Fréttablaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 66
Ungur sölumaður, Mads A n d e r s e n - S k j e r n , kemur til smábæjarins Korsbæk árið 1929, þar sem gamlar valda-ættir ráða ríkjum og athafnalífið er í dvala. Aðkomu- maðurinn ákveður að setjast að í bænum og leggur grunn að miklu við- skiptaveldi með góðri hjálp vinveittra heimamanna. Að lokum verður hann ríkasti maðurinn í Korsbæk og búinn að velta gamla fyrirfólkinu úr sessi, en svíkur um leið mörg af sínum gömlu lífsgildum. Eitthvað á þessa leið mætti lýsa hinum geysivinsælu dönsku sjónvarps- þáttum Matador, sem gerðir voru á árunum 1978 til 1981. Nafnið vísar ekki í spænska nautabana, heldur nota Danir þetta orð stundum í merking- unni „efnahagsveldi“ eða álíka. Ástæð- an er samnefnt borðspil sem Danir og Íslendingar þekkja einir þjóða. Það er raunar örlítil söguskekkja að láta sögu sem hefst árið 1929 heita Matador, því það var ekki fyrr en sjö árum síðar sem spilaframleiðandinn C. Drechsler Papirvarefabrik sendi spilið á markað í Danmörku. Þremur árum síðar kom út íslensk útgáfa af Matador. Var það lofsungið í dagblöðum og stað- hæfði Morgunblaðið að í Danmörku væru jafnvel bridsklúbbar farnir að láta undan síga fyrir Matadorgildunum sem spryttu upp eins og gorkúlur. Spilið sjálft var annars auglýst með vísunni: „Matador er yndis afl. / Allir spila Mata- dor. / Matador er tigið tafl; / teflum bara Matador!“ Ekki voru stjórnendur C. Drechsler svo ósvífnir að láta eins og Matador- spilið væri þeirra eigin hugarsmíð. Í öllum meginatriðum byggði spilið á Monopoly, sem bandaríski spilarisinn Parker Brothers hóf að selja í stórum stíl árið áður. Í báðum tilvikum er um að ræða spil þar sem keppendur fara milli reita sem bera götunöfn, kaupa viðkomandi götur og rukka því næst keppinauta sína sem álpast til að lenda á sama reit. Helsti sýnilegi munurinn á Monopoly og Matador er sá að í fyrr- nefnda spilinu mynda reitirnir fjörutíu ferning, en í því síðarnefnda er þeim raðað í hring. Þá eru leikpeðin í Mata- dor litlir, mislitir bílar en í Monopoly velja keppendur á milli ólíkra hluta, s.s. herskips, fallbyssu og lúðurs. Þeir ríku verða ríkari Það varð samstundis ljóst að Parker Brothers hefðu uppgötvað gullnámu Óðurinn til græðginnar Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um borðspil með fortíð. um Monopoly, sem lætur þess getið að fyrsta Evrópumeistaramótið hafi farið fram í Laugardalshöll – á sama stað og þeir Fischer og Spassky höfðu att kappi um heimsmeistaratitilinn í skák. Annað og raunverulegra dæmi um áhrif Monopoly á sögulega atburði, tengist lestarráninu mikla í Bretlandi árið 1963. Freistuðust ræningjarnir til að spila spilið með hluta af ránsfeng sínum og áttu fingraför á spilakass- anum þátt í sakfellingu þeirra. Monopoly er táknmynd græðgi og hefur boðskapur þess farið í taug- arnar á mörgum siðapostulanum sem og hagfræðingnum – ekki hvað síst sú staðreynd að nafn spilsins merkir „einokun“. Telja gagnrýnendur að það sé ótækt að lofsyngja með þessum hætti jafn skaðlegt afl í hagkerfinu og einokun. Lokatakmark Monopoly er jú að einn keppandi sitji eftir með allar eignirnar og fjármunina en hinir verði gjaldþrota – slíkt eigi þó ekki að vera markmið hins frjálsa markaðar. Flestir létu hagfræðingarnir nægja að tuða yfir spilinu á kaffistofum, en Ralph Anspach, prófessor við San Francisco-háskóla lét ekki sitja við orðin tóm. Átið 1973 útbjó hann borðspilið Anti-Monopoly, sem hermdi í öllu eftir fyrirmyndinni í útliti en sneri reglunum á haus á þann hátt að í upphafi spilsins ríkir einokun og fákeppni sem þátttakendur leitast við að brjóta niður til að koma á frjálsum markaði. Sem vænta mátti kunnu Parker Brothers illa að meta uppátæki prófess- orsins og drógu hann fyrir dómstóla fyrir brot á höfundarétti. Við tóku lang- vinn málaferli, sem áttu eftir að varpa ljósi á sérkennilega sögu borðspilsins. Fræðsluspil um pólitík Hin opinbera saga Monopoly-spilsins hafði fram að þessu verið á þá leið að maður að nafni Charles Darrow, fyrr- verandi sölumaður sem misst hafði vinnuna í kreppunni, hafi búið til spilið. Darrow fékk að sönnu einka- leyfi á borðspili af þessu tagi árið 1935 sem hann seldi um hæl til Parker Brothers gegn hlutdeild í hagnað- inum. Hann varð milljónamæringur á augabragði, fyrstur borðspilahöf- unda. Málsvörn prófessors Anspachs byggðist hins vegar á því að Darrow hefði alls ekki verið hinn eiginlegi höfundur, að spil af þessu tagi hefðu verið útbreidd löngu fyrir 1935 og því gæti spilafyrirtækið ekki eignað sér hugverkaréttinn. Í ljós kom að Parker Brothers höfðu í raun áttað sig á þessu löngu fyrr og meðal annars keypt upp önnur og eldri einkaleyfi á sambæri- legum spilum, til að tryggja sig fyrir málaferlum. Gafst fyrirtækið því að miklu leyti upp fyrir rökum Anspachs og náðu málsaðilar sáttum utan dóms- salar. Þegar farið var að grafa dýpra ofan í forsögu Monopoly-spilsins kom heillandi saga í ljós. Grunnfyrirmyndin var spil sem hugsjónakonan Elizabeth Magie hannaði árið 1903 og kallaði Leigusalaleikinn (e. The Landlord’s Game). Tilgangurinn spilsins var að leiða fólki fyrir sjónir hvernig leigu- salar sem eiga margar húseignir gætu skrúfað upp leiguverðið og þannig hlunnfarið leigjendur sína. Í nútíma- útgáfu spilsins birtist það með þeim hætti að keppandi sem eignast götur í sama lit, getur sett „hús“ eða „hótel“ á viðkomandi reiti og þar með rukkað meðspilara sína um margfalda leigu fyrir að stoppa á þeim reitum. Taldi höfundurinn að keppendum hlyti að renna til rifja ósanngirnin í þessu fyrirkomulagi og að barnungir spilarar yrðu þannig varkárari í að treysta kapítalistum og gylliboðum þeirra þegar fram liðu stundir. Til að koma boðskapnum enn betur til skila var unnt að spila leikinn með annars konar reglum, þar sem auðurinn safn- aðist ekki á hendur eins keppandans, heldur högnuðust allir eftir því sem spilinu vatt fram. Elizabeth Magie var eldheit stuðn- ingskona Georgismans og það voru hugsjónir þeirrar hugmyndastefnu sem hún vildi kynna með borðspili sínu. Georgisminn er flestum gleymdur í dag, en um aldamótin 1900 var það afar áhrifamikil stjórnmálakenning sem margir töldu raunhæfan valkost við kapítalisma og sósíalisma. Georgisminn, sem sumir fylgjendur kusu þó að kalla „geoisma“ til að stefnan hefði síður á sér blæ persónudýrkunar, dró nafn sitt af bandaríska blaðamann- inum og sjálfmenntaða hagfræðingn- um Henry George. Hann fæddist árið 1839 og fluttist ungur til Kaliforníu þar sem hann hugðist græða á gull- greftri. Lítið varð úr þeim áformum og þess í stað sneri George sér að blaða- mennskunni. Hann snerist til liðs við Demókrata og gerðist sífellt pólitískari í skrifum sínum. Á sjöunda áratug nítjándu aldar var mikil uppbygging í járnbrautarkerfum Bandaríkjanna. Landeigendur sem voru svo lánsamir að fá járnbraut um lendur sínar duttu í lukkupottinn, þar sem verðmæti þeirra rauk upp úr öllu valdi. Þetta taldi Henry George augljóst ranglæti. Hvers vegna ættu sumir land- eigendur að græða á tá og fingri án þess að hafa gert neitt sjálfir til að auka verð- mæti jarða sinna? Næstu árin skrifaði George talsvert um misskiptingu jarðnæðis í Banda- ríkjunum og árið 1879 tók hann hugmyndir sínar saman í bókinni „Framfarir og fátækt“ (e. Progress and Poverty). Í henni reyndi hann að sam- eina kosti samkeppni kapítalismans og félagslegs réttlætis sósíalismans. Georg- isminn leggur höfuðáherslu á mikilvægi þess að allir borgarar samfélagsins hafi aðgang að jarðnæði og að hagnaður af hvers kyns náttúruauðlindum skyldi skattlagður. Markmiðið með þessu var tvíþætt: annars vegar að tryggja hámarks- nýtingu alls lands, sem George áleit að einkaeignarfyrirkomulagið gerði ekki, en hins vegar að skapa ríkinu tekjur sem duga myndu til að útrýma fátækt og byggja trausta innviði samfélagsins. Töldu Georgistar raunar að auðlinda- skatturinn yrði svo drjúg tekjulind að hið opinbera gæti lagt niður alla aðra skattheimtu. Hugmyndir þessar hlutu mikinn hljómgrunn víða um lönd. Þannig skiptust róttækir íslenskir stúdentar í Kaupmannahöfn um aldamótin 1900 í tvær fylkingar – þá sem hneigðust til jafnaðarstefnu og hina sem töldu sig Georgista. Jónas Jónsson frá Hriflu heillaðist einnig af Georgismanum á námsárum sínum í Evrópu á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöldina en komst loks að þeirri niðurstöðu að stefnan myndi ekki höfða til íslenskra kjósenda. Fáir munu til að fylla flokk Georgista í dag, enda álíta fæstir að skattur á jarðnæði og náttúruauðlindir myndi einn og sér duga til að standa undir rekstri nútímaríkja. En eftir stendur þó kennslutækið Monopoly í spilaskápum flestra fjölskyldna, þótt upphafleg merking þess sé öllum gleymd. þegar Monopoly kom á markað. Á þeim rúmu áttatíu árum sem liðin eru frá útgáfunni, hefur spilið haldið vinsældum sínum og er vafalítið það mest selda í borðspilasögunni. Útgef- endurnir hafa einnig verið iðnir við að senda frá sér aðrar útgáfur, svo sem ætl- aðar börnum. Landskeppnir og jafnvel heimsmeistaramót hafa verið haldin í Monopoly. Ýmsir eiga þó bágt með að taka spilamennsku þessa alvarlega sem keppnisíþrótt. Þannig ritaði blaða- maður breska blaðsins The Guardian mikinn grínpistil árið 1975 um Evr- ópumeistaramót í Monopoly sem átti að hafa farið fram í Reykjavík, en endað með ósköpum þar sem ásakanir um svindl gengu á milli keppenda, á meðan blaðamenn sem fylgdust með mótinu liðu vítiskvalir á áfengislaus- um miðvikudagskvöldum íslenskra öldurhúsa. Þótt greinin væri grínaktug, virðist henni hafa tekist að sannfæra höfund ensku Wikipediugreinarinnar Matador er tigið tafl; tefluM bara Mata- dor! Vitamix TNC er stórkostlegur. Mylur alla ávexti, grænmeti, klaka og nánast hvað sem er. Býr til heita súpu og ís. Til í þremur litum, svörtum, hvítum og rauðum KKælitækni ehf. Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Besti vinurinn í eldhúsinu Jólatilboðsverð kr. 79.527,- 2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r46 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 3 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 9 6 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 8 -6 4 D 4 1 E 9 8 -6 3 9 8 1 E 9 8 -6 2 5 C 1 E 9 8 -6 1 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.