Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Qupperneq 21
Dans er list augnabliksins
Skólinn fagnar 65 ára afmæli á árinu og af því
tilefni verður stór afmælissýning sem allir
nemendur skólans taka þátt í. Æfingar hafa
staðið yfir í marga mánuði en sýnt verður í
Borgarleikhúsinu mánudaginn 27. mars.
„Við byrjum á yngstu nemendum og svo koll
af kolli en það endar svo í stóru hópatriði.
Þetta verður skemmtilegt að sjá. Að þessu til-
efni hef ég samið nýtt númer við músík sem er
mjög grand og svolítið brjáluð.“
Hvernig finnst þér Íslendingar taka dansi?
„Ég átti einu sinni vin sem sagði, mér hund-
leiðist ballett, ég slekk alltaf á sjónvarpinu
þegar hann kemur. Hvernig veistu þá að þér
finnst hann leiðinlegur? spurði ég hann,“ segir
Guðmundur og hlær.
„Ég held að það séu rosalega margir sem
ekki gefa þessu listformi séns. Fólk fer kannski
á eina sýningu, finnst hún leiðinleg og fer aldrei
aftur. En dansinn er rosalega fjölbreyttur. Það
er mjög erfitt að draga ályktun út frá einni sýn-
ingu. Það er bara eins og að hlusta á eitt lag og
þér finnst það leiðinlegt og þú hættir að hlusta
á tónlist. Sem listform erum við að túlka tilfinn-
ingar án orða, þó að það sé oft notaður texti í
bland við hreyfingarnar. Það er mjög margt
sem hægt er að segja með líkamanum sem ekki
er hægt að segja með orðum. Fólk er oft hrætt
við að það þurfi að skilja danssýningar en í
rauninni er það ekki nauðsyn. Við viljum að
sýningin veki einhver hughrif hjá þér. Þú færð
einhverja tilfinningu, þú þarft ekki að skilja.
Þetta er kannski frekar list augnabliksins. Það
eru vissulega til verk með boðskap en það eru
líka til abstrakt verk sem eru fallegar hreyf-
ingar á sviði með fallegri tónlist sem skilur eftir
einhverja tilfinningu hjá áhorfendum.“
Lagar búninga og saumar
Blaðamaður getur ekki annað en spurt út í
saumavélina sem blasir við.
Af hverju er skólastjórinn með saumavél?
„Já, það er góð spurning!“ segir hann og
hlær. „Það er nú þannig því miður að þessi
skóli er, eins og svo margir skólar sem eru að
sinna þessari kennslu, undirfjármagnaður.
Sem betur fer er ég handlaginn þannig að ég
er í því að laga búninga og sauma jafnvel suma
frá grunni,“ segir Guðmundur.
„Svo er ég húsvörðurinn og sinni viðhaldi,
og markaðsdeildin, það er ég,“ segir hann og
brosir.
„Listdansnám var gefið frjálst árið 2006 en
þessi skóli var eitt sinn ríkisskóli. En svo ákvað
menntamálaráðherra að það væri ekki hlutverk
ríkisins að reka svona ballettskóla þó að það sé
gert eiginlega alls staðar í heiminum,“ útskýrir
hann en skólinn er nú einkarekinn. „Það eru
fjórir skólar hér á suðvesturhorninu sem eru að
kenna framhaldsstig samkvæmt námskrá. Í
rauninni er enginn skólanna að fá nóg fjármagn
til þess að reka námið eins og okkur er uppá-
lagt samkvæmt námskránni. Þá leitar maður
ýmissa leiða og kemur með saumavélina að
heiman,“ segir Guðmundur.
Eitt par af táskóm á viku
Spurður um skólagjöld segir Guðmundur:
„Skólagjöldin mega ekki hækka það mikið að
nemendur detti úr náminu af því að fólk hefur
ekki efni á því. Nýlega var í fréttum þessi um-
ræða um fimmtíu þúsund króna fimleikabún-
ing til dæmis. Það er kostnaður við þetta nám
sem að krakkarnir bera annars, stelpurnar
sem eru á klassísku brautinni þurfa að kaupa
sér táskó og þeir eru dýrir. Og þú ert að fara
með nokkur pör yfir árið,“ segir hann en parið
kostar u.þ.b. 15-20 þúsund krónur. „Nem-
endur sem dansa mikið fara jafnvel með eitt
par á viku. Og ef þú ert að dansa aðalhlutverk í
klassískum ballett ferðu með eitt par á hverri
sýningu.“
Við sláum botninn í samtalið enda nemendur
farnir að veifa til skólastjórans í gegnum gler-
ið. Kannski þurfa þeir að láta laga saum-
sprettu eða fá góð ráð, hver veit. Guðmundur
leysir það sjálfsagt fljótt og vel, enda margt til
lista lagt.
’
Það er mjög margt
sem hægt er að segja
með líkamanum sem ekki
er hægt að segja með orð-
um. Fólk er oft hrætt við
að það þurfi að skilja
danssýningar en í raun-
inni er það ekki nauðsyn.
Við viljum að sýningin
veki einhver hughrif hjá
þér. Þú færð einhverja til-
finningu, þú þarft ekki að
skilja. Þetta er kannski
frekar list augnabliksins.
26.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21