Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Qupperneq 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Qupperneq 34
Martin Berasategui er fremsti matreiðslumeistari Spánverja.  Allra besti veitingastaður heims árið 2017, að sögn ferðalanga Trip- advisors er Martin Berasategui í 18.000 manna bæ á Norður-Spáni, Lasarte-Oria, en hann er í um 6 km fjarlægð frá háskólabænum San Sebastián. Veitingastaðurinn er nefndur eftir eiganda staðarins og fremsta matreiðslumeistara Spán- verja, Martin Barasagui, en um æv- ina hefur hann hlotið alls 8 Michelin- stjörnur fyrir veitingastaði sína, meira en nokkur annar landi hans. Barasagui þykir sérlega viðkunn- anlegur og persónulegur gestgjafi sem kemur gjarnan fram eftir mál- tíðina og heilsar upp á gesti sína. Veitingastaðir litlu bæjanna Góða veitingastaði er ekki aðeins að finna í stór- borgum og á þekktum ferðamannastöðum. Sumir þeirra bestu leynast í minni bæjum sem eru þess virði að gera sér sérstaka ferð til að heimsækja. FERÐALÖG Vefsíðan thebesttimetovisit.com er veðurvinur ferða-langa. Þar er hægt að skoða áfangastaði út frá því hve- nær er best að ferðast þangað með tilliti til veðurs. Veðrið skannað 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017 Formentera er sannkölluð náttúruperla semheimamenn leggja mikla áherslu á að halda velvið,“ segir Kristinn R. Ólafsson, einn helsti sér- fræðingur Íslands í málefnum Spánar, en hann heim- sótti Formentera síðastliðið haust. Formentera er hluti af Baleareyjaklasanum í vest- urhluta Miðjaðarhafs, nálægt austurströnd Íber- íuskagans en auk Formentera eru þær stærstu Mallorka, Menorka og Íbiza en eyjaklasinn er sjálf- stjórnarhérað Spánar. Nokkrir eyjarskeggjar Formentera, úr eyjaráði hennar, voru staddir hérlendis í vikunni en tilefnið var að kynna Formentera fyrir Íslendingum sem ferða- mannastað utan háannatímans. Sams konar kynning fer fram á hinum Norðurlöndunum bráðlega en eyjan er einstök og allt öðruvísi en skemmtanavæddar eyj- arnar í kring, svo sem Ibiza, en á Formentera ríkir friður og ró, diskótek eru víðsfjarri og hvorki stórar hótelkeðjur né skyndibitastaði er þar að finna. „Í kringum þessar fallegu hvítu strandir Formentera er sjórinn svona sérstaklega fallega blár því þar vex á ákveðnum svæðum sjávarplanta sem kallast Posidonia og hreinsar sjóinn og eru þau svæði á heimsminjaskrá Unesco. Víða eru svo hamrar í sæ niður en eyjan er fremur sléttlend. Utan háannatímans er þetta staðurinn til að vera á ef fólk er að leita að kyrrð og ró í umhverfi sem er upprunalegt og ósnortið,“ segir Kristinn en stundum er sagt að Formentera sé eins og Spánn var fyrir 40 árum. Á eyjunni eru fallegir göngu- og hjólastígar og unn- ið er að því að rafvæða öll farartæki en einn aðalvegur liggur yfir eyjuna þvera. Eyjan er um 80 ferkílómetr- ar að stærð og 19 kílómetrar þar sem hún er lengst. Þá eru strangar byggingareglur á eyjunni, ákveðið Paradís eins og úr bíómyndunum Á Miðjarðarhafi leynist spænska eyjan Formentera, með hvítar strendur og ofurbláan sjó og utan háannatímans er hún sannkölluð paradís fyrir þá sem vilja ekta Spán í friði og ró. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Umhverfi eyjunnar, með lágreistum hvítum húsum, vitum, gömlum vindmyll- um, hreinum ströndum og fallegum göngustígum, er afar sjarmerandi. Eyjarskeggjar við störf sín, fiskveiðar og landbúnað, setja sinn svip á eyjalífið og skapa afslappað umhverfi sem margir ferðamenn njóta að vera í. Mikið er lagt upp úr því að bjóða ferðamönnum upp á ekta spænskan mat en á eyjunni eru um 20 veitingastaðir. Strendur Formentera eru skilgreindar sem nektarstrendur en baðgestir hafa þó frjálst val um hvort þeir fari úr öllu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.