Freyr - 01.11.2005, Page 29
GARÐYRKJA
Býflugurnar og blómin
- ráð til að ná betri frævun á tómötum að vetri
Góð frævun að vetri er nauðsyn-
leg til að uppskera vel af tómöt-
um. Býflugurnar gegna þar lykil-
hlutverki. Mikilvægt er að fylgjast
vel með hvort flugurnar séu að
heimsækja blómin og aðstoða þær
eftir þörfum og mætti.
Tvær ástæður eru einkum fyrir
lélegri frævun að vetri í lýstri tóm-
atræktun: Annars vegar það að
lýsingin frá lömpunum er orðin
margfalt meiri en dagsbirtan en
það leiðir til þess að flugurnar eiga
erfiðara með að staðsetja sig í
gróðurhúsunum, sem torveldar
þeim vinnuna. Hins vegar það að
flugurnar nota útfjólublátt Ijós til
að staðsetja sig en af því er mjög
lítið í Ijósi háþrýstra natríum-
lampa. Einnig geta léleg blóm leitt
til lélegri frjóvgunar.
STÆRRI BÚ
Síðastliðið ár hefur fyrirtækið Koppert í
Hollandi, í samvinnu við þarlenda lýsing-
arbændur, kannað hvernig má bæta
frævun hunangsflugna að vetri. Ein að-
ferð er að nota stærri bú með 120 vinnu-
dýrum í stað 50. Það vegur upp á móti
þeim afföllum og erfiðleikum sem steðja
að dýrunum í lýstri ræktun.
Dreifa á búunum með aðalgangi húss-
ins en það lágmarkar vegalengdirnar sem
þær þurfa að fljúga við léleg birtuskilyrði.
Ekki ætti að raða búunum saman á einn
stað. Staðsetja á búin þannig að þau séu
vel sýnileg af ganginum en það auðveld-
ar flugunum að finna búin. Búin skulu
vera í tveggja metra hæð frá jörðu og
opin í austur ef hægt er. Ef beðin eru löng
getur það hjálpað í skammdeginu að
setja búin á milli miðgangs og gafls húss-
ins. Búin sjást einnig betur ef þau eru sett
fyrir ofan ræktunina.
Eftir að búin eru komin í hús skal opna
þau á milli kl. 9:00 og 10:00 eða þegar
birtuskilyrði til flugs eru orðin eins góð og
hægt er miðað við árstíma. Þé aukast lík-
urnar á að flugurnar nái góðum árangri í
sínu fyrsta flugi. Mjög er til bóta að nota
sjálfvirkan lokunarbúnað á búin þannig
að flugurnar séu aðeins á flugi við bestu
skilyrði. Þann búnað má tengja við klukku
eða stýritölvu. Betra er að flugurnar fljúgi
í stuttan tíma við sæmileg skilyrði en
langan tíma við léleg skilyrði. Flug við lé-
leg skilyrði eykur afföll vinnudýranna.
Flugurnar eru mjög öflugar til frævunar
og geta gert mikið á stuttum tíma.
BREYTILEGUR LÝSINGARTÍMI
Næst á eftir flugskilyrðum til frævunar
skulum við líta á blómin. Blómin opnast
tveimur tímum eftir að Ijósin koma á (líka
um miðja nótt) en það er líka staðreynd
að þau lokast eftir ákveðinn tíma aftur og
þá næst ekki frævun. Hve langan tíma
þau standa opin fer eftir ásigkomulagi
plantnanna og loftslagi. Með því að
breyta lýsingartímanum eru höfð áhrif á
mögulegar vinnustundir flugnanna. f Hol-
landi er ekki ráðlagt að kveikja Ijósin fyrir
klukkan tvö að nóttu en stundum geta
hagrænar ástæður þvingað menn til ann-
ars. Plantan sjálf getur gripið inn í ef
hleðslan (mörg aldin í vexti) eykst ört en
þá geta gæði blómanna minnkað. Flug-
urnar geta greint litbrigði á þeim blómum
sem við getum ekki greint og heimsækja
þau ekki.
Hollenskir ráðunautar leggja til að hafa
býflugnabúin opin milli kl. 10:00 og
14:00 í desember og janúar en milli kl.
9:00 og 15:00 í febrúar. Það byggist á því
að lágmarks náttúruleg inngeislun þarf
að vera 55 Wh. til að flugurnar eigi auð-
velt með að vinna.
Þrátt fyrir að farið sé eftir ýtrustu leið-
beiningum um meðferð flugnanna getur
það gerst að þær nái ekki að merkja öll
blómin. Af þeim sökum er ráðlagt að
handfræva þrisvar sinnum í viku. /MÁ
Dreifa á búunum meðfram aðalinngangi hússins en það lágmarkar vegalengdirnar sem flugurnar þurfa að fljúga við léleg
birtuskilyrði.
FREYR 11 2005
29