Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2005, Blaðsíða 20

Freyr - 01.11.2005, Blaðsíða 20
NAUTGRIPIR að fylgjast með þróun á kynbótamati þeirra næsta árið. Kostir þeirra í heild fara samt að verða vel reyndir. TOPPARNIR FYRIR EINSTAKA EIGINLEIKA (lokin skal aðeins litið á topplista nautanna. Nú er það Kaðall 94017 sem skipar sér á toppinn í kynbótaeinkunn með 119, en hinn stóri hópur ungra dætra hans hefur enn lyft honum þangað. Stígur 97010 veit- ir honum harða keppni með 118 og Punkt- ur 94032 fylgir fast á eftir með 117. Þessi þrjú öflugu kynbótanaut eru í talsverðum sérflokki vegna þess að næst þeim koma nokkur naut með 113 í kynbótaeinkunn, þ.e. Þráður 86013, Völsungur 94006, Hers- ir 97033 og Fontur 98027. Fyrir mjólkurmagn er sérstaða Randvers 97029 veruleg sem fyrr en á nýjum viðmið- unargrunni er einkunn hans fyrir þann eig- inleika 133. Næstu naut eru með 126 fyrir þennan eiginleika og eru það Krossi 91032, Sokki 94003 og Mímir 99007, sem að fram- an er fjallað um. Þá kemur Stígur 97010 með 124 fyrir þennan eiginleika. Fyrir próteinhlutfall eru það þeir feðgar, Bassi 96021 og Soldán 95010, sem verma toppsætin með 131 og 130 í einkunn og Núpur 86013 er einnig með 130 í einkunn fyrir þennan eiginleika. Hið mikla mjólkur- magn hjá dætrum Randvers 97029 skipar honum í efsta sætið fyrir próteinmagn þó að próteinhlutfall sé nokkuð undir meðaltali hjá dætrum hans. Einkunn hans fyrir prótein- magn er 132. Þá koma þeir Stígur 97010 og Mímir 99007 næstir í röðinni, báðir með 130 í einkunn. Afurðamatið er samsett úr þessum tveimur þáttum, próteinmagni og - hlutfalli. Hér eru það þessi þrjú naut sem skipa toppinn en skipta röð. Stígur 97010 kemur þar efstur með 127, Mímir 99007 með 126 og Randver 97029 með 125. Fyrir frjósemi er það allt annar hópur sem birtist á toppnum. Þar má sjá tvö naut úr 1994 árganginum sem eru Klaki 94005 með 132 fyrir þennan eiginleika og Völ- sungur 94006 með 128. Á hinum endanum er, líkt og undanfarin mörg ár, Suðri 84023 og Andvari 87014, en frá þeim báðum gæt- ir enn mikilla áhrifa i ræktunarstofninum og því sérstök ástæða til að huga að þessum eiginleika þegar afkomendur þeirra standa til boða sem kynbótagripir. Þó að gæðaröð sé ekki eiginleiki sem tel- ur í ræktunarmarkmiðinu er samt veruleg ástæða til að horfa á þann eiginleika. Þar er sérstaða Stígs 97010 óumdeilanleg með 144 í mati um þennan þátt. Teinn 97001 kemur honum næstur með 129, þá eru þeir Andvari 87014, Kaðall 94017 og Þoll- ur 99008; allir með 126 fyrir þennan eigin- leika. Skrokkbygging kúnna vegur ekki heldur neitt í ræktunarmarkmiði enda margt misvísandi að sjá um gildi sumra þeirra þátta úr rannsóknum síðari ára. Hæsta mat fyrir þennan eiginleika hefur Forseti 90016 eða 131, en þá kemur Bisk- up 95009 með 126 og Hólmur 81018 með 125. Rétt er að benda á að á hinum end- anum fyrir þennan eiginleika (lægsta mat- ið) er að finna naut eins og Tein 97001 og Punkt 94032. Líkt og áður er sérstaða Sorta 90007 á toppnum í einkunn fyrir júgur mikil en mat hans er 147 fyrir þennan eiginleika. Skjöld- ur 91022 kemur þar næstur með 130 og sonur hans, Duggari 99022, fylgir þar fast á eftir með 129. Yfirburðir Sorta 90007 eru samt jafnvel ennþá meiri þegar kemur að mati á spenum en þar er einkunn hans 157, þá kemur Forseti 90016 með 131 í einkunn, Kaðall 94017 er með 128 og Glanni 98026 með 127. Fyrir mjaltir skipar Úi 96016 líkt og áður efsta sætið, mat hans núna er 134 fyrir þennan eiginleika, Faðir hans, Holti 88017, kemur næstur með 130 fyrir þenn- an eiginleika. Sömu einkunn fær Gangandi 99035, sem er náskyldur Úa í móðurætt, en fyrir hann eru komnar með í kynbóta- matið upplýsingar bæði úr mjaltaathugun og skoðun dætra. Þar með er komið nokkuð öruggt mat á Ganganda þó að enn vanti upplýsingarnar um afkastagetu dætra hjá honum. Völsungur 94006, Krummi 95034 og Prakkari 96007 eru síðan allir með mat uppá 125 fyrir mjaltir. Pinkill 94013 stendur afgerandi á topp- inum líkt og áður í mati um skap, með einkunn upp á 141. Krummi 95034 kemur næstur með 133 og Beri 92021 með 132 en síðan má benda á firnasterka dóma hjá bæði Kaðli 94017 og Völsungi 94006 fyrir þennan eiginleika. Fyrir endingu er Þráður 86013 líkt og áður með hæsta matið eða 127, Rauður 82025 kemur honum næstur með 125 en bæði þessi naut eru löngu landsþekkt fyrir frábæra endingu dætra sinna. Fyrir þenn- an eiginleika fær Stígur 97010 123 í einkunn, en samanburður hans við aðra nautsfeður úr þeim árgangi er honum hagstæður fyrir þennan eiginleika. Að síð- ustu skal vakin athygli á að Kaðall 94017 styrkir stöðu sína í mati á þessum eigin- leika og verður fróðlegt að fylgjast með hvort hann nær þar að feta í slóð föður síns, en dætur þessara skyldu nauta eru um margt talsvert ólíkar. 20 FREYR 11 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.