Morgunblaðið - 28.02.2017, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.02.2017, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2017 Heimildarmyndin Línudans eftir Ólaf Rögnvaldsson verður frumsýnd á Stock- fish-kvikmyndahátíðinni í Bíó Paradís í kvöld kl. 18. Myndin lýsir tæplega fimm ára baráttu bænda, landeigenda og náttúruvernd- arsamtaka gegn lagningu Blöndulínu 3, sem Landsnet hyggst leggja frá Blöndu- virkjun til Akureyrar, um Vatnsskarð, Skagafjörð, Öxnadalsheiði og Hörgárdal, að því er fram kemur í tilkynningu. Þar segir að myndin sé baráttusaga fólks sem eigi við ofurefli að etja og að bóndinn birt- ist í dramatísku hlutverki, í eldlínu átaka sem enginn sjái fyrir endann á. Frumsýning á Línudansi á Stockfish Átök Úr heimildarmynd Ólafs Rögn- valdssonar sem verður frumsýnd í dag. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Mér finnst mjög spennandi að spila á svona stuttum hádegistónleikum, því það myndast allt önnur orka á há- degistónleikum en á löngum tón- leikum seint að kvöldi til ,“ segir Sig- rún Kristbjörg Jónsdóttir, fiðlu- og básúnuleikari, sem ásamt tríói sínu leikur á fyrstu tónleikum tónleika- raðarinnar Freyjujazz, sem fram fara í Listasafni Íslands í dag kl. 12.15. Tónleikarnir eru um hálftíma langir. Í tilefni dagsins verður kaffi- stofa safnsins með saltkjöt og baunir á matseðli sínum. Tríó Sigrúnar skipa auk hennar Ásgeir Ásgeirsson á gítar og Þórður Högnason á kontrabassa. „Við höfum spilað saman í um tvö ár með hléum,“ segir Sigrún og tekur fram að hún hafi lifað miklu flökkulífi síðustu misseri. „Á tímabili tók því ekki að taka upp úr ferðatöskunni en núna er ég komin heim til frambúðar og er farin að kenna við listkennsludeild Listaháskóla Íslands auk þess sem ég kenni við Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar,“ segir Sigrún, sem tók þátt í tónleikaferðalagi með m.a. Of Mon- sters and Men og Sóleyju Stefáns- dóttur auk þess sem hún bjó og starf- aði í Brasilíu í þremur löngum lotum. Hafði nóg að gera í Brasilíu „Ég hafði nóg að gera í tónlistinni í Brasilíu og hefði gjarnan viljað ílengjast þar en það er ekki hlaupið að því að fá dvalar- og atvinnuleyfi,“ segir Sigrún, sem lauk fjögurra ára námi frá heimstónlistardeild við Tón- listarskólann í Rotterdam áður en leiðin lá til Suður-Ameríku. Tónlist frá Brasilíu verður fyrirferðarmikil á tónleikum dagsins og heyrast munu stílar á borð við samba, choro, afoxé og baião. „Efnisskráin býður upp á sýnishorn úr ólíkum brasilískum tón- listarstílum. Sumir hrynstílar þekkj- ast betur innan Evrópu en aðrir,“ segir Sigrún og tekur fram að tón- leikarnir verði órafmagnaðir. „Það er einstaklega gaman að spila inni á listasafni og meiri líkur á að fjöl- breyttur áheyrendahópur rati á tón- leikana.“ Aðspurð segist Sigrún fagna til- komu Freyjujazz. „Það er ekkert launungarmál að djassinn er karl- lægur, en best væri auðvitað ef við kæmumst út úr kynjaskiptingu tónlistargreinarinnar. Til þess þarf að sýna konum sama traust og körl- um er sýnt þegar kemur að tónleika- haldi og spilamennsku.“ „Tók því ekki að taka upp úr ferðatöskunni“  Tónleikaröðin Freyjujazz hefur göngu sína í dag kl. 12.15 Tríó Sigrúnar Ásgeir Ásgeirsson, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir og Þórður Högnason leika í hádeginu. „Markmiðið með tónleikaröðinni er annars vegar að skapa fleiri tækifæri fyrir konur í djassi og auka þannig fjölbreytnina og hins vegar að auka sýnileika kvenna og fjölga þannig fyrirmyndum,“ segir Sunna Gunnlaugsdóttir, pí- anóleikari og listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar Freyjujazz sem hefur göngu sína í Listasafni Ís- lands í dag. Boðið verður upp á hádegistónleika vikulega út apríl þar sem fram koma auk Sunnu sjálfrar píanistinn Anna Gréta Sigurðardóttir, fiðluleikarinn og söngkonan Greta Salóme Stef- ánsdóttir, sellóleikarinn Þórdís Gerður Jónsdóttir og söngkonan María Magnúsdóttir. „Bandaríski píanistinn Myra Melford er í tónleikaferðalagi um Evrópu og ætlar að stökkva til Ís- lands og spila 21. mars. Það er mikill fengur að fá erlendar djass- konur til að koma fram, ekki síst konur sem spila á hljóðfæri sem fáar konur spila á hérlendis til að sýna breiddina í hljóðfæraskipan- inni,“ segir Sunna og nefnir í því samhengi þýska kontrabassaleik- arann Eva Kruse sem kemur fram á tónleikum raðarinnar 18. apríl. „Djassgeirinn hefur lengi verið afar karllægur með þeim afleið- ingum að stelpur í tónlistarnámi sjá ekki leið inn í bransann og velja fremur að hætta í tónlist og snúa sér að öðru. Markmiðið með tónleikaröðinni er að hvetja tónlistarfólk af báðum kynjum til að skapa ný verkefni í samein- ingu.“ Aðspurð segist Sunna auðveld- lega geta skipulagt vikulega tón- leika í allt sumar og næsta vetur. „Vonandi verður framhald á tón- leikaröðinni en það fer auðvitað eftir aðsókn,“ segir Sunna og hrósar happi yfir góðu samstarfi við Listasafn Íslands. „Þarna er list í húsi listar, sem verður von- andi til þess að tónleikagestir njóti í leiðinni myndlistar og öf- ugt,“ segir Sunna. Miðar eru seldir við innganginn og almennt miðaverð er 1.500 krónur en aðgangur er ókeypis fyrir grunnskólabörn. „Þarna er list í húsi listar“ MARKMIÐIÐ AÐ FJÖLGA FYRIRMYNDUM KVENNA Stjórnandi Sunna Gunnlaugsdóttir. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Lau 8/4 kl. 20:00 158. s Fös 28/4 kl. 20:00 162. s Lau 20/5 kl. 20:00 166. s Þri 11/4 kl. 20:00 159. s Lau 6/5 kl. 20:00 163. s Fim 25/5 kl. 20:00 167. s Mið 19/4 kl. 20:00 160. s Fös 12/5 kl. 20:00 164. s Fös 26/5 kl. 20:00 168. s Lau 22/4 kl. 20:00 161. s Fös 19/5 kl. 20:00 165. s Lau 27/5 kl. 20:00 169. s Glimmerbomban heldur áfram! Úti að aka (Stóra svið) Mið 1/3 kl. 20:00 Fors. Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fim 2/3 kl. 20:00 Fors. Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas. Fös 3/3 kl. 20:00 Fors. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn. Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas. Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir. Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s Sun 23/4 kl. 13:00 41. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s Sun 30/4 kl. 13:00 42. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 8/4 kl. 13:00 40. s Sun 7/5 kl. 13:00 43. s Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Vísindasýning Villa (Litla svið ) Lau 4/3 kl. 13:00 9. sýn Sun 12/3 kl. 13:00 11. sýn Sun 5/3 kl. 13:00 10. sýn Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls. Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna. Illska (Litla sviðið) Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00 Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00 Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar - Aðeins þessar sýningar Fórn (Allt húsið) Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið) Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00 Þri 21/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00 Þri 21/3 kl. 13:00 Fim 23/3 kl. 10:00 Fös 24/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 10:00 Fim 23/3 kl. 11:30 Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í. Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is 40 ára Stýrðu birtunni heima hjá þér OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku PLÍ-SÓL GARDÍNUR Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.