Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Blaðsíða 43
26.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Passíusálmarnir eftir Einar Kárason
er efst á náttborðinu. Einar er í
miklu uppáhaldi hjá mér og bókin
kærkomin viðbót eða framhald við
Storm. Eyvindur Stormur er alveg í
sérstöku uppáhaldi.
Stórkostleg söguper-
sóna.
Vinur minn lánaði
mér Nú brosir nóttin,
æviminningar Guð-
mundar Einarssonar á Brekku á
Ingjaldssandi við Önundarfjörð.
Glugga í hana annað slagið þó að ég
hafi lesið hana alla í gegn. Lífsbar-
áttan við erfiðar aðstæður, veiðar og
samspil mannsins við náttúruöflin
og veðurfar. Að lifa af á
Íslandi fyrr á öldum.
Kynngimögnuð frásögn
af miklum og merkum
manni.
Stefán Jónsson er
einn af þessum sem tala verulega til
mín í gegnum skrif sín. Hvernig
hann matreiðir íslenskt
mál fyrir lesendur sína
er stórbrotið. Ef mig
langar að létta lund þá
opna ég bókina Þér að
segja sem er verald-
arsaga Péturs Hoffmanns Salómons-
sonar. Þetta er algjörlega frábær
bók sem ég verð ekki leiður á. Lit-
ríkur persónuleiki Péturs Hoff-
manns litar allar síður og ekki fer á
milli mála að eitt af stórmennum Ís-
landssögunnar er til umfjöllunar.
Jóhann Kristinn
Gunnarsson
Jóhann Kristinn Gunnarsson
er knattspyrnuþjálfari.
„Opna bréfið snýst um þá stað-
reynd að sænskir borgarar af mjög
ólíkum bakgrunni eru ekki meðhöndl-
aðir eins vegna þess að sumt áhrifa-
fólk – ég gæti nefnt stjórnmálamenn,
lögreglu, blaðamenn – lítur á þá sem
hina; hluta af hópi einhverra annarra
og vísar til þeirra sem innflytjenda,
jafnvel þótt þeir séu Svíar. Ákveðnir
þættir eru sameiginlegir með bók og
bréfi, einkum vegna þess að ég hef
alltaf haft áhuga á því hvernig hópar
verða til, með þeirri pólitísku notkun
hugmyndarinnar um þann sem er ut-
angarðs, sem ekki er talinn tilheyra.
Ég hef á tilfinningunni að ástæða
þess hvernig fólk brást við bréfinu sé
sú að mjög margir – óháð bakgrunni –
kannist við þá tilfinningu að vera ekki
talinn „alvöru“ borgari.“
– Mikil umræða hefur verið í Sví-
þjóð og víða annars staðar um það
hvort vandamál vegna innflytjenda
séu mikil eða jafnvel hvort þau séu yf-
irleitt fyrir hendi. Hvernig metur þú
stöðuna í Svíþjóð? Hefur þú sjálfur
lent í einhvers konar vandræðum fyr-
ir að vera hálfur Túnisi? Vilt þú sem
rithöfundur hafa áhrif á samfélagið
með skrifum þínum, á málefni inn-
flytjenda í þessu tilfelli?
„Bókin svarar vonandi þessum
flóknu spurningum betur en ég
mögulega get.“
– Þar sem þú átt túnískan föður
hefurðu alltaf einblínt á innflytjendur
eða málefni þeim tengd í skrifum þín-
um?
„Ég skrifa ekki um innflytjendur.
Ég skrifa um Svíþjóð í samtímanum.
Sögurnar mínar eru fullar af mis-
munandi fólki á mismunandi aldri og
af ólíkum uppruna og í þessari sögu
tengist allt þetta fólk vegna dauða
Samúels. En ég geri mér ekki grein
fyrir því að hve miklu leyti er hægt
að átta sig á Samúel vegna þjóðernis
hans. Líklega eru margir leiðir til að
lýsa honum: hann hefur yndi af því
að dansa, hann er í sífelldri leit að ei-
lífri ást, hann ver miklum tíma í að
úthugsa hvernig hann geti sem best
varðveitt minningar úr eigin lífi.
Hann kynnist Laide og verður ást-
fanginn af henni. Vandad svíkur
hann. Og já, hann á föður. Og móð-
ur. Þau eru hvort frá sínu landi. Það
er lesandans að ákveða hvað af
þessu veitir besta innsýn í per-
sónuna.“
Þarf algjöra einangrun
– Ég hef lesið að þú skrifir mest og
best í mikilli einangrun? Skrifarðu
heima eða ferðu burt, jafnvel úr
landi, eins og sumir rithöfundar?
„Mér gengur best að skrifa þegar
lífið er eins leiðinlegt og nokkur
kostur er. Sem sagt: ég fer með
börnin mín á leikskólann og loka mig
síðan af á vinnustofunni suður af
Stokkhólmi. Það er vissulega þver-
sögn en ég þarf algjöra einangrun
og einbeitingu við skriftir til að finn-
ast ég tengjast umheiminum,“ segir
Jonas Hassen Khemiri.
Jonas Hassen Khemiri:
Það er vissulega þversögn
en ég þarf algjöra ein-
angrun og einbeitingu við
skriftir til að finnast ég
tengjast umheiminum.
Ljósmynd/Martin Stenmark
BÓKSALA 16.-22. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 LögganJo Nesbø
2
Stúlkurnar á Englands-
ferjunni
Lone Theils
3 Konan sem hvarfAnna Ekberg
4 Andartak eilífðarPaul Kalanithi
5
Handan fyrirgefningar
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir/
Tom Stranger
6 Dalalíf IV Laun syndarinnarGuðrún frá Lundi
7 ÖrvæntingB.A. Paris
8
Binna B Bjarna
- Stóra systir
Sally Rippin
9 Planet Iceland - minniSigurgeir Sigurjónsson
10 Eftir að þú fórstJojo Moyes
1 LögganJo Nesbø
2
Stúlkurnar á Englands-
ferjunni
Lone Theils
3 Konan sem hvarfAnna Ekberg
4
Dalalíf IV
Laun syndarinnar
Guðrún frá Lundi
5 ÖrvæntingB.A. Paris
6 Eftir að þú fórstJojo Moyes
7 Neon biblíanJohn Kennedy Toole
8 KviksyndiMalin Persson Giolito
9 Allt sem ég man ekkiJonas Hassen Khemiri
10 Englar vatnsinsMons Kallentoft
Allar bækur
Íslenskar kiljur
ÉG ER
AÐ LESA
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600 LIPUR GRIPUR
AVANT - ER TIL Í ALLT - ALLT ÁRIÐ UM KRING
Hvort sem þig vantar öflugt hjálpartæki í skógræktina, fyrir bæjarfélagið, til
meðhöndlunar á vörubrettum, í moksturinn eða snjó- og jarðvinnu, þá getur
þú verið viss um að AVANT leysir málið fyrir þig. Yfir 100 mismunandi aukatæki
eru fáanleg á vélina.
Raf- diesel- bensín- eða gasknúinn – þitt er valið.
Framleiddur í Finnlandi – fyrir norðlægar slóðir.