Fréttablaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 28
Björgvin Páll Gústavsson flutti heim til Íslands síðasta sumar með eiginkonu sinni Karen Einarsdóttur og dóttur þeirra sem er fjögurra ára gömul. Hjónin eignuðust tví­ bura í nóvember. Þau stefndu á að búa fjölskyldunni heimili á Íslandi þar til Björgvin fékk gott tilboð frá liðinu Skjern í Danmörku. Hann skrifaði undir hjá félaginu í vikunni. Eiginkonan á skilið fálkaorðu Það er þó enginn asi á þeim að flytja aftur út. Tvíburarnir eru nú um fjög­ urra vikna gamlir og fjölskyldan vill vera heima á Íslandi fyrstu mánuð­ ina í lífi þeirra. Jólin eru fram undan og það er í mörgu að snúast. „Við nýja fjölskyldan ætlum að eyða jól­ unum saman og hafa það eins kósí og við mögulega getum. Þetta eru búnar að vera alvöru vikur síðan tvíburarnir komu í heiminn, þau eru enn föst í því að vaka á nóttunni og svo er stelpan okkar búin að vera slöpp á sama tíma, fá gat á hausinn og fleira. Ég á magnaða konu sem er búin að vera eins og ofurmenni síðustu fjórar vikur. Hún hefur séð um að heimilið haldi velli og er sjálf búin að vera veik ofan í allt saman. Guðni hlýtur að mæta með fálka­ orðuna handa henni á aðfangadag,“ segir hann. Björgvin heldur út með fjölskyld­ unni næsta sumar. Í Skjern er lögð rík áhersla á að liðsmenn fái tíma til að sinna fjölskyldunni. Feður taki virkan þátt í uppeldi barna sinna þrátt fyrir að vera í atvinnumennsku. Nokkuð sem skiptir Björgvin miklu máli og var því veigamikið í ákvörð­ un hans. „Ég taldi mig vera kominn heim til að vera en þegar mér bauðst að spila í Danmörku frá og með næsta sumri í liði sem heitir Skjern gat ég ekki sagt nei þótt ég hefði íhugað alvarlega að vera um kyrrt á Íslandi. Ástæða þess er hreinlega sú að þetta er mögulega besti klúbbur í heiminum þegar kemur að því að ala upp börn en allt umhverfið er þannig uppbyggt að fjölskyldunni líði vel og að feður geti tekið þátt í að sinna uppeldi barna sinna,“ segir Björgvin. Hann segir þá ákvörðun að koma heim til Íslands síðasta sumar hafa verið þá einu réttu. „Við fjölskyldan þurfum á allri þeirri hjálp sem við getum fengið frá okkar nánasta fólki að halda,“ segir Björgvin. Handboltinn bjargaði Hann rifjar upp grein sem Kári Stef­ ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­ greiningar, skrifaði á dögunum um foreldrahlutverkið. Í henni sagðist Kári hafa vanrækt börnin sín. Metn­ aður hans í vísindum hefði verið hans villuljós. Greinin var öðrum þræði um íslenskt samfélag og stjórnmál og Kári brýndi fyrir nýrri ríkisstjórn að setja hagsmuni barna í forgang. Metnaður Björgvins í handbolta hefur aldrei verið villuljós. Meira eins og ljós í myrkri. „Ég ætla ekki að vera drullusokkur og ég trúi Kára Stefánssyni vel, að það sé vond tilfinning að hafa verið lélegt foreldri, en ég lofaði sjálfum mér því frá því að fyrsta barnið mitt kom í heiminn að allar mínar ákvarðanir yrðu teknar með hag barnanna að leiðarljósi. Ég á handboltanum bæði mitt líf og barnanna minna að þakka en handboltinn bjargaði mér út úr stormasamri æsku því ég fann stað þar sem ég gat notið mín og fundið sjálfan mig. Atvinnumennskan í handbolta gerði svo það að verkum að ég og konan gátum búið til fjöl­ skyldu en við þurftum á hjálp að halda til þess að búa til okkar þrjú yndislegu börn. Það kostaðu mikla peninga, styrk, tíma og þolinmæði,“ segir Björgvin. Afþakkaði næstum tilboðið Björgvin á að baki brotna barnæsku. Hann glímdi við mikla vanlíðan og hegðunarörðugleika sem hann braust út úr á fullorðinsárum. Frá því að hann kom til Íslands síðasta sumar hefur hann haft að markmiði að hjálpa krökkum í vanda. Hann kynntist fyrirtækinu Vinakoti og lagði starfsemi þess lið. Starfið í fyrir­ tækinu varð næstum til þess að hann afþakkaði tilboðið frá Skjern. „Þegar ég kom til Íslands í sumar var mitt fyrsta markmið að hjálpa krökkum sem voru í svipuðum málum og ég þegar ég var yngri og ég kynntist þá fyrirtæki sem heitir Vinakot sem er í raun ástæðan fyrir því að ég var næstum því búinn að hafna tilboðinu frá Skjern. Hjá Vinakoti er verið að þjóna börnum með fjölþættan vanda. Ég hef verið í mörgum frábærum liðum í gegnum tíðina en ég held að ég hafi aldrei verið í eins öflugu liði og Vinakoti sem er orðin mín önnur fjölskylda, fjölskylda líkt og mín eigin, sem er hlaðin fallegum gildum og tilbúin að gera allt til þess að börnunum líði vel,“ segir Björgvin. Viljinn ristir djúpt Björgvin hefur áður rætt opinberlega um barnæsku sína. Hann glímdi við ýmsa hegðunarörðugleika og dvaldi um tíma á BUGL til að ná áttum. Heimilisaðstæður hans áttu ríkan þátt í hegðunarvandanum. Það er ekki langt síðan hann sótti skjöl um sig úr kerfinu. „Þessi vilji til að hjálpa ristir djúpt,“ segir hann og deilir broti úr skýrslu frá umsjónar­ kennara í grunnskóla. 15. maí 1993: Brot úr skýrslu frá um­ sjónar kennara í grunnskóla „Björgvin kemur mér fyrir sjónir, sem efnilegur, vel gef- inn drengur, sem vill standa sig, en ræður ekki við það vegna ýmissa uppeldisatriða. Hann er mjög órólegur og fyrirferðarmikill í skólanum og sýnir börnunum í bekknum mikinn yfirgang. Hann beitir þau fantabrögðum t.d. kýlir í maga, tekur hálstaki, beygir uppá handleggi til þess að ná völdum og þau hlýði honum. Börnin eru flest hrædd við hann, en gefa honum þó tæki- færi og fyrirgefa honum ótrú- lega oft og vilja hafa hann með. Hann á þó sína góðu daga og er mjög metnaðargjarn og vill vera bestur. Hann þarf mikla þolinmæði og hlýju.“ „Þarna er ég ekki orðinn átta ára gamall. Þetta sama ár er ég tekinn með hníf í skólanum og vistaður á BUGL,“ segir Björgvin og deilir öðru broti úr gömlu skjali um sig. Sem eru lokaorð í viðtali við húsráðendur eftir vistun hans í sveit. Þá er hann tíu ára gamall. 29. september 1995: Lokaorð í viðtali við hús­ ráðendur eftir vistun í sveit „Þegar húsráðandi var aðspurð að því hvort hún gæti hugsað sér að taka Björgvin aftur í sveit einhvern tíma seinna, saup hún hveljur og sagðist aldrei geta lagt það á sitt heimilisfólk. Sagði hún Björgvin vera þannig að erfitt væri að þykja vænt um hann og vissulega væri erfitt að horfa upp á þetta vanrækta barn.“ „Þetta gefur ágætis mynd af minni æsku þó svo að ekkert sé sagt um þau áföll sem dundu á mér. Móðir mín var gríðarlega veik andlega þegar ég var að alast upp en hún gerði sína fyrstu sjálfsvígstilraun þegar ég var aðeins þriggja ára gamall,“ segir Björgvin frá. Varð vitni að sjálfsvígstilraun Hann varð svo vitni að sjálfsvígs­ tilraun móður sinnar þegar hann var tólf ára. Hann segist ekki hafa getað tekist á við áfallið en þurft að harka af sér. Yngri systir hans hafi þurft á honum að halda. „Það að móðir mín skuli enn vera á lífi er kraftaverk og ekki margir sem myndu standa af sér það sem hún hefur gengið í gegnum en í seinni tíð hafa dauðsföll tveggja unnusta bæst ofan á þunglyndi, kvíðaröskun, félagsfælni. Mamma er nú nýorðin fimmtug og á fjögur ömmubörn. Hún er á ótrúlega góðum stað þrátt fyrir allt,“ segir Björgvin. „Hér eru skilaboð til þín mamma: Ég elska þig.“ Týndu börnin í kerfinu Það er ekki langt síðan Björgvin Páll Gústavsson sótti gömul skjöl um sig úr kerfinu. Hann á að baki brotna barnæsku og glímdi við vanlíðan og hegðunarörðugleika sem hann braust út úr á fullorðinsárum. „Kerfið er fullt af götum,“ segir Björgvin en í vetur hefur hann liðsinnt börnum í vanda og málstaðurinn er honum svo hugfólginn að hann íhugaði að hafna tilboði danska liðsins Skjern. Björgvin Páll Gústavsson taldi sig vera kominn heim til að vera en flytur til Danmerkur næsta sumar. FréttABLAðið/Ernir Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Móðir Mín var gríðar- lega veik andlega þegar ég var að alast upp en hún gerði sína fyrstu sjálfsvígs- tilraun þegar ég var aðeins þriggja ára gaMall. ↣ 2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 3 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 9 6 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 9 8 -8 7 6 4 1 E 9 8 -8 6 2 8 1 E 9 8 -8 4 E C 1 E 9 8 -8 3 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.