Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Síða 18
STJÓRNMÁL 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017 S álarlíf leiðtoga og skilningur og mis- skilningur í alþjóðastjórnmálum hefur verið viðfangsefni Roberts Jervis í hartnær hálfa öld. Bók hans Perception and Misperception in International Politics frá 1976 er skyldulesning þeirra sem leggja fyrir sig alþjóðastjórnmál í stjórnmálafræði. Í liðnum mánuði kom út hjá Princeton University Press bókin How States- men Think: The Psychology of International Politics eftir Jervis, sem er prófessor í al- þjóðastjórnmálum við Columbia-háskóla í New York og hefur kennt þar frá 1980. Í bókinni er að finna greinar sem hann hefur birt á liðnum árum og gera skil sýn hans á efnið. Það er óhætt að segja að titill bókarinnar, Hvernig leiðtogar hugsa, hitti í mark. Í það minnsta hefur lítið annað verið rætt eftir að Donald Trump var kjörinn forseti Bandaríkjanna í nóvember í fyrra. „Yfirleitt hafa þeir sem kjörnir eru forsetar ákveðna sýn í alþjóðastjórnmálum,“ segir Jerv- is. „Hann er mjög áhugaverð undantekning að einu leyti. Almenna reglan er sú að fólk fer sér hægt í að skipta um skoðun. Flestir þeir sem verða forsetar hafa hugsað um utanríkismál, eitthvað tekist á við málefnið og mótað sér sýn á heiminn og önnur lönd. Hún getur breyst með- an þeir sitja í embætti en það gerist hægt. Trump hefur sýn á heiminn en ekki sérstaklega á alþjóðastjórnmál. Við sjáum þennan óstöð- ugleika í sýn hans á Rússland og Kína. Fyrst segir hann, kannski ættum við að hverfa frá stefnunni um eitt Kína, en kúvendir þegar það veldur uppnámi. Snöggar breytingar á borð við þetta eru óvenjulegar. Ég held að það sé vegna þess að hann er ekki með fastmótaða afstöðu til annarra landa.“ Bandaríkjamenn alltaf hlunnfarnir? Jervis segir að hjá Trump megi á hinn bóginn sjá almenn viðhorf til heimsins, sem hann hafi látið í ljósi löngu áður en hann varð forseti. Vís- ar Jervis þar til auglýsinga sem Trump birti í New York Times fyrir nokkrum áratugum þess efnis að Bandaríkjamenn láti alltaf hlunnfara sig. „Það skiptir ekki máli hverjir eru þar að verki,“ segir hann. „Það eru andstæðingar, bandamenn, við höfum aldrei fengið góðan samning, við berum hlutfallslega meiri byrðar, við höfum ekki haft nógu slungna og harðsnúna leiðtoga. Þessi afstaða ber vitni viðhorfum um að græði annar tapi hinn. Vissulega getur verið vit í því að taka upp samninga og semja upp á nýtt. Sérfræðingar segja mér að hægt sé að gera breytingar á fríverslunarsamningi Norð- ur-Ameríku, NAFTA, sem myndu vera öllum til hagsbóta. Það er hins vegar ekki það viðhorf sem hann hefur fram að færa. Því má bæta við að hann hefur ekki sterka tilfinningu fyrir því hverjir eru óvinir hans og vinir.“ Sú fullyrðing að Bandaríkjamenn fari halloka í öllum samskiptum við umheiminn kann að hljóma undarlega í eyrum annarra ríkja, ekki síst þar sem öflugasta ríki heims á í hlut. „Þessi sýn á heiminn er áhyggjuefni,“ segir Jervis. „Stóra spurningin, ekki bara fyrir fræði- menn heldur alla, er að hve miklu leyti utanrík- isstefna hans muni þegar upp er staðið end- urspegla persónulegar skoðanir hans. Þarna kemur tvennt til greina. Afstaða hans gæti breyst. Það er líklegt í samskiptum við einstök lönd, sérstaklega þegar kemur að samskiptum við leiðtoga. Hann virðist halda að lyndi honum vel við leiðtogann verði samskiptin við landið góð, sem er stórfurðulegur samsláttur. Við vit- um að gott persónulegt samband getur mildað ágreining og slæmt samband gert illt vera, en það ræður ekki úrslitum. Oft er mjög almenni- legt fólk leiðtogar landa sem við eigum í ágrein- ingi við og stundum geta bandamenn okkar ver- ið undir forystu manna sem maður vildi helst ekki vera með í herbergi. Hann virðist slá þessu saman og það kann að endurspegla sjálfshrifn- ingu hans, sem kemur fram í að hann heldur að heimurinn hverfist um sig.“ Jervis segir að það gæti mildað framgöngu Trumps í utanríkismálum komi honum vel sam- an við erlenda leiðtoga, en líklegra sé að emb- ættismannakerfið, þingið og kjósendur bremsi hann af. Aðrir leikendur á alþjóðasviðinu geti líka haft áhrif, segir Jervis, og nefnir Mexikó. „Það er ólíklegt að Mexíkóar muni borga fyr- ir múrinn, jafnvel þótt Trump reisi hann,“ segir Jervis. „Hann hefur talað um að skera niður að- stoð til Mexíkó og láta féð renna til múrsins, en mikið af því fé sem fer til Mexíkó er notað í hluti sem koma okkur til góða. Það á sérstaklega við um sameiginlegar öryggisráðstafanir. En við vitum ekki hversu agaður hann verður og hvaða skorður heimurinn sem hann þarf að fást við mun setja honum.“ Spurningin er ekki aðeins hvernig Trump skilur heiminn, heldur hvernig heimurinn skilur Trump, hvernig aðrir leiðtogar muni túlka orð hans og meta hvað hann hefur í hyggju. Um þá spurningu ætlaði Jervis að fjalla í tíma sama dag og viðtalið fór fram. „Ég hef sagt við nemendur mína að ég myndi elska að lesa skeyti frá sendiráðum hér um Trump,“ segir hann. „Ég veit ekki hversu vel þau eru dulkóðuð – hvernig er dulkóðunin hjá ykkur? – en ég er viss um að NSA (Þjóðar- öryggisstofnunin) getur séð samskipti ein- hverra þeirra og þá er spurningin hvort þeir sýni Trump skeytin.“ Hinn raunverulegi Trump? Jervis segir að Trump hafi sýnt á sér ýmsar hliðar frá því hann tók við embætti og ber sam- an þegar hann ávarpaði Bandaríkjaþing í lok febrúar og umtalaðan blaðamannafund tæpri viku áður. „Það var ekki gríðarlegur munur á innihaldi í ávarpinu á þingi og því sem Trump sagði á blaðamannafundinum. Tónninn í þingræðunni var hins vegar hófstilltur, þarna var agi og yfir- vegun sem gaf til kynna að þar færi maður sem hægt væri að eiga samskipti við. Á blaðamanna- fundinum gekk Trump af göflunum. Í sendiráð- um og utanríkisráðuneytum hlýtur spurningin að vera hvaða Trump muni mæta þegar haldnir verða leiðtogafundir. Það sama á við skapist neyðarástand í alþjóðamálum. Mun sá Trump sem birtist á þinginu mæta á leiðtogafundinn en sá sem var á blaðamannafundinum láta til sín taka í neyðarástandinu? Svör þeirra eru örugg- lega ólík frá einu sendiráði til annars og ég hef ekki svar.“ Erfitt er að finna ólíkari forseta en Trump og Barack Obama, forvera hans. Nálgun Obama við alþjóðamál var nánast fræðileg en Trump virkar hvatvís og óútreiknanlegur. „Í tíð þess fyrri var viðkvæðið „ekkert drama hjá Obama“,“ segir Jervis. „Sagt er að hann hafi alltaf verið rólegur. Ég hef ekki hitt hann en fyrrverandi nemendur mínir voru í háum stöð- um og sátu marga mikilvæga fundi. Að þeirra sögn var enginn munur á Obama hvort sem hann var á lokuðum fundum eða kom fram op- inberlega. Þeir kunnu að meta að hann hvatti til umræðna en viðurkenndu á hinn bóginn að fundirnir hefðu verið endalausir og oftar verið farið yfir sömu hlutina en nauðsynlegt var. Hann hefði ekki verið óákveðinn vegna þess að hann hefði forðast að taka ábyrgð, heldur hefði hann viljað hugsa hlutina til enda og að aðrir gerðu það sama. Það kom fyrir að hann skipti um skoðun og nefni ég þar sérstaklega sprengjuárásirnar á Sýrland, hvort leita ætti samþykkis þingsins eða ekki. En það er hægt að rekja hvernig hann bar sig að og hugsaði, hvort sem það var rétt eða rangt. En Trump minnir mig á þegar afastrákurinn minn var sjö ára. Hann var alltaf að skipta um skoðun og skipta skapi. Tökum pyntingar. Upphaflega sagði hann að hann teldi að pyntingar væru óskilvirk yfirheyrsluaðferð. Svo hittir hann James Mattis varnarmálaráðherra og segir að hann hafi sann- fært sig um að svo væri ekki. Nokkrum vikum síðar segist hann svo telja að pyntingar séu óskilvirkar, en Mattis fái að ráða för. Þarna kemur hvatvísin fram og skorturinn á dýpt.“ Jervis segir ljóst að Obama hafi lært af reynslunni eftir því sem leið á valdatíma hans. Á fyrsta árinu hafi hann í tvígang endurskoðað stöðu mála í Afganistan og ákveðið að senda fleiri hermenn. Það kunni að hafa verið rétt, þótt Jervis leyfi sér að efast, en ekki hafi verið vel að málum staðið og Obama hafi vitað það og lært af því. „Tökum síðan Trump og árásina í Jemen,“ segir hann og vísar til fyrstu hernaðar- aðgerðarinnar sem hinn nýi forseti veitti heimild til. Bandarískur sérsveitarmaður lést í árásinni og 29 óbreyttir borgarar féllu. „Ég veit ekki meira en almenningur. Það getur verið að aðgerðin hafi tekist þrátt fyrir mann- fallið. Það gæti einnig verið að aðgerðin hafi verið vandlega skipulögð. Við höfum tilhneig- ingu til að tengja árangur við gott skipulag en það þarf ekki að vera og heppni getur skipt máli. En það er augljóst að af þessu má læra. Ég myndi byrja á að benda á að taka ekki svona ákvarðanir við kvöldmatarborðið. Þannig virð- ist þetta hafa verið gert. Það þarf að skoða allar hliðar og kanna og fullvissa sig um að herfor- ingjarnir hafi unnið heimavinnuna sína í stað þess að gefa sér það. Ég hef ekki áhyggjur af þessu út af því að aðgerðin mistókst, heldur vegna þess að ég tel að hann hafi ekki lært neitt, hann átti sig ekki á að hann gerði mistök. Það er ekkert til að skammast sín fyrir, heldur Hugrekkið til að sofa illa á nóttunni Í alþjóðastjórnmálum eigast við leiðtogar með ólíkan bak- grunn og skap. Villuljós, meinlokur og glapsýni hrjá þá og oft má lítið bera út af til að eitthvað fari úrskeiðis. Sérgrein Roberts Jervis er skilningur og misskilningur í alþjóða- pólitík og nýjasta bók hans heitir Hvernig leiðtogar hugsa. Karl Blöndal kbl@mbl.is Donald Trump og Barack Obama takast í hendur við embættistöku hins fyrrnefnda í Washington 20. janúar á þessu ári. Vart er hægt að hugsa sér ólíkari leiðtoga. AFP Saddam Hussein hleypir af í desember árið 2000. Bandarískum ráðamönnum þótti útilokað að Hussein drægi eftirlitsmenn á asnaeyrum ef engin væri gereyðingavopnaáætlunin. Reuters Robert Jervis

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.