Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2005, Síða 28

Freyr - 01.11.2005, Síða 28
GARÐYRKJA lítil orka til að mynda ný blöð og topp. Það leiðir til þess að setning bregst og fram- tíðaruppskera verður minni. RAKASTIG Rakastigið er einn af mikilvægari loftslags- þáttunum og er ráðandi í vatnsupptöku, upptöku næringarefna, kælingu blaða, sjúkdómahættu og aldingæðum. Nauðsyn- legt er að halda rakastiginu niðri til að auka útgufun og koma í veg fyrir sjúkdóma. Ef efstu blöðin eru stutt er ráðlagt að halda rakastiginu uppi að morgni og síðdegis komum við í veg fyrir óþarfa stress með því að varðveita rakann. Rakinn í gróðurhúsinu kemur að langmestu leyti frá útgufun plantnanna. Rakinn lækkar með loftun og við þéttingu á rúðum og veggjum; því kald- ara úti, því meiri þétting. Rakastig f nærum- hverfi plantnanna getur verið mun hærra en t.d. í kringum rakaskynjara stýribúnaðar. Því er mikilvægt að tryggja góða lofthreyf- ingu um plönturnar til að jafna rakastigið með gólfrörum og hringrásarviftum. Þegar loftað er stígur heitt og rakt loft út en kalt og þurrara loft streymir inn. Ef mismunur á inni- og útihitastigi er mikill og einnig ef einhver vindur er, þarf lítið að opna til að lækka rakastigið. Gæta þarf þess að toppar plantnanna kólni ekki og hitasveiflur verði ekki of miklar. Lækkun á rakastigi eflir frjó- semi en hækkun eflir grænvöxt. KYNDING Hitarörin hita bæði loft og þá hluta plantn- anna sem næstir þeim eru. Þetta kemur af stað lofthreyfingu og þurrkar plönturnar. Plöntur með mikinn blaðmassa þurfa meiri hita (hærri rörhita) til að ná góðri lofthring- rás. Lágmarkshitaþörf á gólfrörum 40°C (4 rör, 38 mm) er nauðsynleg fyrir tómata, jafnvel þó ekki sé þörf á hita. Þetta er til að ná góðri lofthreyfingu, þurrum plöntum og betri flutningi efna um plöntuna. Ef aldinin eru lítil, lækkum við gólfrörahitann að nóttu til að seinka þroska aldina. Jafnframt má beita s.k. fornæturlækkun en þá er hitastig- ið lækkað hratt niður í 13-16°C í lok dags og því haldið þannig í 2-4 klst. eftir því hvernig toppur plantnanna Iftur út (þunnur toppur, styttri tfma og ekki eins mikla lækk- un). Hátt hitastig á gólfrörum eflir frjósemi (min. 45-60°C) en lágt hitastig ( min. 35°C) eflir grænvöxt. Þó ber að gæta þess að ef plönturnar eru mjög hlaðnar, flýtir hár gólf- rörahiti þroska aldina sem aftur dregur úr samkeppni aldina við toppinn. Sami árang- ur næst með því að slaka plöntunum neðar, nær gólfrörunum. Staðsetning gróðurröra hefur einnig áhrif á eftirspurn eftir sykrum, gróðurrör við 4. klasa eflir frjósemi en gróð- urrör við neðsta klasa eflir grænvöxt. Ráð- lagt hitastig gróðurröra er frá 0-60°C. Þegar slökkt er á lömpunum lækkar hitinn í toppunum, ef kalt er og heiðskírt getur kólnunin verið skaðleg fyrir nývöxt toppana. Æskilegt er að loftrörin komi inn áður en slökkt er til að minnka kólnunina. Best er að loftrör séu yfir hverju beði í um 50 sm hæð frá vírum. Þau eiga ekki að vera á samtímis Ijósunum. Aukinn hiti miðað við blaðhita í rótarbeð eflir grænvöxt en ef hitinn í rótarbeðnum er lágur miðað við blaðhita eykur það frjósemi plantnanna. KOLDÍOXÍÐ Við Ijóstillífun hvarfast C02 og vatn í sykrur og súrefni fyrir tilstuðlan Ijóss. Því meira Ijós og C02 , því meira magn myndast af sykrum. Ef C02 -magn er aukið úr 200 í 300 eykst framleiðsla sykr um 35-40% en ef aukningin er úr 900 ppm í 1.000 ppm er aukningin aðeins 2%. Ráðlegt er að halda C02 -magni í 800-900 ppm eftir að plantan hefur blómgast á 4. klasa eða 3 kg á klst. í 1.000m2. Við opna glugga er ráðlagt að halda 400 ppm. Aukið C02 -magn eflir frjó- semi en lækkað C02 -magn eflir grænvöxt. VÖKVUN OG ÁBURÐARGJÖF Há leiðni í vökvunarvatni eflir frjósemi (að 4mS) en lág leiðni (að 2mS) eflir grænvöxt. Sama á við um leiðni í rótarbeði en þar er bilið 3-6 mS. Vatnsmagn í rótarbeð hefur áhrif, minna vatnsmagn eflir frjósemi en meira eflir grænvöxt en einnig auka sveiflur í rakastigi (vatnsmagni) milli dags og nætur frjósemi. Því er stjórnað með stærð og fjölda vökvana en fáar og stórar (75-300 ml) gera rótarbeðin þurrari en einnig má breyta ttmanum hvenær vökvun hefst (0-3 klst. eftir sólarupprás eða eftir að Ijós kvikna) og hvenær vökvun endar (0-5 klst fyrir sólsetur eða eftir að Ijós slokkna). Mikið vatnsmagn í rótarbeði eykur rótarþrýsting- inn. Ef vökvað er snemma morguns (eða seint að kvöldi) eykst rótarþrýstingurinn og ef rakastig í gróðurhúsinu er hátt geta af- leiðingarnar orðið lengri og brothættari klasastilkar, lengri blöð og stílrot í aldinum. NÆRINGAREFNI Almennt má segja að aukið kalí auki frjó- semi en aukið köfnunarefni efli grænvöxt. Algeng viðmiðun varðandi hlutfall N:K er 1:1,3 og allt upp í 1:1,65 þegar eftirspurn- in er mest (frá blómgun 4.-5. klasa að 10. klasa. AÐRAR AÐGERÐIR Aukin afblöðun eflir frjósemi og er það sér- staklega þýðingarmikil aðgerð í ræktun að vori í ólýstri ræktun. Gróskumikil afbrigði er rétt að temja með því að taka blað við hvern klasa, sérstaklega að vori og hausti. Við það eykst loftstreymið um plöntuna og birta og hiti ná beturtil aldina. Ef plantan er mjög frjósöm má grisja klasa en ef hún er í miklum grænvexti er ráðlagt að setja klasa- klemmur á klasana til að auka eftirspurn þeirra. Við klasabrot minnkar eftirspurn ald- ina, þau verða minni og plantan stefnir í grænvöxt. Þess vegna er mikilvægt að styðja við fyrstu klasana á vorin og síðustu klasana á haustin. Að lokum: Að stýra vexti plantnanna er svipað og að stýra bíl, snöggar og miklar breytingar geta leitt til slyss. 28 FREYR 11 2005

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.