Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Page 6
Khalid Masood var 52 ára fjölskyldu-maður, breskur í húð og hár, fæddur ájóladag árið 1964 í bænum Dartford í Kent. Masood komst í heimsfréttirnar í vik- unni þegar hann varð fjórum að bana og særði fjölda fólks á nágrenni þinghússins í Lund- únum áður en lögregla skaut hann til ólífis. Maðurinn var skírður Adrian Russell Elms en gegndi síðan í mörg ár ættarnafninu Ajo, eftir að móðir hans giftist fósturföður drengs- ins þegar sá litli var tveggja ára. Snerist hann í fangelsi? Masood, sem hefur reyndar notast við ýmis nöfn í gegnum tíðina – t.d. Khalid Choudry – tók upp núverandi nafn eftir að hann snerist til íslamstrúar. Ekki liggur ljóst fyrir hvenær það gerðist eða hvers vegna, en líkur eru leiddar að því að Masood hafi tekið trúna þegar hann sat á bak við lás og slá, að nálgast fertugt, eftir gróft ofbeldisverk. Mörg dæmi eru sögð um að kynni af íslömskum glæpamönnum innan fangelsisveggja í Evrópu leiði til þess að menn gangi Múhameð spámanni á hönd. Fyrir rétti, áður en hann var dæmdur til fanga- vistar, gaf maðurinn alltént ekki upp íslamska nafnið sem hann notaði síðustu ár. Fram hefur komið í frétt- um í Englandi að Masood hafi gifst íslamskri konu árið 2004 og þau flutt til Sádi- Arabíu árið eftir. Þar ku hann hafa starfað við ensku- kennslu en þau snúið heim á ný árið 2009. Yfirvöld hafa ekki staðfest þessar fregnir. sem hann bjó í töluverðan tíma, þar til í desem- ber síðastliðnum þegar fjölskyldan, hann, eiginkona og að minnsta kosti eitt ungt barn, virtist gufa upp. Þau fluttu burt án þess að kveðja kóng, prest eða nokkurn nágranna. Sérfræðingar engu nær Sérfræðingar lögreglunnar hafa velt vöngum síðan á miðvikudag um hvað manninum gekk til. Margir spurðu: Hefur árásin eitthvað með það að gera að Masood er íslamstrúar? Hryðjuverkasamtökin sem kalla sig Ríki ísl- ams biðu ekki boðanna heldur lýstu því yfir í gær að Masood hefði unnið voðaverkin í þeirra nafni. Ekkert bendir þó til þess að nokkuð sé að marka yfirlýsinguna og bent hefur verið á að þátttakendur í hinu heilaga stríði í nafni ísl- ams séu alla jafna miklu yngri en Masood, þótt vissulega séu undantekningar frá því. Yfirheyrslur yfir þeim handteknu höfðu síð- degis í gær ekki leitt neitt í ljós sem varpað gat ljósi á málið. Var Masood ef til vill bara „venju- legur“ brjálæðingur og ekki með nokkru móti hægt að útskýra framferðið? Hvað gekk honum til? Hvað veldur því að fjölskyldufaðir gerist hryðjuverkamaður? spyr The Independent á forsíðu á föstudaginn. Margir velta því fyrir sér en enginn er nokkru nær um ástæðu þess að 52 ára Breti drap fjóra og særði fjölda annarra í miðborg Lundúna. „Rannsókn okkar snýst um að reyna að skilja hvað vakti fyrir manninum, hvernig hann undirbjó sig og hvort hann átti sér vitorðsmenn,“ sagði fulltrúi lögreglunnar í gær, föstu- dag. Þá höfðu ellefu verið hand- teknir, á aldrinum 21 til 58 ára, bæði í Lundúnum og Birmingham, þar 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017 Khalid Masood, sem þá gekk reynd- ar undir nafninu Adrian Elms, var ekki í hávegum hafður af þorps- búum í Nortiam í austurhluta Sus- sex eftir atvik á vinsælli krá árið 2000. Hann bjó þar á þessum tíma. Eftir deilur við ónefndan mann; sumir segja reyndar að sá hafi ögr- að Elms með kynþáttaníði, dró hann upp hníf og risti í kinnina á eldri manni sem hugðist stilla til friðar. Var sá góði maður merktur að eilífu enda hvorki meira né minna en átta sentímetra svöðusár sem hann uppskar. Fram hefur kom- ið í fréttum að eftir uppákomuna á kránni hafi Elms verið útskúfaður í bænum. Útskúfaður eftir ofbeldi ’ Við óttumst ekki og munum aldrei bugast frammi fyrir hryðjuverkamönnum. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. ’ Íbúar Lundúna munu aldrei láta hryðjuverk buga sig. Sadiq Khan, borgarstjóri. ERLENT SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is MEXÍKÓ MEXÍKÓBORG Kornkaup- endur í Mexíkó gætu sett krók á móti bragði vegna hótana Donalds Trumps Bandaríkja- forseta um stórauknar tollahækkanir á mexíkóskar vörur. Þeir hafa í áratugi alið búfé á bandarísku korni, sem þeir kaupa fyrir milljarða dollara ár hvert – aðallega frá Iowa, Norður-Dakóta, Kansas, Missouri og Nebraska, ríkjum þar sem Trump fékk mikinn stuðning í forsetakosningunum. Forsetinn segist með tollahækkunum vilja verja störf Bandaríkjamanna, en það vopn gæti snúist í höndum hans. Mexíkóar, sem eru lang- stærstu kaupendur bandarísks korns, eiga í viðræðum við seljendur í Argentínu og Brasilíu. VÍETNAM PHUYEN Prakkarastrik þriggja víetnamskra vina á fylliríi breyttist í martröð á dögunum þegar þeir opnuðu flóðgáttir uppistöðulóns í PhuYen héraði í miðju landinu. Uppskera á stóru landsvæði eyðilagðist þannig ð fjárhagstjón er gífurlegt auk þess sem yfirvöld teljaa ættu á að vatnsskortur verði á svæðinu yfir heitastah ma ársins. Alls höfðu umtí arðar lítra runnið úrtveir millj u áður en tókst að stöðvalónin rennslið; það jafngildir einum 800 sundlaugum í ólympíustærð, 50 metra löngum. MYANMAR YANGON Kona í Myanmar hefur höfðað mál gegn syni sínum fyrir að kalla hana „hóru“ á Facebook. Sonurinn sýndi með þessum hætti óánægju sína með samband móður sinnar og kærasta hennar en skv. lögum sem ríkisstjórn Aung San Suu Kyi setti í fyrra er hægt að dæma fólk í allt að þriggja ára fangelsi fyrir meiðandi ummæli á netinu. Lögsóknum vegna rógburðar hefur fjölgað mikið síðan. GANA MPOKINTA Stjórnvöld í Gana hafa lokað um og vinsælum ferðamannastað viðafar falleg o-fossa, í héraðinu Brong Ahofa, eftir aðKintamp s létu lífið þegar risastórt tré féll á hóp20 mann da sem var á sundi við fossinn. Þeir semnemen létust krömdust og margir aðrir slösuðust alvarlega. Í framhaldinu verður farið í sérstaka skoðun á öryggismálum við alla vinsælustu ferðamannastaði landsins. Forsíða Independent á föstudag: Hvað veldur því að fjölskyldufaðir gerist hryðjuverkamaður? Mynd af Khalid Masood sem breska lögreglan birti í gær.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.