Fréttablaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 26
30%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM J
ÓLAVÖRU
M
SENDUM FRÍTT ÚR
VEFVERSLUN
Á NÆSTA PÓSTHÚS
Gefðu
íslenska
hönnun
um jólin
SMÁRATORGI |GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
Tré lífsins
140x200
14.990 kr
9.443 kr
Hrafnaþing
140x200
13.490 kr.
9.443 kr.
Ertu búin að öllu? Hver kannast ekki við þessa spurningu rétt fyrir jól. „Búin að öllu hvað?“ gæti verið svar sem spyrjandinn fær frá
taugaveikluðum jólastressuðum
einstaklingi, sem uppgötvar í sömu
andrá og spurningin er borin fram
að hann er ekki búinn að neinu fyrir
jólin og klukkuna vantar í alvörunni
korter í jól.
Standi maður frammi fyrir þeirri
staðreynd að niðurtalningin að jól-
unum er hraðspóluð og verslanir
um það bil að loka og þú hefur ekki
keypt eina einustu gjöf eða gubbað
glimmeri yfir stofuna þá er þetta
ekki rétti tíminn til að fá taugaáfall
heldur skal leysa málið með yfir-
veguðum hætti og það á stuttum
tíma.
Við þessar aðstæður er mikilvægt
að forgangsraða – það er augljóst
að ekki gefst tími til að gera ALLT,
hvernig svo sem það er skilgreint.
Slepptu því að þrífa, það er óþarfi.
Kveiktu heldur á kerti og slökktu
ljósin, þá sérðu ekki óhreinindin.
Varstu ekki búin að skreyta og
hafðir ekki tíma til að kaupa jólatré?
Skelltu ljósaseríu á pottaplöntu og
láttu það duga, það er andinn sem
skiptir máli, ekki tréð.
Þeir sem eru í tímahraki fyrir
jólin og vilja gefa gjafir en hafa ekki
tækifæri til að ráfa ráðvilltir á milli
verslana í örvæntingarfullri leit að
einhverju, ættu að nýta sér tæknina.
Leikhúsmiðar, flugmiðar, gistingin,
borðapöntunin – allt þetta og fleira
til er einfalt að kaupa á netinu og
tekur ekki nema augnablik að græja.
En vilji maður gefa persónulega
og heimatilbúna gjöf og tíminn
til að föndra tímamótaframlag til
listarinnar er ekki til staðar þá væri
til dæmis hægt að semja ljóð, eða
gefa samveru eða vinnuframlag.
Umfram allt, ekki missa móðinn,
það er hugurinn sem gildir en ekki
pakkafjöld og jólaskraut.
Korter í jól og ekkert tilbúið
Ráðleggingar til þeirra sem þurfa að bjarga jólunum á ofurhraða svona rétt áður en hátíðin gengur í garð. Ekki deyja
úr stressi fyrir jólin því að þau koma hvort sem þú ert búin að gera allt og græja jólasteik, pakka og tré.
Jólin eru alveg að koma, og ekkert er klárt. Hvernig er hægt að redda jólunum á korteri þegar verslanir eru um það bil að loka? Fréttablaðið/Ernir
Gefðu gjafabréf í:
l leikhús – já, og þú ferð með!
l Flugferð – er ekki HM á næsta ári?
l Hótelgistingu – rómantísk helgi með elskunni
klikkar ekki.
l Málsverð – upplifðu fjölmarga nýja veitinga-
staði í Reykjavík.
l Dekur – gefðu elskunni nýtt og brakandi ferskt
útlit.
Gjöf sem gefur:
l loforð um snjómokstur – þakklát gjöf sem
óvíst er að þurfi að efna vegna tíðra veður-
breytinga.
l Vinnuframlag í bílskúrstiltekt og loforð um
einn ískaldan að því loknu.
l Samverustund með gamla settinu –
bjóddu ömmu þinni á deit.
l tilboð um gönguferð að vori – hvernig
væri að klífa Helgafell í góðum félagsskap?
l Garðsláttartilboð – ef þú ert ekki með
grasofnæmi þá er tilvalið að gefa garðslátt í
heilt sumar.
l Jólalagið – hvernig væri að syngja fallegt,
jafnvel frumsamið, jólalag fyrir fjölskylduna
á aðfangadag?
l ljóðið – fátt er skemmtilegra en góð vísa,
sérstaklega ef hún fjallar um þína eigin fjöl-
skyldu.
Ásta Hrafnhildur
Garðarsdóttir
astahrafnhildur@frettabladid.is
2 3 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r26 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin
2
3
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
8
-9
B
2
4
1
E
9
8
-9
9
E
8
1
E
9
8
-9
8
A
C
1
E
9
8
-9
7
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K