Freyr - 01.04.2007, Blaðsíða 24
BÚNAÐARÞING
lendra búvara og tolla í matvælaverði.
Búnaðarþing þakkar stjórn og starfsfólki
B( fagleg viðbrögð við þessari umræðu.
2. Nú hafa stjórnvöld lækkað verndartolla
á kjöti og grænmeti og rýmkað toll-
kvóta. Þá hafa mjólkuriðnaðurinn og
kúabændur ákveðið tímabundna verð-
stöðvun á mjólkurvörum til neytenda.
Búnaðarþing 2007 leggur áherslu á að
stjórnvöld grípi ekki til frekari aðgerða
sem skerða afkomu bænda.
Úttekt á nýtingu úrvinnslugjalds
1. Búnaðarþing 2007 beinir því til stjórnar
B( að hún vinni að breyttri flokkun land-
búnaðarplasts á þann hátt að það verði
flokkað sem umbúðir.
2. Þingið hvetur stjórn B( til að gera úttekt
á því hvernig staða einstakra bænda/
landssvæða er gagnvart söfnun rúllu-
plasts.
UMHVERFIS- OG JARÐRÆKTARNEFND
IjJMRL'’
Búnaðarþing 2007 vekur athygli á miklum verðhækkunum á rekstrarvörum s.s. éburði og
kjarnfóðri og hvetur BÍ og aðildarfélög þess til að leita allra leiða til að ná hagkvæmum
innkaupum með sameiginlegum útboðum.
Varnir gegn sinu- og skógareldum
Búnaðarþing 2007 hvetur Brunamálastofnun
(slands, í samvinnu við Samband fsl. sveit-
arfélaga, til að skipa starfshóp sem vinni að
markvissum og fyrirbyggjandi vörnum gegn
sinu- og skógareldum.
Greinargerð
Á síðari árum hefur landnotkun og búseta
breyst mikið og hafa stór landssvæði verið
friðuð fyrir beit. Þá hefur sumarhúsum
fjölgað mjög á vel grónum svæðum. Þessi
breytta landnotkun kallar á öflugar bruna-
varnir.
Kolefnisbinding
Búnaðarþing 2007 beinir því til stjórnvalda
að vegna markaðsvæðingar kolefnisbind-
ingar, verði jarðeigendum tryggð réttindi
til markaðsetningar og sölu á kolefniskvóta
innanlands og /eða hlutdeild í tekjum vegna
sértækra aðgerða ríkisins.
Lausaganga hunda
Búnaðarþing 2007 vekur athygli sveitarfé-
laga og bænda á að í lögum um holl-
ustuhætti og mengunarvarnir nr. 7 1998
er sveitarfélögum veitt vald til að takmarka
eða banna lausagöngu hunda á ákveðnum
svæðum.
Stjórnun refaveiða
Búnaðarþing 2007 skorar á umhverfisráð-
herra að breyta lögum um veiðar á ref,
þannig að ríkisvaldið beri 80% kostnaðar
af þeim. Þá leggur Búnaðarþing áherslu
á að refastofninum sé haldið niðri um allt
land, en ekki séu hafðar sérstakar uppeld-
isstöðvar fyrir refi, samanber t.d. friðlandið
á Hornströndum.
Mikilvægt er að aðgerðir til fækkunar
á ref séu samræmdar milli samliggjandi
sveitarfélaga og skorar Búnaðarþing 2007 á
Samband fsl. sveitarfélaga að beita sér fyrir
því, með hvatningu og beinum fjárstuðn-
ingi, þar sem nauðsyn er á slfku.
Greinargerð
Veiðar á ref er verkefni alls samfélagsins og
það að sveitarfélögin stjórni veiðunum er
nauðsynlegt til að nýta staðbundna þekk-
ingu, á hegðun og útbreiðslu dýranna svo
og tilfinningu fyrir vandanum á hverjum stað.
Kostnaðarhluti sveitarfélaganna ætti fyrst og
fremst að vera til þess að þau hafi þá kostn-
aðarvitund sem nauðsynleg er til að fjárhags-
legs aðhalds sé gætt. Núverandi fyrirkomulag
er íþyngjandi fyrir sveitarfélögin sem gerir það
að verkum að veiðunum er ekki sinnt sem
skyldi. Sveitarstjórnir sem eru að spara á þess-
um lið til skemmri tíma, velta þar með vand-
anum yfir á önnur sveitarfélög. Lögð hefur
verið áhersla á það af hálfu bænda að halda
þurfi refastofninum í skefjum vegna þess
skaða sem hann veldur á lífríki landsins.
Búnaðarþing 2007 skorar á Alþingi að afnema hið fyrsta stimpilgjöld sem lögð eru á veðskuldabréf við þinglýsingu.
Þau séu til þess fallin að torvelda lántakendum að færa viðskipti sín milli lánastofnana og draga þannig úr
möguleikum þeirra til að njóta hagstæðustu lánskjara á hverjum tíma.
24
FREYR 2007