillögur Wilders um bann við
Kóraninum og moskum samræmast
ekki ákvæðum stjórnarskrár lands-
ins og mannréttindasáttmála um
trúfrelsi. Litlar líkur eru því taldar á
að hann geti komið þeim í fram-
kvæmd.
Einn reyndustu þingmanna
Sósíalistaflokksins, Harry van
Bommel, segir að Wilders njóti góðs
af því að viðhorf Hollendinga í inn-
flytjendamálum hafi breyst, m.a.
vegna mikillar fjölgunar hælisleit-
enda á síðustu árum. „Hér á landi
hefur verið vanmat á fjölda þeirra
sem eru hræddir við íslam,“ hefur
The New York Times eftir honum.
Viðhorfsbreytinguna má einnig
rekja að nokkru leyti til morða á
tveimur Hollendingum. Pim Fortu-
yn var myrtur níu dögum fyrir þing-
kosningar árið 2002 eftir að hafa
gagnrýnt fjölmenningarstefnu,
fjölgun innflytjenda og áhrif íslams í
Hollandi. Tveimur árum síðar myrti
róttækur íslamisti kvikmynda-
gerðarmanninn Theo van Gogh
vegna myndarinnar Undirgefni þar
sem fjallað er um kúgun múslím-
akvenna. Morðin höfðu mikil áhrif á
hollensk stjórnmál og vöktu um-
ræðu um mikilvægi þess að vernda
málfrelsið.
Vill banna Kóraninn og allar moskur
Wilders er leiðtogi í eins manns flokki Náði forskoti í fylgiskönnunum í Hollandi með farsímann
að vopni Nýtur góðs af breyttum viðhorfum, m.a. vegna morða á mönnum sem gagnrýndu íslam
AFP
Undir lögregluvernd Geert Wilders hefur verið undir vernd lögreglunnar frá því að hún komst að áformum um að
ráða hann af dögum árið 2004. Hermt er að hann hafi einangrast á síðustu árum, m.a. frá fjölskyldu sinni.
Kveður við harðari tón
» Mark Rutte, forsætisráð-
herra Hollands og leiðtogi
frjálslynda hægriflokksins
VVD, hefur hafnað stjórnar-
samstarfi við flokk Geerts
Wilders vegna stefnu hans í
innflytjendamálum.
» Tónn Rutte í innflytjenda-
málum hefur þó harðnað. Hann
segir að Hollendingar eigi að
halda áfram að taka á móti
flóttamönnum, en ekki of
mörgum. Innflytjendur þurfi að
laga sig að samfélaginu og
„hollenskum gildum“. Geri þeir
það ekki eigi þeir að fara frá
Hollandi.
Morgunblaðið gefur út þann
23. mars glæsilegt
sérblað um HönnunarMars
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR
AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 12,
mánudaginn
20. mars.
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Hátíðin verður haldin víðs
vegar um Reykjavík þar
sem saman koma íslenskir
hönnuðir og sýna fjölbreytt
úrval nýrrar íslenskrar
hönnunar og arkitektúrs af
margvíslegu tagi.
HönnunarMars
DesignMarch
Reykjavík 23.-26.03.2017
Donald Trump Bandaríkjaforseti
kvaðst í gær ætla að stórauka út-
gjöld ríkisins til varnarmála en
minnka útgjöldin í öðrum málaflokk-
um.
Trump sagði á Twitter að hann
hygðist setja þjóðaröryggi Banda-
ríkjanna í forgang í fjárlögunum.
Fréttaveitan AFP hafði eftir emb-
ættismanni í stjórn forsetans að
hann ætlaði að auka útjöldin til
varnarmála um 54 milljarða dollara,
jafnvirði 5.800 milljarða króna.
Stefnt væri að því að spara sömu
fjárhæð í öðrum málaflokkum. „Út-
gjöldin til flestra alríkisstofnana
verða þess vegna minnkuð,“ sagði
hann.
Að sögn AFP er gert ráð fyrir því
að útgjöldin til varnarmála aukist
um 10%. Talið er að loforð Trumps í
kosningabaráttunni kosti alls um 5,3
billjónir dollara, samkvæmt útreikn-
ingum óháðrar stofnunar í Wash-
ington, Committee for a Respon-
sible Federal Budget.
Bush ver fjölmiðlana
George W. Bush, fyrrverandi for-
seti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt
yfirlýsingar Trumps um fjölmiðlana
í viðtali við NBC-
sjónvarpið. For-
setinn hefur m.a.
lýst fjölmiðlunum
sem „óvini
bandarísku
þjóðarinnar“ en
Bush hafnar því.
„Ég tel að fjöl-
miðlar séu ómiss-
andi þáttur í lýð-
ræðinu. Að við þurfum á
fjölmiðlunum að halda til að veita
mönnum eins og mér aðhald,“ sagði
Bush, sem sætti stundum sjálfur
harðri gagnrýni í fjölmiðlunum,
meðal annars vegna Íraksstríðsins.
Boðar stóraukin
útgjöld til hersins
Trump vill spara í öðrum málaflokkum
AFP
Varnarmál á oddinn Donald Trump
forseti á leið á fund í Hvíta húsinu.
George W. Bush