Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017
HÖNNUN
Sigurjón Pálsson húsgagnahönnuður sýnir hænursem tilheyra línu hönnunarvara og minjagripasem hann vinnur í samvinnu við Epal. „Hænurnar
voru næstar á forgangslistanum, sem nær sem sagt einn-
ig yfir vörur sem höfða til ferðamanna. Þar er lundinn
þegar kominn og hefur slegið rækilega í gegn og hvalur
kom í haust,“ útskýrir Sigurjón og bætir við að fleiri
vörur úr línunni séu í pípunum. „Vegna mikils áhuga á
því sem þegar er komið, einkum lundanum, höfum við
þurft að endurskoða forgangsröðina og koma með nýjar
áherslur. Það eru þrjár til fjórar vörur á mismunandi
stigum í undirbúningi til framleiðslu og enn fleiri í hönn-
unarferli.“
Hænurnar eru nýkomnar á markað en Sigurjón sýndi
frumgerðir af þeim í fyrra ásamt fleiri vörum, bæði úr
línunni og vörur sem hann er að hanna utan hennar.
Sigurjón Pálsson
vinnur hænurnar í
samvinnu við Epal.
Hænurnar næstar á forgangslistanum
Bæði lundinn og hvalurinn hafa
slegið í gegn en hænur eru nýj-
asta vara Sigurjóns í framleiðslu.
Marý Ólafsdóttir frumsýnir handrenndaskopparakringlu úr íslensku birki úr Kjarna-skógi og Hallormsstaðarskógi. „Það sem er
einkennandi fyrir skopparakringluna er að börkur trés-
ins er skilinn eftir á ystu rönd hennar. Þannig verður
handverkið og uppruni efnisins áberandi fyrir vikið og
nálægðin eða tilfinningin fyrir efninu verður sterkari,“
segir hún. Verkefnið vann Marý í samstarfi með föður
sínum, Ólafi Ingva Ólafssyni í Bolungarvík, og hand-
verksmanninum Hirti Ingasyni á Sauðárkróki.
Skopparakringlan heitir Keilir og fær nafnið sitt og form
frá fjallinu Keili. „En Keilir er fyrsta verkefni í nýrri línu
sem kallast Heima og gengur út á samstarf við íslenskt
handverksfólk eða minni framleiðslufyrirtæki, þar sem bara
er unnið með íslenskan efnivið og fær varan/hluturinn inn-
blástur frá náttúrunni okkar,“ útskýrir Marý og bætir við að
engar tvær skopparakringlur séu eins og fá þær bæði ein-
stakan karakterinn frá því að þær eru handrenndar og líka
frá lifandi og ólíkum efniviðnum sem þær eru renndar úr.
Marý segir hugmyndina hafa verið mörg ár í mótun og
þróun. „Áhrifavaldarnir sem leiddu mig að því að fyrsta
verkefnið yrði skopparakringla eru þeir að ég átti mitt
fyrsta barn fyrir einu og hálfu ári síðan. Svo fyrir um ári
síðan byrjuðum við pabbi að tala um verkefnið og hug-
myndir og ég sagði honum hvað ég væri að spá, hann sá
skopparakringlu-hugmyndirnar og sagði mér þá frá því að
hann hefði oft verið að tálga skopparakringlur sem barn.“
Útfrá því þróaðist þetta og fyrsta varan varð til og nokkrar
aðrar eru í vinnslu. „Með verkefninu langar mig að upp-
hefja og ýta undir íslenska efniviðinn, kunnáttu, hönnun og
handverk sem við höfum að geyma hér á landi. Og ég
hlakka til að sjá aukna vitundarvakningu um neyslu hér
bæði hjá Íslendingum og svo hjá ferðamönnum sem halda
að þeir séu að kaupa íslenska framleiðslu og minjagripi.“
Varan er tilbúin fyrir markaðinn en næstu skref hafa
ekki verið tekin. Hægt að fylgjast með á www.mary.is.
Keilir er handrennd skopp-
arakringla úr íslensku birki sem
dregur nafn sitt af fjallinu Keili.
Lifandi efniviður
Þær Steinunn Vala,skartgripahönnuður, ogHelga Páley, myndlist-
arkona, sýna nýja skartgripi undir
merkjum Hring eftir hring. Á sýn-
ingunni eru hálsmen úr gler-
perlum, fjöðrum og þræði sem eru
innblásin af þeim gjörningi þegar
manneskja veiðir fisk. „Einhverjir
gætu séð móta fyrir gapandi
munni fisksins og beitu veiði-
mannsins í hálsmenunum,“ segir
Steinunn Vala en þær Helga Páley
bíða afar spenntar eftir við-
brögðum fólks. „Við vonum helst
að það sem við höfum skapað
gleðji og kveiki löngun hjá fólki til
að skreyta sig á eigin máta og vera
það sjálft í allri sinni dýrð. Það
kann að koma einhverjum á óvart
að allt skartið sem við sýnum nú á
HönnunarMars er í raun viðbót og
spuni upp úr skartgripalínu sem
við höfum þegar kynnt til leiks og
sett á markað og heitir Flugur,“
útskýrir Steinunn og bætir við að
Flugurnar séu handhnýttar á
sama hátt og veiðiflugur og beri
hver um sig eigið nafn, enda ein-
stakar hver og ein. Aðspurð segir
Steinunn Fluguarmböndin og
hálsmenin flest þegar komin til
sölu á sölustöðum og nýjustu gerð-
irnar verði það von bráðar.
Skartgripir innblásnir
af fiskveiðum
Línan er innblásin af því
þegar manneskja veiðir fisk.
Vefsíða og vefverslun Hring
eftir hring er www.hring.is.
Samsýning
framúrskar-
andi hönnuða
Íslensk hönnun í sinni litríkustu mynd er heiti
á samsýningu sex hönnuða sem haldin er í
Epal og er hluti af HönnuarMars. Þá eiga
hönnuðir sýningarinnar það sameiginlegt að
hafa skarað fram úr á Íslandi og erlendis.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
10 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
10 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
PÁSKA
TILBOÐIN
Reykjavík, Akureyri og Ísafirði www.husgagnaho
llin.is
Komdu og vertu
eins og heima hjá þér
Páskatilboðin
í Höllinni
KIRUNA
U-sófi. Hægri eða vinstri tunga. Dökkgrátt slitsterkt
áklæði. Stærð: 301 × 200 × 78 cm
189.990 kr. 239.990 kr.
AFSLÁTTUR
20%
Þú finnur nýja bælinginn okkar á
www.husgagnahollin.is