Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Side 41
26.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
og að bjóða oftar upp á örverk, verk í
vinnslu, þrekverk og þátttökusýn-
ingar. Í þessu umhverfi þyrfti áhorf-
andinn að taka ábyrgð á sjálfum sér.
Hann er ekki endilega að fara til að
láta skemmta sér, heldur tekur þátt í
sviðslistinni sem virkur þátttakandi.
Þetta er draumsýn, en ég held við
getum komist þangað. Þetta er bara
spurning um vilja,“ segir Steinunn
og tekur fram að listafólk þurfi líka
að velta fyrir sér hlutverki sínu í list-
inni. „Við verðum að muna af hverju
við erum að hlutunum. Af hverju er
nauðsynlegt fyrir einhvern að vera
sviðslistamaður
og hvernig lítur
hann á hlutverk
sitt? Ég er ekki
viss um að við
séum að spyrja
þessara spurn-
inga.“
Innt eftir því
hvað bíði Stein-
unnar í leik-
húsvinnu sinni
svarar hún: „Ég
ætlaði að hætta að búa til leikhús eft-
ir fimmta og síðasta ódauðlega verk-
ið, en er strax hætt við það.“ Stein-
unn vinnur nú að þátttökuverki eða
upplifunargöngu sem nefnist Síðasta
kvöldmáltíðin og fram fer samtímis í
Keflavík, Höfn á Hornafirði, Bolung-
arvík og Raufarhöfn á skírdag frá
sólarupprás til sólarlags.
„Í þessu samfélagsverkefni bjóð-
um við íbúum bæjanna fjögurra til
samtals um málefni sem okkur þykja
mikilvæg. Við spyrjum heimamenn
um lífsskilyrði, lífsgildi og lífsgæðin
á hverjum stað,“ segir Steinunn og
tekur fram að gefandi sé að setja af
stað ákveðna hreyfingu. „Sviðslist-
irnar eiga að veita áhorfendum nýja
sýn á veruleikann. Þarna gerum við
það ekki bara með lokapródúkti
heldur ferli. Þegar vinnunni er lokið
eiga þau reynsluna,“ segir Steinunn
og lýsir Síðustu kvöldmáltíðinni sem
nokkurs konar ritúali.
„Ég hef mikinn áhuga á gömlu
hugmyndunum um kaþarsis, að leik-
verk sé á einhvern hátt einhvers
konar hreinsun þar sem fólk mæti
sjálfu sér. Þegar ég lýk mínum
skyldum við
Listaháskóla Ís-
lands 2020 langar
mig að fara í dokt-
orsnám og gera
listrannsókn sem
lýtur að því að
leita að kaþarsis í
nýrri tegund af
verkum sem eru
þátttökuleik-
húsið,“ segir
Steinunn og bend-
ir á að síðasta verkið í kvintólógíu
Áhugaleikhúss atvinnumanna hafi
einmitt verið þátttökuleikhús.
„Það verk fjallaði um áhorfand-
ann. Þannig var ég ekki að segja
þeim sögu heldur var verkið leið til
að áhorfendur gætu mætt sjálfum
sér og lagt til sína eigin reynslu.
Þannig geta þátttökuverk orðið
blanda af helgiathöfn og sjálfshjálp
og verða þannig sálfræðileg, en leik-
húsið er í grunninn rannsókn á því
hvernig við erum sett saman og stór
hluti af því snýr að sálarlífinu.“
’Þegar ég lýk mínumskyldum við Lista-háskóla Íslands 2020langar mig að fara í dokt-
orsnám og gera listrann-
sókn sem lýtur að því að
leita að kaþarsis í nýrri
tegund af verkum sem
eru þátttökuleikhúsið.
Leikhópurinn í Ódauðlegu verki um samhengi hlutanna sem frumsýnt var í
Nýlistasafninu í ársbyrjun 2009. Um er að ræða annað verkið í kvintólógíunni.
Steinunn undirbýr Ódauðlegt verk um draum og veruleika sem frumsýnt var í
Tunglinu haustið 2015. Um er að ræða fjórða verkið í kvintólógíunni.
Markús Þór Andrésson leiðir gesti
um sýninguna Sjónarhorn í Safna-
húsinu morgun, sunnudag, kl. 15.
Sýningin er ferðalag um íslenskan
myndheim þar sem verkum viður-
kenndra listamanna/kvenna og
ófaglærðra er teflt saman.
Vinirnir Mr. Silla (Sigurlaug Gísla-
dóttir) og Snorri Helgason flytja
ábreiður úr ýmsum áttum með
áherslu á verk tónlistarkvenna í
bókahorninu á
Kex Hosteli í
kvöld, laug-
ardag kl. 21.
Aðgangur er
ókeypis.
Anna Hallin, Helgi Hjaltalín Eyjólfs-
son og Jóhann Ludwig Torfason /
Pabbakné bjóða á morgun, sunnu-
dag, kl. 14 upp á leiðsögn um verk
sín á síðasta sýningardegi Nautn /
Conspiracy of Pleasure í Listasafni
Árnesinga.
Brynhildur Pálsdóttir, Ólöf Erla
Bjarnadóttir og Snæbjörn Guð-
mundsson ganga með gestum og
leiða þá í gegnum leitina á sýning-
unni Dæmisögur: Vöruhönnun
á 21. öld á Kjarvalsstöðum í dag,
laugardag, kl. 15.
Guðmundur Ingólfsson, Halla Hauks-
dóttir og Ólafur Ingi Jónsson ganga
með gestum um sýninguna Valtýr
Pétursson á morgun, sunnudag, kl.
14 sem er síðasti sýningardagurinn.
Þau segja frá persónulegum kynnum
sínum af Valtý og vitna í bréf og viðtöl.
MÆLT MEÐ
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögumSvansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Almött veggmálning
Dýpri litir – dásamleg áferð
u Frábær þekja
u Mikil þvottheldni
u Hæsti styrkleikaflokkur
svalandi ísar í
einum kassa