Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2007, Síða 13

Freyr - 01.04.2007, Síða 13
BÚNAÐARÞING Almennar umræður Búnaðarþingsfulltrúa Guðmundur Davíðsson, Jón Benediktsson og Birna Þorsteinsdóttir. 1Þ0RSTEINN KRISTJÁNSSON, hóf umræður. Hann ræddi það verkefni sem forystan hafi staðið í varðandi mat- arverðsumræðuna. Hann kvað það sitt mat að vel hefði verið unnið og lýsti sérstakri ánægju með niðurstöðu framkominnar viðhorfskönnunar. Hann taldi afskaplega vel hafa tekist til með þá lausn sem valin hefði verið þ.e. að fá kynningarfyrirtækið KOM til samstarfs og taldi niðurstöðu skoðana- könnunar sýna það. Mikið verk væri samt óunnið gagnvart afmörkuðum hópum. Hann taldi m.a. merkilegt í niðurstöðunum að hátekjufólk virtist sýna neikvæðari afstöðu en þeir sem hafa lægri tekjur. Af málum sem liggja fyrir búnaðarþingi taldi hann mál sem snúa að rétti landeig- enda mikilvæg, nefndi hann þar til þjóð- lendumái. Fleiri mál eru fyrir þinginu, s.s. forkaupsréttarákvæði í jarðalögum, sbr. mál nr. 05-1. Einnig mál nr. 06-1 og 08- 1. Öll þessi mál einkennast af því að vera sameiginleg hagsmunamál flestra bænda og allra landeigenda. Hann gerði sfðan nýgerðan sauðfjársamning að umtalsefni sem hann taldi fallinn til að koma á meiri einingu meðal sauðfjárbænda. Hann taldi hins vegar óvissu um hvernig niðurfell- ing útflutningsskyldu kæmi niður á bænd- um. Hann hvatti búnaðarþing til að gefa afurðastöðvum skilaboð og hvatningu til að standa í stykkinu varðandi samstarf við útflutning á landbúnaðarvörum. Hann lýsti því síðan yfir að hann gæfi kost á sér til setu í stjórn Bændasamtaka (slands. Þó að hann hafi einkum starfað á vettvangi sauðfjárbænda hefur hann einn- ig starfað á vettvangi búnaðarsambands Austurlands og setið á búnaðarþingi og því vonaðist hann til að geta unnið að hags- munum allra búgreina. 2SÆDÍS GUÐLAUGSDÓTTIR gróðr- arstöðinni Gleym-mér-ei, kynnti sig en hún er nýr fulltrúi Sambands garðyrkju- bænda. Hún kvaðst hlakka til að starfa á búnaðarþingi sem væri greinilega öflugur vettvangur sem garðyrkjubændur geta nýtt betur. Hún ræddi síðan þá málsmeðferð sem garðyrkjubændur fá meðal ráðamann og hún sagði hún mikið vanta á hana. Búnaðarþing taldi hún geta styrkt stöðu garðyrkjunnar í baráttu hennar. Hún gerði einnig upprunamerkingar að umtalsefni og taldi þörf á átaki ( þeim efnum til að gera neytendum betur grein fyrir gæðum íslenskrar vöru. Hún hvatti síðan til að í stjórn BÍ sætu fulltrúar sem flestra búgreina og einnig konur. 3ÁRNI KRISTJÁNSSON óskaði bænd- um til hamingju með forystuna og hvernig hún hafði tekið á málum í mat- vælaverðsumræðunni í haust. 4SIGRÍÐUR BRAGADÓTTIR kynnti skýrslu Lifandi landbúnaðar. Hún sagði frá Evrópsku samstarfsverk- efni sem hreyfingin er þátttakandi í ásamt Bændasamtökum íslands og Landbúnaðarháskóli íslands leiðir. Námskeið eru I gangi um heimasölu afurða og land- búnaðartengda ferðaþjónustu. Hún vís- aði einnig til framlagðrar skýrslu um starf Lifandi landbúnaðar. 5GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR þakkaði mjög góðar setningarræður og hátíða- höldin í gær. Einnig þakkaði hún fyrir skoð- anakönnuna sem væri mjög gott að hafa sem vegarnesti í umræðunni. Niðurstöður hennar sýndu að það væri peningafólk með greiðan aðgang að fjölmiðlum sem væri neikvæðara en aðrir I garð landbún- aðar. Landbúnaðarráðherra ætti einnig hlut að máli í jákvæðri niðurstöðu könnunarinn- ar. Hún ræddi síðan að ráðherraábyrgð á útflutningsskyldu á kindakjöti fellur niður I nýjum sauðfjársamningi. Bændur óttuðust afleiðingar þessa mjög, síðasta vonin væri að alþingi gripi hér inn í. Þó WTO samn- ingar myndu á endanum knýja þetta í gegn taldi hún óþarft að vera hér kaþólskari en páfinn og skoraði á alþingi að koma hér til móts við bændur. Hún ræddi síðan kolefniskvóta og lýsti ótta við að tún yrðu í stórum stíl sett undir trjárækt. Spár bentu til að matvælaskort- ur gæti orðið í heiminum innan nokk- urra áratuga. Stefna eigi að því að planta skógi I annað land en það sem hentar til að taka undir matvælaframleiðslu. Hún lagði áherslu á að auknir peningar fengjust til verkefnisins „Bændur græða landið". Annað búnaðarþingsmál, stimpilgjöld og lántökugjöld nr. 25-1 gerði hún því næst að umtalsefni. Þótt vel hafi verið boðið þegar Lánasjóður landbúnaðarins var lagð- ur niður þá gerðu stimpilgjöld það ókleift að skipta um banka kysu menn það síðar. Þjóðlendumálin hefðu aldrei átt að fara af stað að hennar mati og væru þar að auki úr takt við þá stefnu að færa verkefni frá ríki til sveitarfélaganna. Hún lýsti því síðan yfir að hún vildi sjá fjölgun kvenna í stjórn BÍ og vísaði til jafnréttisáætlunar sem sam- þykkt var einróma fyrir tveimur árum. 6AÐALSTEINN JÓNSSON byrjaði á að þakka setningarathöfnina og þær ræður sem þar voru fluttar, einnig skoðana- könnunina og ímyndarstarf sem forystan hefur unnið að. Hann ræddi vald fjölmiðla og stöðuga glímu við þá þar sem gott starf gæti tapast á einni nóttu. Sem dæmi nefndi hann að borgarstjórn og Alþingi hefðu stjórnast af fjölmiðlum í klámráðstefnumál- inu, en eftir ákvörðun BÍ hefði umræðan snúist við á einni nóttu. Hann vék síðan að málefnum Fjarskipta- sjóðs og benti á að nokkur sveitarfélög hafa gert samninga við fjarkskiptafyrirtæki en virðast ekki eiga aðgang að endurgreiðslu FREYR 2007 13

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.