Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Síða 35
Veitingastaðurinn er nútímalegur
útlits, umlukinn grænu fallegu um-
hverfi og undir honum öllum er
stærðarinnar vínkjallari. Matseðill-
inn samanstendur af því besta sem
býðst í matargerð Miðjarðarhafsins.
Í 5.000 manna bænum Chagny í
Saône-et-Loire í austurhluta Frakk-
lands er að finna einn besta veit-
ingastað landsins, Maison Lamel-
oise, sem er nær hundrað ára gamall
þriggja stjörnu Michelin-staður.
Maison Lameloise er eins franskur
og hugsast getur, bæði hvað mat,
andrúmsloft og útlit varðar þar sem
gestir gæða sér að sjálfsögðu á
Búrgundar-vínum héraðsins.
Um 11 kílómetra austur af Oxford
er eittþúsund manna bæinn Great
Milton að finna. Utan víðfrægrar
kirkju er hans helsta aðdráttarafl
fransk-breski veitingastaðurinn Bel-
mond Le Manoir aux Quat’Saisons.
Vilji fólk snæða í ekta bresku sveita-
umhverfi, mat á heimsmælikvarða
og fá framúrskarandi þjónustu þykir
þetta vera staðurinn en hótelið sem
staðurinn er á þykir þá ekki síðra.
Sant’Agata sui Due Golfi er smá-
þorp sunnarlega á Ítalíu og tilheyrir
Kampanía-héraðinu. Veitingastaður
þar í bæ sem heitir því virðulega
nafni Ristorante Don Alfonso 1890,
lendir ofarlega á öllum listum yfir
bestu veitingastaði heims en eins og
nafnið gefur til kynna er hann að
nálgast að verða 130 ára gamall og er
í gullfallegu húsi frá 19. öld, þar sem
vistarverur eru málaðar í glaðlegum
bleikum og gulum tónum. Veitinga-
staðurinn heldur aldagamlar ítalskar
matarvenjur Sorrento og Amalfi-
strandarinnar í heiðri.
Umhverfi ítalska veitingastaðarins Ristorante Don Alfonso 1890 er
engu líkt en á matseðlinum má finna klassíska og aldargamla ítalska rétti.
Belmond Le Manoir aux Quat’Saisons ber
veglegt nafn í veglegu setri.
26.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
REYKJANESBÆ
Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104
Það eru
hjá okkur í mars!
Glæsilegt úrval af heimilistækjum frá
Siemens og Bosch áTækifærisverði
Tækifæri
Tækifærisdagar
þak er á því hversu mörg ný hótel
má reisa og frekar er lagt upp úr að
gera þau upp sem fyrir eru. Hótelin
eru ekki stór og ekkert þeirra er
hluti af alþjóðlegri hótelkeðju. Þess í
stað er lögð áhersla á hið stað-
bundna, bæði í mat og þjónustu og
að fólk fái frið og ró. Svo er ákveðin
hippaarfleifð á eyjunni en til að
mynda mega baðstrandargestir vera á Adams- og
Evuklæðunum ef þá lystir, á hvaða strönd Form-
entera sem er en baðstrendurnar eru skilgreindar
sem nektarstrendur. Er það arfur frá hippatímanum
en hippar hafa sótt í eyjuna í gegnum tíðina og marg-
ir þeirra sest þar að. Þess má geta að á lista sem
ferðamannavefsíðan Lonely Planet tók saman yfir
bestu nektarstrendur heims var Plajta Illete-strönd
Formentera efst á lista.
„Svo er það líka auðvitað þessi skemmtilega tenging
Formentera við okkur Íslendinga en eyjan kemur fyr-
ir í fornum fræðum, Heimskringlu Snorra Sturlusonar
þar sem Sigurður Jórsalakonungur kom til eyjarinnar
og svo hefur listmálarinn Erró sótt
frið og ró til eyjarinnar frá árinu
1958,“ segir Kristinn en Erró hefur
átt hús á eyjunni frá því um 1970 og
unnið að list sinni þar. Hann er mik-
ils metinn meðal eyjarskeggja enda
hefur hann gefið listaverk sín til
stofnana og safna þar.
Að komast til Formentera er háð
því að fljúga til Ibiza en aðeins þaðan gengur ferja yf-
ir til eyjarinnar og tekur siglingin um hálftíma. Ekki
er hægt að fljúga beint til Ibiza en auðveldar leiðir
liggja í gegnum ýmis tengiflug, svo sem frá Madrid,
Alicante og Barcelona. Frá flugvelli Ibiza er aðeins 10
mínútna akstur niður á höfn.
Frá byrjun júlí og fram í miðjan september er
stríður straumur ferðamanna sem koma í dagstúra til
Formentera frá Ibiza og þeir sem vilja njóta eyjunnar
í ró ættu því að reyna að skipuleggja ferð til Form-
entera á vorin, síðasta lagi í júní eða á haustin. Veðrið
á haustin er afar milt og hlýtt, þar sem meðalhitinn er
til dæmis 20°C í október.
Strangar reglur gilda um það
hvað má byggja af húsum og
hótelum á eyjunni.
Getty Images/iStockphoto
’Utan háannatím-ans er þetta stað-urinn til að vera á effólk er að leita að kyrrð
og ró í umhverfi sem er
upprunalegt og ósnert.