Fréttablaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 2
Veður
Snýst í norðaustan 13-18 með
snjókomu eða éljum um landið
norðanvert, fyrst á Vestfjörðum.
Úrkomuminna og heldur hægari
vindur sunnan til á landinu en víða
snjókoma sunnan- og suðaustan-
lands seint í kvöld. sjá síðu 58
Hæstiréttur fær gögn Guðmundar- og Geirfinnsmáls
Davíð Þór Björgvinsson, settur saksóknari, afhenti Hæstarétti málsgögn fyrir endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmáls í gær. Hann segir
gögnin vera upp undir 20 þúsund síður. Saksóknara og verjendum hefur verið veittur frestur fram í janúar til að skila greinargerðum í málinu. Ekki
liggur enn fyrir hvort saksóknari gerir kröfu um sýknu eða sakfellingu en sú ákvörðun getur haft mikil áhrif á framvindu málsins. Fréttablaðið/Eyþór
stjórnmál „Mér þótti þetta flott og
lýsandi nafn fyrir stjórnmálaflokk
og festi mér það því með fjölskyldu
minni,“ segir hæstaréttarlögmaður-
inn Tryggvi Agnarsson, maðurinn
sem stofnaði Miðflokkinn í maí
2009. Miðflokkur Sigmundar Dav-
íðs Gunnlaugssonar er í dag rekinn
á sömu kennitölu og Tryggvi festi sér
fyrir rúmum átta árum. Stofnandinn
hugsaði sig ekki tvisvar um þegar
beiðni kom frá herbúðum Sigmund-
ar í haust og lét flokkinn af hendi.
„Ég hafði ekkert nýtt mér þetta á
neinn hátt en þegar Sigmundur fór
af stað í haust var komið að máli
við mig og ég spurður hvort ég væri
tilbúinn að leyfa honum að taka yfir
nafnið,“ segir Tryggvi.
„Þótt við séum nú ekki skoðana-
bræður að öllu leyti fannst mér Sig-
mundur eiga það skilið að fá að eign-
ast nafnið. Ég þurfti ekki að hugsa
mig lengi um. Ég vonaði að þetta
gæti nýst honum til góðra verka og
vona enn.“
Samkvæmt stofngögnum var Mið-
flokkurinn stofnaður 26. maí 2009
þar sem fram kemur að tilgangur
hans sé að berjast fyrir „nútímalegu
lýðræðis- og jafnréttisþjóðfélagi gegn
sérhagsmunum, spillingu, skattpín-
ingu og sóun“.
Aðspurður hvort hann hafi skoð-
að hvernig Miðflokkur Sigmundar
standist samanburð við uppruna-
legu stefnuna segist Tryggvi telja
flesta flokka standa fyrir þetta.
„En þetta var stjórnmálaflokkur
með öllu tilheyrandi, stefnuskrá,
lögum og öðru en ég hef nú ekk-
ert fylgst með því hvernig hann
vinnur með það. Maður treystir
því að þetta sé í góðum höndum,“
segir Tryggvi, sem einnig stofnaði
Nýtt afl sem bauð fram til þings
árið 2003.
Miðflokkurinn lá í dvala til 3. októ-
ber sl. þegar Sigmundur og fleiri tóku
við félaginu, skipuðu nýja stjórn og
lögðu fram nýjar samþykktir og lög
í stað þeirra gömlu. Aðalfundur hins
nýja flokks fór fram 25. september
2017, degi eftir að Sigmundur lýsti
því yfir að hann væri hættur í Fram-
sókn og ætlaði fram með nýjan flokk.
Ekki náðist í Sigmund Davíð við
vinnslu þessarar fréttar en Tryggvi
telur líklegt að Sigmundur hafi verið
að skoða nöfn sem í boði voru og séð
að Miðflokkurinn var frátekinn.
„Kannski datt honum í hug að
sonarsonur Tryggva Þórhallssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra Fram-
sóknarflokksins, kynni að vera sér
sæmilega velviljaður og myndi láta
hann fá nafnið,“ segir Tryggvi og
hlær. Ekki hafi hvarflað að honum
að fara fram á greiðslu fyrir flokkinn.
„Ég hugsaði bara að þetta gæti
nýst til góðra verka og vonaði að
það yrði þannig í hans höndum. Ég
er vissulega stofnandi Miðflokksins
en það er meira tæknilegs eðlis, þetta
varð að veruleika í hans höndum.
Sigmundur á þetta,“ segir Tryggvi og
óskar Miðflokknum og formann-
inum alls hins besta.
mikael@frettabladid.is
Stofnaði Miðflokkinn
og gaf Sigmundi Davíð
Í maí 2009 stofnaði Tryggvi Agnarsson Miðflokkinn. Átta árum síðar veitti hann
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni leyfi til að eignast félagið. Tryggvi lét flokkinn
af hendi með glöðu geði í þeirri von að hann yrði notaður til góðra verka.
Sigmundur Davíð fékk nafn og kennitölu Miðflokksins frá tryggva í haust.
Fréttablaðið/Ernir
tryggvi agnars-
son stofnaði
Miðflokkinn árið
2009.
Gleðileg
jól!
Njótum gæðastunda
um hátíðarnar
jól Sous vide er það nýjasta í
íslenskri matargerð. Aðferðin snýst
um að elda mat á lágum hita í lengri
tíma. Þannig nær fólk jafnri hitun,
sem tryggir að innsti hluti sé nægi-
lega vel eldaður, og viðheldur raka-
stigi án þess þó að ofelda yfirborðið.
Íslendingar ætla flestir samkvæmt
könnun að borða hefðbundinn
jólamat, en margir ætla að nýta sér
þessa nýju aðferð við eldamennsk-
una. Rúmlega fimm þúsund manns
eru í sous-vide hóp á Facebook.
Ragnar Freyr Ingvarsson, eða Lækn-
irinn í eldhúsinu, er einn stjórnenda
hópsins á Facebook og hafði mörg
góð ráð fyrir jólin. „Það er hægt að
sous-vide-a hvað sem er. Einna helst
er fólk að vinna með kjöt.“ Ragnar
segir í raun hægt að sous-vide-elda
hvaða mat sem er. Fyrir grænmetis-
ætur og grænkera mælti hann með
að sous-vide-elda aspas. Skötunni
er Ragnar hins vegar ekki hrifinn
af. „Ég held að engin eldunaraðferð
geti gert skötuna góða. Þetta er ekki
matur sem er viðbjargandi.“ - la
Hefðbundinn
jólamatur með
sous-vide
Eldunartíminn
Hangikjöt: 3-4 klst. (rúlla) 6 klst.
(á beini), 60-64 gráður.
Svínahamborgarhryggur: 3-4
klst., 60-65 gráður.
Skata: 1 klst., 55-60 gráður.
aspas: 15 mínútur, 80 gráður.
Crème brûlée: 30 mín., 82,5
gráður.
stjórnmál Ríkisstjórnin ákvað
í gær að skipa nefnd um endur-
skoðun laga um fjármál stjórnmála-
samtaka og frambjóðenda og upp-
lýsingaskyldu þeirra.
Ákvörðunin kemur aðeins nokkr-
um dögum eftir að fulltrúar sex
stjórnmálaflokka gerðu kröfu um
í fjárlaganefnd að framlög ríkisins
til stjórnmálaflokka verði hækkuð
um 362 milljónir króna á fjárlögum
næsta árs. Í tilkynningu stjórnar-
ráðsins segir að markmið nefndar-
innar verði meðal annars að leita
leiða til að tryggja fjármögnun, sjálf-
stæði og lýðræðisleg vinnubrögð og
gagnsæi í starfsemi allra flokka sem
sæti eiga á Alþingi, óháð þingstyrk.
Í nefndinni verða fulltrúar allra
stjórnmálasamtaka á þingi, auk
fulltrúa forsætisráðuneytisins sem
stýra mun nefndinni og fulltrúa
dómsmálaráðuneytisins og Ríkis-
endurskoðunar. – smj
Endurskoða lög
um fjármál sín
ragnar Freyr ingvarsson læknir.
Fréttablaðið/VilHElM
2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 l A u G A r d A G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
8
-5
A
F
4
1
E
9
8
-5
9
B
8
1
E
9
8
-5
8
7
C
1
E
9
8
-5
7
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K