Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Qupperneq 8
Í FÓKUS
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017
FJÖLSKYLDAN James Comey og eiginkona hans, Pat-
rice (fædd Failor) kynntust á fyrsta ári hennar í há-
skóla, þegar þau stunduðu nám í William and Mary
College í Williamsburg í Virginíu.
Hjónin eignuðust sex börn og eru fimm á lífi. Árið
1995 urðu þau fyrir því áfalli að níu daga gamall sonur
þeirra, Collin, lést vegna B-streptókokkabakteríu.
Patrice birti opið bréf í dagblaðinu The Baltimore
Sun mánuði eftir andlát hvítvoðungsins þar sem hún
sagði frá reynslu hjónanna og barna þeirra. „Ég vil ekki
að nokkur önnur fjölskylda þurfi að þjást vegna harm-
leiks sem svo auðvelt er að koma í veg fyrir,“ skrifaði
Patrice. Hún upplýsti í bréfinu að 15 til 30% fullorð-
inna, heilbrigðra kvenna væru með umrædda bakteríu
en þó einkennalausar. Auðvelt væri að komast að því
með skimun hvort verðandi móðir væri með bakt-
eríuna, heppilegast á 35. til 37. viku meðgöngu. Eftir
það yrði hægt að meðhöndla konuna með mildum
sýklalyfjum og hefja síðan lyfjagjöf á barninu strax eftir
fæðingu, áður en bakterían skaðar heila eða mænu.
Staðreyndin væri reyndar sú að innan við fjögur pró-
sent barna sýktra mæðra sýktust einnig. James Comey og Patrice ásamt börnum þeirra fimm sem lifa.
Misstu níu daga gamlan son
JAMES BRIEN COMEY Forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar, FBI,
hefur verið mjög í kastljósi fjölmiðla undanfarna daga. Hann staðfesti, þar
sem hann sat fyrir svörum leyniþjónustunefndar Bandaríkjaþings, að til
rannsóknar væru meint afskipti rússneskra stjórnvalda af forsetakosning-
unum vestanhafs í haust og tengslum þeirra við framboð Donalds Trumps
núverandi forseta. Þá svaraði hann því til að engar sannanir væru fyrir þeim
staðhæfingum Trumps að forveri hans í starfi, Barack Obama, hefði látið
hlera síma hans í aðdraganda kosninganna.
Forstjóri FBI, James Brien Comey, ber höfuð og herðar yfir flesta sam-
ferðamenn sína enda 203 cm hár, en þó er ekki líklegt að Trump líti upp til
hans um þessar mundir, frekar en Hillary Clinton þegar Comey tilkynnti, tíu
dögum fyrir forsetakosningarnar í haust, að rannsókn væri hafin á ný á
tölvupóstum hennar þegar Clinton var utanríkisráðherra. Gekk hún svo
langt að kenna Comey, og Vladimír Pútin Rússlandsforseta, um að hún tap-
aði kosningunum. Svo fór reyndar að FBI taldi ekki ástæðu til frekari
aðgerða vegna tölvupóstanna, en skaðinn var skeður að mati Clinton.
Eftir að námi lauk starfaði Comey lengi sem lögfræðingur hjá hinu
opinbera, síðast saksóknari í New York, áður en hann varð aðstoðar-
dómsmálaráðherra í ríkisstjórn George Bush í desember 2003. Starfinu
gegndi hann þar til í ágúst 2005 þegar hann hóf störf í einkageiranum,
sem lögfræðingur og varaforseti Lockheed Martin, stórfyrirtækis á
sviði flugvélaframleiðslu og tækni-, varnar- og öryggismála af ýmsu
tagi. Árið 2010 lét Comey af störfum hjá Lockheed Martin og starfaði
um tíma í fjármálageiranum, þar til hann tók við stjórn FBI. Comey var
yfirlýstur repúblikani árum
saman og því vakti nokkra at-
hygli að forseti Demókrata-
flokksins skipaði hann for-
stjóra FBI. Comey studdi
John McCain fjárhagslega í
baráttunni 2008 þegar hann
laut í lægra haldi fyrir Obama
og Mitt Romney 2012, þegar
Obama hafði aftur betur í for-
setakosningunum.
Comey hefur verið óflokks-
bundinn síðan hann varð for-
stjóri FBI. skapti@mbl.is
REYNSLA James Comey varð á
unglingasaldri fyrir óskemmtilegri
lífsreynslu ásamt bróður sínum.
Glæpamaður, sem hafði nauðgað
tveimur barnapíum á svæðinu,
braust inn á heimili fjölskyldunnar
í New Jersey þegar bræðurnir
voru tveir heima, beindi að þeim
byssu og læsti inni á baðherbergi á
meðan hann leitaði verðmæta.
Bræðurnir komust út um glugga,
rákust þá á manninn en komust
inn, læstu á eftir sér og hringdu í
lögregluna. Comey hefur sagt að
vegna atviksins viti hann hve sál-
fræðilega erfitt það getur verið að
lenda í klóm glæpamanna.
Haldið
föngnum
Bræðurnir Peter, til vinstri, og James Comey fyrir utan gluggann þar sem þeir
komust út þegar glæpamaðurinn braust inn í hús fjölskyldunnar á sínum tíma.
AFP
NÁM Comey lagði stund á
efnafræði í William and
Mary háskólanum. Einu
sinni á leið í tíma, á öðru
ári, vakti orð á upplýs-
ingatöflu á ganginum at-
hygli hans: Dauði. Þar var
auglýst námskeið í trúar-
bragðadeildinni, og lýs-
ingin á því vakti áhuga
Comeys. Hann gat komið
námskeiðinu um dauðann
inn í stundatöflu sína og út-
skrifaðist á endanum úr skól-
anum með BA-próf bæði í
efnafræði og trúarbragðafræð-
um. Seinna lærði Comey lög-
fræði í Chicago-háskóla.
Comey segir nám í trúar-
bragðafræði hafa breytt miklu;
vegna þess mæti hann hverju við-
fangsefni með opnum huga, eigi
betra með að skilja allar hliðar
mála og að setja sig inn í deilur.
James Comey flytur hátíðarræðu við
skólasetningu í William and Mary.
Flestir líta
upp til hans
James Comey með Obama forseta og eiginkonunni
Patrice, þegar hann tók við embætti forstjóra FBI.
AFP
’Comey studdi tvo repú-blikana í forsetakosn-ingum gegn Obama, báðirlutu í lægra haldi en demó-
kratinn Obama skipaði
hann síðar forstjóra FBI.
AFP
Donald Trump forseti, fyrir miðju, fundar með stjórnendum helstu öryggis- og leyniþjónustu-
stofnana. Mike Pence varaforseti tekur í hönd Comeys, Joseph Clancy, forstjóri CIA til vinstri.
Mikilvægt
námskeið
um dauða
VEISLUÞJÓNUSTA
MARENTZU
www.marentza.is - 553 8872 - info@marentza.is
Allar gerðir af veislum
sérsniðnar að þínum þörfum
• Fermingarveislur • Brúðkaup
• Erfidrykkjur • Veitingar fyrir fundi
• Móttökur • Útskriftir