Morgunblaðið - 28.02.2017, Síða 27

Morgunblaðið - 28.02.2017, Síða 27
stundaði síðan nám við Iðnskólann í Keflavík 1963-66, lærði hár- greiðslu hjá Ingibjörgu Sigurðar- dóttur 1963-66, lauk sveinsprófi í þeirri grein og öðlaðist síðan meistararéttindi í hárgreiðslu. María byrjaði ung að vinna fyrir sér: „Þá þótti sjálfsagt að við krakkarnir færum að létta undir með þeim fullorðnu og sinna þeim störfum sem við gátum unnið skammlaust. Ég var ekki há í loft- inu þegar ég byrjaði að vinna í frystihúsinu. Síðar stundaði ég verslunarstörf hjá Kaupfélagi Suðurnesja, sinnti skrifstofustörf- um hjá Bifreiðaeftirlitinu og var flugfreyja hjá Loftleiðum í þrjú ár. Auk þess starfaði ég sem hár- greiðslumeistari um langt árabil.“ En hvenær hófst söngferilinn? „Ég held ég hafi verið 12 ára þeg- ar ég kom fyrst fram opinberlega. Ég söng með ýmsum dans- hljómsveitum, s.s. Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar gítarleik- ara en auk þess með Ragnari Bjarnasyni á Hótel Sögu, eina vertíð, með Þóri Baldurssyni, bróður mínum, en lengst með manni mínum, Rúnari Júlíussyni, í Geimsteini, og þá voru synirnir stundum með. Auk þess söng ég oft bakraddir með hinum ýmsu tónlistarmönnum.“ María sendi árið 1975 frá sér sólóplötuna Vökudraumar. Hún var kjörin Ungfrú Ísland í fegurðarsamkeppninni árið 1969 og tók í kjölfarið þátt í fegurðar- samkeppnunum Miss Universe og Miss Scandinavia í Finnlandi. María og Rúnar komu sér upp húsi á sínum tíma að Skólavegi 12 í Keflavík þar sem var allt í senn, heimili fjölskyldunnar, hljóm- plötuútgáfa og „upptökuheimili“ hjá Rúnari, sem rak þar fyrirtækið Geimstein auk þess sem María var þar með hárgreiðslustofu um skeið. María veiktist alvarlega fyrir tæpum fimm árum en hefur verið í endurhæfingu og er vongóð um framhaldið: „Maður verður bara að taka því sem höndum ber og halda svo áfram. Annað er ekki í boði.“ Fjölskylda Maður Maríu var Guðmundur Rúnar Júlíusson, f. 13.4. 1945, d. 5.12. 2008, tónlistarmaður og upp- tökustjóri. Foreldrar Rúnars voru Júlíus Eggertsson, f. 12.7. 1904, d. 23.11. 1985, múrari í Keflavík, og k.h., Guðrún Bergmann, f. 27.10. 1908, d. 27.4. 1989, húsfreyja. Synir Maríu og Rúnars eru Baldur Þórir Guðmundsson, 27.7. 1964, viðskiptafræðingur, búsettur í Keflavík en kona hans er Þor- björg Margrét Guðnadóttir og eru barnabörnin Björgvin Ívar, f. 1986, María Rún, f. 1990, og Ástþór Sindri, f. 1995; og Júlíus Freyr Guðmundsson, f. 22.9. 1971, fram- kvæmdastjóri, búsettur í Keflavík en kona hans er Guðný Kristjáns- dóttir og eru barnabörnin Kristín Rán, f. 1992, Brynja Ýr, f. 1998, og Guðmundur Rúnar, f. 2003. Lang- ömmubörnin eru nú þrjú talsins. Systkini Maríu eru Þórir Valgeir Baldursson, f. 29.3. 1944, tónlist- armaður, tónskáld, útsetjari og djassleikari; Júlíus, f. 1.7. 1952, málarameistari og starfar við umönnun aldraðra á Dalvík; Bald- ur, f. 1.2. 1956, skiltagerðarmaður í Hafnarfirði, og Ómar, f. 28.1. 1958, grafískur hönnuður á Hvols- velli. Foreldrar Maríu: Baldur Þórir Júlíusson, f. í Sunnuhvoli á Dalvík 15.9. 1919, d. 2.11. 1996, bifreiða- eftirlitsmaður og tónlistarmaður, og k.h., Margrét Hannesdóttir, f. í Keflavík 27.12. 1921, húsfreyja. Úr frændgarði Maríu Baldursdóttur María Baldursdóttir Sigríður Guðmundsdóttir húsfr. á Hellnum Sigurður Vigfússon b. á Hellnum Arnbjörg Sigurðardóttir húsfr. í Keflavík Hannes Einarsson sjóm. og verkam. í Keflavík Margrét Hannesdóttir húsfr. í Keflavík Guðrún Magnúsdóttir húsfr. á Úlfsstöðum og víðar Einar Gunnarsson b. á Úlfsstöðum og víðar í Skagafirði Þórir Baldursson tónlistarmaður, tónskáld og útsetjari Ragnheiður Júlíusdóttir húsfr. á Akureyri Hjálmar Júlíusson á Akureyri Kristján Eldjárn sjóm. í Nýjabæ á Dalvík Guðrún Hannesdóttir húsfr. í Keflavík Hjálmar Hjálmarsson leikari Júlíus Kristjánsson forstjóri á Akureyri Arnbjörn Hans Ólafsson sjóm. í Keflavík Salka Sól Eyfeld söng- kona Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningar- málaráðherra Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ Baldur Brjánsson töframaður Júlíus Brjánsson leikari Guðjón Brjánsson alþingismaður Rósa Þorsteinsdóttir húsfreyja í Nýjabæ Jón Stefánsson Sigurðsson í Nýjabæ, fyrsti landneminn á Dalvík Jónína Jónsdóttir húsfr. í Sunnuhvoli Júlíus Björnsson útgerðarm. í Sunnuhvoli á Dalvík Baldur Þórir Júlíusson bifreiðaeftirlitsm. og tónlistarm. í Keflavík Kristrún Karitas Sveinsdóttir húsfreyja við Dalvík Björn Daníel Friðriksson skipstj. og b. við Dalvík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2017 Jónas Helgason fæddist íReykjavík 28.2. 1839. For-eldrar hans eru Helgi Jónsson, bæjarfulltrúi og einn helsti trésmið- ur Reykjavíkur, og Guðrún Jóns- dóttir húsfreyja. Helgi var sonur Jóns Sturlusonar, bónda á Níp í Köldukinn, en Guðrúnar var dóttir Jóns Eyjólfssonar, bónda á Arnar- hóli í Gaulverjabæjarhreppi. Bróðir Jónasar var Helgi Helga- son, afkastamikill húsasmíðameist- ari, brúarsmiður, skipasmiður, út- gerðarmaður og arkitekt að m.a. Amtmannshúsinu sem stóð við Ing- ólfsstræti og gamla Kvennaskól- anum (síðar Sjálfstæðishúsið og loks NASA) tónskáld, formaður Söng- félagsins Hörpu og síðast en ekki síst frumkvöðull í málefnum lúðrasveita hér á landi, en hann stofnaði fyrstu lúðrasveitina hér á landi, Lúðraþeyt- arafélag Reykjavíkur, 1876. Eiginkona Jónasar var Margrét Árnadóttir og eignuðust þau tvo syni, auk þess sem Jónas átti dóttur. Jónas lærði járnsmíði og öðlaðist sveinsbréf í þeirri grein 1856 og var við söngfræðinám í Kaupmannahöfn 1875-76. Jónas sinnti járnsmíði til 1881 en helgaði sig eingöngu tónlist og söng- málum eftir það. Hann var söng- kennari við Barnaskólann í Reykja- vík frá 1876, við Kvennaskólann í Reykjavík frá sama tíma og við Barnaskólann á Seltjarnarnesi 1883- 98, stofnaði Söngfélagið Hörpu og stjórnaði söng þess, tók við sem dóm- organisti af Pétri Guðjohnsen og sinnti því embætti 1877 og til dánar- dags. Jónas var vakinn og sofinn yfir söngmennt og kirkjutónlist, beitti sér fyrir því að keypt yrðu orgel í fjölda kirkna hér á landi og kenndi fjölda manns orgelleik. Jónas samdi nokkur sönglög, eink- um við ljóð Steingríms Thorsteins- sonar, var ekki eins afkastamikill við tónsmíðar og bróðir hans, en lög hans hafa elst vel og eru sum enn sungin, s.s. Lýsti sól stjörnustól. Jónas lést 2.9. 1903. Merkir Íslendingar Jónas Helgason 90 ára Helga Gestsdóttir 85 ára Árni Rosenkjær Jóna Guðbjörg Gísladóttir Jón Bergsteinsson Kristleifur Einarsson 80 ára Erling Aspelund Hreinn Líndal Haraldsson Inga Áróra Guðjónsdóttir Jenný Marteinsdóttir María Gunnarsdóttir Mats Wibe Lund Ólafur Steinar Björnsson 75 ára Edda Jónsdóttir Guðmundur Gunnlaugsson Helga Valdemarsson Kristín Brynjólfsdóttir Kristján Ólafsson Magnús E. Ársælsson María Helga Hjálmarsdóttir 70 ára Guðmundur Brynjar Guðlaugsson Jóhanna Hannesdóttir Kristín Ingólfsdóttir Lilja Magnúsdóttir María Baldursdóttir Óttar Guðmundsson Sturla Már Jónsson 60 ára Einar Sveinn Ingólfsson Erla Hrönn Helgadóttir Guðlaug Daðadóttir Ólöf Sveinhildur Helgadóttir Sigurður Pétur Sigmundsson Vilborg Valdimarsdóttir 50 ára Aleks Laska Ellert Arnbjörnsson Garður Gaddi Einarsson Guðrún Halldórsdóttir Hafdís Björg Hjálmarsdóttir Jón Ragnar Helgason Julia Werner Katrín Sigurðardóttir Laufey Vilmundardóttir Margrét Richter Sigurjón Davíð Karlsson Stefán Ólafur Guðmundsson Þorvaldur Kristjánsson 40 ára Erla Andrea Pétursdóttir Friðbjörn Jósef Þorbjörnsson Hulda Axelsdóttir Katrín Helga Kristinsdóttir Laufey Harrysdóttir Maria del C. Ramirez Espinosa Ólöf Viktorsdóttir Piotr Maciejewski Pratik Kumar Rannveig Tryggvadóttir Reynir Hjálmarsson Sonja Sigurðardóttir Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson 30 ára Eggert Ingi Jóhannesson Eyjólfur Ari Jónsson Helgi Sæmundur Guðmundsson Inga María Sigurðardóttir Karen Ósk Pétursdóttir Karl Magnússon María Ingunn Þorsteinsdóttir Silja Margrét Stefánsdóttir Sveinbjörn Rögnvaldsson Vilhelm Már Bjarnason Til hamingju með daginn 30 ára Vilhelm ólst upp í Reykjavík, býr í Hafnar- firði, lauk prófi í íþrótta- fræðí í Finnlandi og er ís- hokkiþjálfari Skauta- félagsins Bjarnarins. Maki: Margrét Soffía Runólfsdóttir, f. 1988, lyfjafræðingur. Dóttir: Kolfinna Rán, f. 2016. Foreldrar: Brynja Egg- ertsdóttir, f. 1963, og Bjarni Kristinn Grímsson, f. 1955. Vilhelm Már Bjarnason 30 ára Silja ólst upp í Hafnarfirði, er nú búsett á Akureyri, er að ljúka námi í iðjuþjálfunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og sinnir jafnframt barni og búi. Maki: Karl Kristinn Stef- ánsson, f. 1982, rafvirki. Foreldrar: Stefán Karl Harðarson, f. 1961, sjó- maður, og Sólveig Mar- grét Magnúsdóttir, f. 1961, húsfreyja. Þau búa í Hafnarfirði. Silja Margrét Stefánsdóttir 30 ára María lauk MSc- prófi í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði og er skrifstofustjóri hjá Frétta- tímanum. Maki: Egill Guðmunds- son, f. 1982, pípu- lagningamaður. Börn: Aníta Sólveig, f. 2007; Helga Lilja, f. 2012, og Þorsteinn, f. 2014. Foreldrar: Svanhildur Skúladóttir, f. 1955, og Þorsteinn Friðriksson, f. 1955. María Ingunn Þorsteinsdóttir Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Verðdæmi galli EN471 á 900 vsk Kulda Dickies fr 19. m/ Vandaður sýnileikafatnaður á góðu verði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.