Fréttablaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 64
Hasarblaðahetjur hafa skotið upp kollinum í bíó af og til í gegn-um áratugina. Eftir að Marvel tefldi Iron Man fram 2008
og hóf þar með óslitna sigurgöngu
sína í kvikmyndum hafa ofurhetju-
myndirnar hrúagst inn og í ár voru
þær sex talsins.
Marvel bauð upp á þrjár; Spider-
Man: Homecoming, Thor: Ragnarok
og Guardians of the Galaxy Vol. 2.
DC var með tvær; Wonder Woman
og The Justice League og Twentieth
Century Fox splæsti í svanasöng
Hughs Jackman í hlutverki Wolv-
erine úr X-Men í Logan.
DC-myndir síðustu ára hafa
ekki virkað nógu vel en 2017
er besta ár myndasögurisans
hingað til og munar þar mest
um Wonder Woman sem heill-
aði áhorfendur í sumar, skil-
aði stórgróða og sló ýmis met.
DC sleppti Wonder Woman lausri
í sumar í samnefndri mynd og
í vetur mætti hún aftur til leiks
ásamt félögum sínum Superman,
Batman, The Flash, Aquaman og
Cyborg. Saman mynda þau gengið
The Justice League og þar skyggir
hún heldur betur á karlana.
DC og öldungadeildin
DC-myndasögurisinn hefur á síð-
ustu árum reynt að virkja hetjur
sínar á svipaðan hátt og Marvel en
gengur illa að finna taktinn. Super-
man-myndin Man of Steel frá 2013
olli vonbrigðum og sömu sögu er að
segja af Batman v Superman: Dawn
of Justice frá því í fyrra. Myndin var
upptakturinn fyrir Justice League
sem var frumsýnd í nóvember en í
henni hefur Batman smalað saman
fleiri DC-hetjum og myndað ofur-
hetjugengi ekki ósvipað The
Avengers.
Þessar myndir hafa skilað ágætis
pening í kassann þótt ánægjan með
þær sé takmörkuð. The Avengers
eru miklu skemmtilegri en Justice
League og á meðan Marvel fer eftir
nákvæmu plani og stígur ekki feil-
spor virðast ákvarðanir DC handa-
hófskenndar og losarabragur á
þessu öllu saman.
Meginvandi DC er hversu
gamlar og staðnaðar persón-
urnar eru, auk þess sem þær
eru sumar hverjar guðlegar og
verður vart í hel komið. Bat-
man er langskemmtilegastur
og margbrotnastur en nýtur sín
illa í þessum hópi. Einn og sér
stendur hann iðulega fyrir sínu.
Superman kom fyrst fram í
myndasögu 1938, f y r i r 7 9
á r u m s í ð a n . B a t m a n
er aðeins ári y n g r i .
The Flash birtist
fyrst 1940 og ári
síðar stigu Wonder
Woman og Aqua-
m a n f r a m .
Captain Amer-
ica er aldurs-
forsetinn hjá Marvel, jafngamall
Wonder Woman, en Hulk, Spider-
Man og Thor eru aðeins 55 ára og
hafa verið að síðan 1962. Iron Man
fylgdi síðan í kjölfarið ári síðar.
Mannlegi þátturinn
Grundvallarmunurinn á DC-hetjun-
um annars vegar og Marvel-hetjum
meistara Stans Lee liggur í því að
Marvel-hetjurnar eru miklu mann-
legri. Superman er nánast guðleg
vera, sendur af föður sínum utan
úr geimi til þess að leiða mannkyn
til betri vegar. Aquaman er síðan
hvorki meira né minna en konung-
ur neðansjávarríkisins Atlantis.
Wonder Woman, Díana, á rætur
að rekja til grískrar goðafræði.
Hún er Amazóna, dóttir Hippó-
lýtu drottningar. Hún elst upp í
kvennaveldi á paradísareyju en
heldur til mannheima til þess að
stöðva stríðsbrölt sem gráðugir og
heimskir karlmenn keyra áfram af
miklum feðraveldismóð.
Þetta flekklausa lið býður ekki
upp á mikil tilþrif í persónusköpun
á meðan Marvel-liðið er spriklandi
fjörugt. Iron Man er moldríkur
og hrokafullur alkóhólisti,
Spider- Man er gelgja og
Hulk á við stórkost-
legar per-
sónuleikaraskanir að stríða með
tilheyrandi æðisköstum. Lesendur
og áhorfendur eiga því óhjákvæmi-
lega auðveldara með að tengja við
þennan mannskap.
Feðraveldis
hrellirinn
Díana
Díana prinsessa
æ f i r v o p n a -
burð og ýmsar
íþróttir aðrar í öruggum og fallegum
heimi Amazónanna á fjarlægri eyju
þar sem karlmann er hvergi að sjá.
Þegar breskan njósnara rekur á
fjörur hennar fréttir hún af stríð-
inu mikla, fyrri heimsstyrjöldinni,
og áttar sig á að stríðsguðinn Ares
stendur á bak við hörmungarnar og
keyrir her Þjóðverja áfram.
Við þetta má ekki una, Díana
grípur sverð sitt, skjöld og töfra-
svipu og vindur sér í átökin. Wonder
Woman er mætt til leiks og bjargar
því sem bjargað verður. Hún lætur
þó ekki aðeins til sín taka á vígvell-
inum heldur hristir hún vel upp í
feðraveldinu og herráðinu í London
þar sem gamlir og krumpaði karl-
pungar vita ekki hvaðan á þá stend-
ur veðrið þegar þessi glæsilega,
ákveðna kona í fullum herklæðum
segir þeim til syndanna.
Ísraelska leikkonan Gal Gadot
leikur Díönu með glæsibrag og vel-
gengni myndarinnar hefur þegar
tryggt að önnur mynd verður gerð
um Wonder Woman auk þess sem
hún er lykilpersóna í Justice League
sem einnig verður
gert fram-
h a l d
af.
Wonder Woman sló í gegn í
sumar og þessi mynd er fyrsta til-
raun DC sem virkar almennilega
síðan fyrirtækið sigldi í kjölfar vin-
sælda Marvel-myndanna. Marvel
var í góðum málum á þessu ári með
fína Spider-Man mynd, áframhald-
andi stuð í The Guardians of the
Galaxy 2 og okkar maður, þrumu-
guðinn Þór, stóð sig með stakri
prýði í Thor: Ragnarok. En Wonder
Woman er þó líklega best heppnaða
ofurhetjumynd ársins.
Tvær valkyrjur
Leikstjóri myndarinnar, Patty Jenk-
ins, fann rétta tóninn og þótt Díana
sé óneitanlega voða sæt og sexí eru
femínískir undirtónar í myndinni.
Díana er aðaltöffarinn og alls
ekkert „gluggaskraut“. Vinsældir
myndarinnar verða því vonandi og
að öllum líkindum boðberi nýrra
tíma í persónusköpun kvenhetja í
hasarmyndum.
Jenkins segir að þótt mynd fjalli
um konu geri það hana ekki sjálf-
krafa að „konumynd“. Wonder
Woman sé einfaldlega mynd um
hetju. Myndin skilaði rúmlega 800
milljónum dollara á heimsvísu og
er tekjuhæsta kvikmynd sem kona
hefur leikstýrt. Þrátt fyrir vinsæld-
irnar, velgengnina og ofsagróðann
þarf Jenkins enn að berjast við
karlaveldið í Hollywood.
Hún fékk eina milljón dollara
fyrir vinnu sína við myndina en
er orðin launahæsti kvenleikstjóri
sögunnar eftir að hafa samið um
7-9 milljónir dollara fyrir Wonder
Woman 2. Hún er þó sögð hafa þurft
að berjast harkalega fyrir launa-
hækkuninni.
Hún fór fram á sambærileg laun
og Zack Snyder hefur fengið fyrir
Man of Steel og Batman v Super-
man: Dawn of Justice en hann
hefur hækkað í launum vafn-
ingalaust á milli mynda. Samt
hafa gagnrýnendur tekið
þeim báðum heldur fálega
og Wonder Woman er
fyrsta DC-myndin í þessari
umferð sem ekki hefur lent
í hakkavél gagnrýnenda.
Jenkins og Wonder
Woman eru í hörkusókn
og ofurhetjubíóárið 2017
var þeirra. Jenkins sló
met, braut múra og vinnur
í raun afrek með fyrstu
almennilegu DC-myndinni.
Wonder Woman sjálf stendur
síðan uppi sem sigurvegari og
aðalvítamín sprautan í tveimur
risamyndum á árinu.
Ofurkarlar í skugga
Kraftaverkakonunnar
Ellismellirnir frá DC reyna að fóta sig á breyttum tímum.
Amazónan Díana er krafta
verkakona sumarsins og rétti
hlut DC í slagnum við Marvel.
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
Ofurhetjur voru
frekar til fjörsins
í bíó á árinu í sex
plássfrekum stór-
myndum. Hæst ber
glæsilegan árangur
Wonder Woman sem
kom, sá og sigraði
og sannaði að tími
kvenna til þess að
glansa í hetjuheim-
um myndasagnanna
er runninn upp.
Þrumuguðinn Þór, fulltrúi
Norður landanna í ofurhetju
heiminum, var sigursæll í sumar.
2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r44 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
3
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
8
-A
5
0
4
1
E
9
8
-A
3
C
8
1
E
9
8
-A
2
8
C
1
E
9
8
-A
1
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K