Fréttablaðið - 23.12.2017, Síða 64

Fréttablaðið - 23.12.2017, Síða 64
Hasarblaðahetjur hafa skotið upp kollinum í bíó af og til í gegn-um áratugina. Eftir að Marvel tefldi Iron Man fram 2008 og hóf þar með óslitna sigurgöngu sína í kvikmyndum hafa ofurhetju- myndirnar hrúagst inn og í ár voru þær sex talsins. Marvel bauð upp á þrjár; Spider- Man: Homecoming, Thor: Ragnarok og Guardians of the Galaxy Vol. 2. DC var með tvær; Wonder Woman og The Justice League og Twentieth Century Fox splæsti í svanasöng Hughs Jackman í hlutverki Wolv- erine úr X-Men í Logan. DC-myndir síðustu ára hafa ekki virkað nógu vel en 2017 er besta ár myndasögurisans hingað til og munar þar mest um Wonder Woman sem heill- aði áhorfendur í sumar, skil- aði stórgróða og sló ýmis met. DC sleppti Wonder Woman lausri í sumar í samnefndri mynd og í vetur mætti hún aftur til leiks ásamt félögum sínum Superman, Batman, The Flash, Aquaman og Cyborg. Saman mynda þau gengið The Justice League og þar skyggir hún heldur betur á karlana. DC og öldungadeildin DC-myndasögurisinn hefur á síð- ustu árum reynt að virkja hetjur sínar á svipaðan hátt og Marvel en gengur illa að finna taktinn. Super- man-myndin Man of Steel frá 2013 olli vonbrigðum og sömu sögu er að segja af Batman v Superman: Dawn of Justice frá því í fyrra. Myndin var upptakturinn fyrir Justice League sem var frumsýnd í nóvember en í henni hefur Batman smalað saman fleiri DC-hetjum og myndað ofur- hetjugengi ekki ósvipað The Avengers. Þessar myndir hafa skilað ágætis pening í kassann þótt ánægjan með þær sé takmörkuð. The Avengers eru miklu skemmtilegri en Justice League og á meðan Marvel fer eftir nákvæmu plani og stígur ekki feil- spor virðast ákvarðanir DC handa- hófskenndar og losarabragur á þessu öllu saman. Meginvandi DC er hversu gamlar og staðnaðar persón- urnar eru, auk þess sem þær eru sumar hverjar guðlegar og verður vart í hel komið. Bat- man er langskemmtilegastur og margbrotnastur en nýtur sín illa í þessum hópi. Einn og sér stendur hann iðulega fyrir sínu. Superman kom fyrst fram í myndasögu 1938, f y r i r 7 9 á r u m s í ð a n . B a t m a n er aðeins ári y n g r i . The Flash birtist fyrst 1940 og ári síðar stigu Wonder Woman og Aqua- m a n f r a m . Captain Amer- ica er aldurs- forsetinn hjá Marvel, jafngamall Wonder Woman, en Hulk, Spider- Man og Thor eru aðeins 55 ára og hafa verið að síðan 1962. Iron Man fylgdi síðan í kjölfarið ári síðar. Mannlegi þátturinn Grundvallarmunurinn á DC-hetjun- um annars vegar og Marvel-hetjum meistara Stans Lee liggur í því að Marvel-hetjurnar eru miklu mann- legri. Superman er nánast guðleg vera, sendur af föður sínum utan úr geimi til þess að leiða mannkyn til betri vegar. Aquaman er síðan hvorki meira né minna en konung- ur neðansjávarríkisins Atlantis. Wonder Woman, Díana, á rætur að rekja til grískrar goðafræði. Hún er Amazóna, dóttir Hippó- lýtu drottningar. Hún elst upp í kvennaveldi á paradísareyju en heldur til mannheima til þess að stöðva stríðsbrölt sem gráðugir og heimskir karlmenn keyra áfram af miklum feðraveldismóð. Þetta flekklausa lið býður ekki upp á mikil tilþrif í persónusköpun á meðan Marvel-liðið er spriklandi fjörugt. Iron Man er moldríkur og hrokafullur alkóhólisti, Spider- Man er gelgja og Hulk á við stórkost- legar per- sónuleikaraskanir að stríða með tilheyrandi æðisköstum. Lesendur og áhorfendur eiga því óhjákvæmi- lega auðveldara með að tengja við þennan mannskap. Feðraveldis­ hrellirinn Díana Díana prinsessa æ f i r v o p n a - burð og ýmsar íþróttir aðrar í öruggum og fallegum heimi Amazónanna á fjarlægri eyju þar sem karlmann er hvergi að sjá. Þegar breskan njósnara rekur á fjörur hennar fréttir hún af stríð- inu mikla, fyrri heimsstyrjöldinni, og áttar sig á að stríðsguðinn Ares stendur á bak við hörmungarnar og keyrir her Þjóðverja áfram. Við þetta má ekki una, Díana grípur sverð sitt, skjöld og töfra- svipu og vindur sér í átökin. Wonder Woman er mætt til leiks og bjargar því sem bjargað verður. Hún lætur þó ekki aðeins til sín taka á vígvell- inum heldur hristir hún vel upp í feðraveldinu og herráðinu í London þar sem gamlir og krumpaði karl- pungar vita ekki hvaðan á þá stend- ur veðrið þegar þessi glæsilega, ákveðna kona í fullum herklæðum segir þeim til syndanna. Ísraelska leikkonan Gal Gadot leikur Díönu með glæsibrag og vel- gengni myndarinnar hefur þegar tryggt að önnur mynd verður gerð um Wonder Woman auk þess sem hún er lykilpersóna í Justice League sem einnig verður gert fram- h a l d af. Wonder Woman sló í gegn í sumar og þessi mynd er fyrsta til- raun DC sem virkar almennilega síðan fyrirtækið sigldi í kjölfar vin- sælda Marvel-myndanna. Marvel var í góðum málum á þessu ári með fína Spider-Man mynd, áframhald- andi stuð í The Guardians of the Galaxy 2 og okkar maður, þrumu- guðinn Þór, stóð sig með stakri prýði í Thor: Ragnarok. En Wonder Woman er þó líklega best heppnaða ofurhetjumynd ársins. Tvær valkyrjur Leikstjóri myndarinnar, Patty Jenk- ins, fann rétta tóninn og þótt Díana sé óneitanlega voða sæt og sexí eru femínískir undirtónar í myndinni. Díana er aðaltöffarinn og alls ekkert „gluggaskraut“. Vinsældir myndarinnar verða því vonandi og að öllum líkindum boðberi nýrra tíma í persónusköpun kvenhetja í hasarmyndum. Jenkins segir að þótt mynd fjalli um konu geri það hana ekki sjálf- krafa að „konumynd“. Wonder Woman sé einfaldlega mynd um hetju. Myndin skilaði rúmlega 800 milljónum dollara á heimsvísu og er tekjuhæsta kvikmynd sem kona hefur leikstýrt. Þrátt fyrir vinsæld- irnar, velgengnina og ofsagróðann þarf Jenkins enn að berjast við karlaveldið í Hollywood. Hún fékk eina milljón dollara fyrir vinnu sína við myndina en er orðin launahæsti kvenleikstjóri sögunnar eftir að hafa samið um 7-9 milljónir dollara fyrir Wonder Woman 2. Hún er þó sögð hafa þurft að berjast harkalega fyrir launa- hækkuninni. Hún fór fram á sambærileg laun og Zack Snyder hefur fengið fyrir Man of Steel og Batman v Super- man: Dawn of Justice en hann hefur hækkað í launum vafn- ingalaust á milli mynda. Samt hafa gagnrýnendur tekið þeim báðum heldur fálega og Wonder Woman er fyrsta DC-myndin í þessari umferð sem ekki hefur lent í hakkavél gagnrýnenda. Jenkins og Wonder Woman eru í hörkusókn og ofurhetjubíóárið 2017 var þeirra. Jenkins sló met, braut múra og vinnur í raun afrek með fyrstu almennilegu DC-myndinni. Wonder Woman sjálf stendur síðan uppi sem sigurvegari og aðalvítamín sprautan í tveimur risamyndum á árinu. Ofurkarlar í skugga Kraftaverkakonunnar Ellismellirnir frá DC reyna að fóta sig á breyttum tímum. Amazónan Díana er krafta­ verkakona sumarsins og rétti hlut DC í slagnum við Marvel. Þórarinn Þórarinsson thorarinn@frettabladid.is Ofurhetjur voru frekar til fjörsins í bíó á árinu í sex plássfrekum stór- myndum. Hæst ber glæsilegan árangur Wonder Woman sem kom, sá og sigraði og sannaði að tími kvenna til þess að glansa í hetjuheim- um myndasagnanna er runninn upp. Þrumuguðinn Þór, fulltrúi Norður landanna í ofurhetju­ heiminum, var sigursæll í sumar. 2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r44 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 3 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 9 6 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 3 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 8 -A 5 0 4 1 E 9 8 -A 3 C 8 1 E 9 8 -A 2 8 C 1 E 9 8 -A 1 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.