Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2007, Síða 23

Freyr - 01.04.2007, Síða 23
BÚNAÐARÞING Búnaðarþing 2007 samþykkir fjár- hagsáætlun Bændasamtaka íslands og Nautastöðvar BÍ á Hvanneyri eins og þær liggja fyrir. Útgjöld BÍ Álitsgerð Fjárhagsnefnd hefur borist til afgreiðslu erindi búnaðarþingsfulltrúa á Suðurlandi þar sem þess er óskað að nefndin dragi sem kostur er úr útgjöldum Bændasamtaka íslands. Á liðnum árum hefur nefndin orðið að velja og hafna, því beiðnir um fjárheimildir hafa alltaf verið mun meiri en tekjur sam- takanna hafa leyft. Það er því skoðun nefndarinnar að hún hafi á liðnum árum unnið í samræmi við þetta erindi. Reynist það hins vegar vilji búnaðarþings að draga meira saman í útgjöldum verður þingið að álykta um í hvaða verkefnum skuli skorið niður. FRAMLEIÐSLU-, KJARA- OG MARKAÐSNEFND Útflutningur íslenskra landbúnaðarvara Búnaðarþing 2007 skorar á sláturleyfishafa og afurðastöðvar í mjólkuriðnaði að vinna markvisst að útflutningsmálum íslenskra landbúnaðarvara og skoða sérstaklega þau tækifæri sem felast í samstarfi útflytjenda íslenskra matvæla. Reglubundin birting upplýsinga um innflutning búvara Búnaðarþing 2007 felur Bændasamtökum (slands að birta upplýsingar um innflutning búvara með reglubundnum hætti. Jafnræði í heilbrigðiskröfum Búnaðarþing 2007 beinir því til stjórnvalda að heilbrigðiskröfur til innfluttra landbún- aðarvara séu eigi lakari en þær kröfur sem gerðar eru til innlendrar framleiðslu og reglubundin sýnataka tryggi að kröfurnar séu uppfylltar. Greinargerð Það skekkir samkeppnisstöðu innlendra framleiðenda ef gerðar eru ríkari heilbrigð- iskröfur til þeirra framleiðslu en innflutn- ings. Verði samt gerðar ríkari kröfur, verður að tryggja að kostnaður verði greiddur með opinberu fé en falii ekki á búgreinarnar eða einstaka framleiðendur. Einnig verður að koma á virkum regluleg- um sýnatökum á innfluttum landbúnaðar- vörum, m.a. til að fyrirbyggja krossmeng- un. Kostnaður af þessu verði borinn af heil- brigðiseftirlitinu því ekkert er mikilvægara en heilbrigði íslensku þjóðarinnar. Framkvæmd landbótaáætlana Búnaðarþing 2007 skorar á landbúnaðar- ráðherra að tryggja f nýrri reglugerð um gæðastýringu í sauðfjárrækt rétt þeirra bænda sem vinna eftir gerðum samningum um landbótaáætlanir. Búnaðarþing 2007 telur einnig brýnt að landbúnaðarráðherra taki á þeirri óvissu sem í stöku tilfellum ríkir um nýtingarrétt og eignarhald á landi sem er í umsjá Landgræðslu ríkisins. KJARANEFND Fjarskipti og raforkukostnaður Búnaðarþing 2007 samþykkir að vfsa þessu máli til stjórnar Bændasamtaka íslands. Lántökukostnaður og stimpilgjöld Búnaðarþing 2007 skorar á Alþingi að afnema hið fyrsta stimpilgjöld sem lögð eru á veðskuldabréf við þinglýsingu. Umrædd stimpilgjöld eru tvímælalaust til þess fallin að torvelda lántakendum að færa viðskipti sín milli lánastofnana og draga þannig úr möguleikum þeirra til að njóta hagstæðustu lánskjara á hverjum tíma. Endurgreiðsla olíugjalds Búnaðarþing 2007 gerir afdráttarlausa kröfu til þess að landbúnaðurinn njóti þess fjármagns sem áður var endurgreiddur þungaskattur. Þingið felur stjórn BÍ að leita eftir samningum við ríkisvaldið um nýtingu þessara fjármuna. Verðhækkanir á rekstrarvörum og þjónustu 1. Búnaðarþing 2007 vekur athygli á mikl- um verðhækkunum á rekstrarvörum s.s. áburði og kjarnfóðri. Þingið felur stjórn BÍ að láta gera samanburð á verði helstu rekstrarvara hér og í nágranna- löndunum. Niðurstöðurnar verði birtar neytendum og notaðar í baráttunni við að ná verðhækkunum til baka. 2. Búnaðarþing 2007 felur stjórn BÍ að taka upp viðræður við stjórnvöld um eftirlitsgjöld í landbúnaði með það að markmiði að koma í veg fyrir tvíverknað og auknar álögur af þessum gjöldum. 3. Þingið hvetur BÍ og aðildarfélög þess til að leita allra leiða til að ná hagkvæmum innkaupum með sameiginlegum útboð- um. Matvælaverðsumræðan 1. Síðustu mánuði hefur verið mikil og oft ósanngjörn umræða um þátt inn- Skorað er á sláturleyfishafa og afurðastöðvar í mjólkuriðnaði að vinna markvisst að útflutningsmálum íslenskra landbúnaðarvara og skoða sérstaklega þau tækifæri sem felast í samstarfi útflytjenda íslenskra matvæla. Freyr 2007 23

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.