Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Side 26
Ca 12 bitar
1 sítróna
150 gr smjör
3 egg
3 dl sykur
2 tsk vanillusykur
2,5 dl hveiti
flórsykur til skrauts
Stillið ofninn á 175°C.
Þvoið sítrónuna (ekki verra að kaupa lífrænar
sítrónur, sérstaklega þegar á að nota börkinn).
Fínrífið börkinn af sítrónunni og pressið út 1-2 msk
af safanum.
Bræðið smjörið í potti. Takið pottinn af hitanum
og blandið öllum hráefnunum út í, ásamt sítrónu-
berkinum og 1-2 msk af safanum.
Smyrjið smelluform með smjöri og stráið jafn-
vel brauðmylsnu eða kókosmjöli í það. Hellið deig-
inu í formið. Bakið kökuna mitt í ofninum í 18-25
mínútur. Ég baka hana í nákvæmlega 20 mínutur
og finnst kakan verða alveg fullkomin við það, að-
eins bökuð í jöðrunum en klesst í miðjunni. Látið
kökuna kólna alveg, stráið þá flórsykri á hana til
skrauts og berið fram með þeyttum rjóma.
Sítrónukladdkaka
150 gr smjör
1,5 dl sykur
3 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
1,5 dl mjólk
150 gr marsipan
4 epli (u.þ.b.)
kanilsykur (að vild)
pekanhnetur (að vild, má líka nota valhnetur)
perlusykur (að vild)
Bræðið smjörið í potti. Blandið sykrinum út í og látið
kólna aðeins. Bætið hveiti, lyftidufti og mjólk út í og
hrærið. Rífið marsípanið með rifjárni og blandið út í deig-
ið. Afhýðið eplin og skerið í þunnar sneiðar.
Smyrjið smelluform og hellið deiginu í það. Setjið eplasneið-
arnar þvert ofan í deigið. Stráið kanilsykri yfir kökuna, og stráið
að lokum pekanhnetum og perlusykri yfir.
Bakið við 175°C í 45 – 50 mínútur eða þar til kakan er tilbúin.
Eplakaka með
marsipani og
pekanhnetum
vera með handskrifaðar bækur vildum við hafa þetta
þarna. Eiginlega meira fyrir okkur, en nú eru fimm
hundruð manns sem kíkja á síðuna á venjulegum degi,“
segir Þorbjörg.
Er sjúklega íhaldssöm
Bakstur er í uppáhaldi hjá þeim systrum. „Systir mín
er kannski meira í matargerð og henni finnst mjög
gaman að prófa nýja hluti en ég er sjúklega íhaldssöm.
Það þarf mjög oft að fylgja uppskriftum og ég vil helst
ekki breyta neinu. En í seinni tíð er ég að lagast aðeins
og meira til í að breyta smávegis,“ segir Þorbjörg.
Þær systur deila með lesendum þremur frekar auð-
veldum uppskriftum að dásamlegum kökum. „Ég hef
oft fengið að heyra hvað fólki finnst sítrónukladdkakan
góð. Og hún er svo auðveld.“
Þorbjörg og Kristín Snorradætur hafa lengi haftáhuga á matargerð og enn meiri áhuga ábakstri. Móðir þeirra átti stílabækur fullar af
handskrifuðum uppskriftum og var dugleg að leyfa
systrunum að vera með í eldhúsinu. Eins var móð-
uramma þeirra dugleg að baka með þeim systrum.
„Við eigum mjög mikið af minningum úr eldhúsinu hjá
mömmu og hjá ömmu á Selfossi,“ segir Þorbjörg.
Rafræn uppskriftabók
Blogg systranna fór í loftið þegar þær ákváðu að þær
þyrftu að halda betur utan um uppskriftir sem þær
söfnuðu, prófuðu og endurbættu. „Við vildum í raun
gera rafræna uppskriftabók. Við höfum báðar verið
duglegar að elda og baka og prófa nýja hluti og maður
á það til að týna uppskriftum. Þannig í staðinn fyrir að
Systurnar Þorbjörg og Kristín Snorradætur hafa bakað frá blautu barnsbeini.
Þær birta uppskriftir sínar og fróðleik á eldhussystur.com.
Bakstursóðar systur
Þær kalla sig eldhússystur og segjast bakstursóðar, systurnar Tobba og Stína úr Skagafirði. Til að leyfa almenningi að njóta hæfileika
þeirra í eldhúsinu stofnuðu þær bloggsíðuna eldhussystur.com. Hér deila þær nokkrum uppáhaldsuppskriftum með lesendum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
MATUR Í amerískum uppskriftum er gjarnan buttermilk. Til að búa til eftirlík-ingu af buttermilk er hægt að bæta 1 msk af sítrónusafa í 1 bolla af
nýmjólk og láta standa í 5 mínútur. Létt-AB-mjólk gengur líka.
Í staðinn fyrir „buttermilk“
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017
BROWNIEDEIG
225 gr smjör
4 egg
4 dl sykur
1,5 dl hveiti
¼ tsk salt
2 dl kakó
½ tsk vanilludropar
OSTAKÖKUDEIG
300 gr rjómaostur
½ dl sykur
1 egg
4 msk hveiti
200 gr fersk eða fryst hindber
BROWNIEDEIG
Stillið ofninn á 175°C. Smyrjið
ofnfast form, ca 24×32 cm stórt.
Bræðið smjörið. Þeytið egg og
sykur þar til létt og ljóst.
Í annarri skál, blandið saman
hveiti, salti, kakó og vanillu. Bætið
smjörinu út í eggjablönduna og
þeytið þar til slétt og fínt. Sigtið
hveitiblönduna út í og blandið
saman þar til deigið er orðið slétt,
ekki hræra of mikið. Hellið deig-
inu í ofnfasta formið.
OSTAKÖKUDEIG
Þeytið saman rjómaost, sykur, egg
og hveiti í skál.
Setjið doppur af ostakökudeiginu
á browniesdeigið. Takið svo gaffal
og dragið í gegnum bæði osta-
köku- og browniedeigið, til að
dreifa vel úr ostakökunni. Stráið
hindberjunum yfir deigið.
Bakið í ca 45 mínútur eða þar til
prjónn kemur hreinn úr kökunni.
Látið kökuna kólna alveg áður en
þið berið hana fram.
Ostakökubrownie
með hindberjum