Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.03.2017, Blaðsíða 44
KVIKMYNDIR Leikkonan Laura Dern fór að öllu með sér-
stakri gát í slagsmálum sínum við leikkonuna Cheryl Hines í
gamanmyndinni Wilson sem frumsýnd var ytra í vikunni.
Slagsmál þeirra, þar sem kýlt var og togað í hár, voru að sjálf-
sögðu sviðsett en árið 1996 lenti Dern í því að kýla 9 ára gaml-
an aukaleikara í Citizen Ruth og segist síðan hafa verið ákaf-
lega varkár í sviðsettum slagsmálasenum. Í myndinni leikur
Dern fyrrverandi eiginkonu persónu sem Woody Harrel-
son leikur og Hines systur hennar en Dern er önnum
kafin þetta árið. Nýjustu hlutverk hennar
eru meðal annarra í kvikmyndinni The Fo-
under, sem fjallar um hvernig hamborg-
araveldið McDonalds var sett á laggirnar
og HBO-þáttunum Big Little Lies.
Slagsmál með gát
Laura Dern verð-
ur 50 í ár og hefur
sjaldan haft meira
að gera. AFP
Nauðalík fyrirmyndunum
Vel hefur þótt takast til í að velja í hlutverk Netflix-þáttanna The Crown þar sem leikarar eru afar líkir
fyrirmyndum sínum í útliti og hafa náð málrómi og töktum þeirra sögufrægu persóna sem þeir leika.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Stóra ást Margrétar Prinsessu, Peter Townsend, var starfsmaður krúnunnar.
Leikarinn Ben Miles og hann þykja nauðalíkir. Í þáttunum er gefið í skyn að
Margrét hafi ekki fengið að giftast Townsend því hann var fráskilinn.
Claire Foy á stjörnuleik sem Elísabet
Bretadrottning. Líkams- og raddbeit-
ing Foy þykir skila drottningunni
ungri ljóslifandi á skjáinn en Foy und-
irbjó sig fyrir hlutverkið með því að
horfa á gamlar myndir af Elísabetu.
Fillipus prins, hertogi af Edinborg og eiginmaður Elísabetar, er leikinn af leik-
aranum Matt Smith. Auk þess að vera líkur Philip í útliti þykir hann ekki síður
líkur Harry prins, enda Harry gjarnan sagður líkjast afa sínum mikið.
Ein fremsta sviðsleikkona Breta, Vanessa Kirby, leikur Margréti prinsessu, syst-
ur Elísabetar drottningar. Hún þykir minna um afar margt á Margréti og ná að
skila sérstökum sjarma hennar, heitu tilfinningalífi og lífsgleði á skjáinn.
Mörgum þykir Játvarður 8. og eiginkona hans, Wallis Simpson, vera aftur-
gengin í The Crown, svo líkir eru leikararnir, Alex Jennings og Lia Williams,
þeim hjónum. Játvarður fórnaði krúnunni fyrir að giftast fráskilinni konu.
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.3. 2017
LESBÓK
SJÓNVARP Eftir því hefur verið tekið hvað
þeir leikarar, handritshöfundar og leikstjórar
sem unnið hafa fyrir Netflix bera þeim vel
söguna. Það sé frábært að starfa með Netflix
samanborið við önnur þekkt framleiðslufyr-
irtæki og kvikmyndaver. Um þetta fjallar
blaðamaður Independent sem síðustu árin
hefur aldrei hitt óánægðan listamann eftir
samstarf við Netflix en samstarfinu líki lista-
mennirnir við það að eiga góðan forríkan vin
sem er tilbúinn að láta þá hafa bæði fullt af
pening og einnig áhorfendur. Dagskrárstjóri
Netflix segir að þetta megi þakka því að þeir
veiti sköpurum efnisins fullt listrænt frelsi.
Gott að vinna fyrir Netflix
Handritshöfundar vilja ólmir vinna fyrir Netflix.
Sir Paul McCartney og John Lennon.
Enginn á við
Lennon
TÓNLIST „Ég veit að ég mun aldrei
finna nokkurn sem getur samið
betra efni með mér en ég gerði með
John,“ segir Sir Paul McCartney í
viðtali við BBC6 sem birtist í vikunni
en tilefnið er endurútgáfa plötunnar
Flowers in the Dirt. Í viðtalinu talar
McCartney um samstarf sitt með
heimsþekktum listamönnum, svo
sem Michael Jackson, Stevie Won-
der og Kanye West. Þrátt fyrir að
bera þeim vel söguna segir hann
engan koma í stað John Lennons.
TÆKNI Face-
book hyggst gera
nokkrar breyt-
ingar á útliti sínu
en ein sú helsta
sem notendur
hafa litið í vik-
unni er að um-
ræðuþræðir eða athugasemdir við
stöðuuppfærslur birtast í sér
glugga sem um einkaskilaboð
væri að ræða og líkist þetta mik-
ið messenger-appinu. Ekki þykir
öllum þetta þægilegt þar sem
auðvelt er að ruglast og halda að
maður sé í einkaspjalli við ein-
hvern. Ekki er víst að um end-
anlegt útlit sé að ræða heldur er
Facebook að skoða hvernig þetta
leggst í notendur.
Athugasemdir
í sér glugga
KVIKMYNDIR Óskarsverðlauna-
leikkonan Brie Larson mun í nýrri
kvikmynd fara með hlutverk
Victoriu Woodhull, sem varð fyrsta
konan í sögu Bandaríkjanna til að
bjóða sig fram til embættis forseta
Bandaríkjanna, árið 1872.
Brie Larson á glæsilegan feril.
Leikur fram-
bjóðanda